Nox Medical hlýtur útflutningsverðlaun forseta Íslands

Pétur Már Halldórsson og gínan Bob, með búnað frá Nox Medical tengdan við sig.
Pétur Már Hall­dórs­son og gínan Bob, með búnað frá Nox Medical tengdan við sig. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nox Medical hlaut í dag útflutn­ings­verð­laun for­seta Íslands við hát­ið­lega athöfn á Bessa­stöðum. Verð­launin hlaut fyr­ir­tækið fyrir að hafa náð ein­stökum árangri á heims­vísu í þróun og smíði á lækn­inga­vörum sem not­aðar eru til grein­ingar á svefn­trufl­unum.

Nox Medical er tækni- og hug­vits­fyr­ir­tæki sem stofnað var árið 2006. Pétur Már Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri Nox Medical, fór ítar­lega yfir sögu fyr­ir­tæk­is­ins, aðstæður og fram­tíð­ar­á­form þess í við­tali við Kjarnann í mars síð­ast­liðnum.

Þar kom fram að Nox Med­ical hafi farið frá því að vera sjö manna teymi með aðstöðu innan veggja Nýsköp­un­ar­mið­stöðv­ar­innar í Kelda­holti fyrir tíu árum í að vera fyr­ir­tæki með tugi vel mennt­aðra og eft­ir­sókn­ar­verðra starfs­manna í dag. Pétur sagði að skipta hafi mátt sögu fyr­ir­tæk­is­ins upp í þrjú tíma­bil.Það fyrsta, árin 2007 til­ 2008 átti sér stað vöru­þró­un. Næstu þrjú hófst tekju­öflun með sölu á vörum og ­stöð­ug­leika var náð. Frá árinu 2012 hefur átt sér stað „grimmur og bratt­ur ­vaxta­fer­ill,“ eins og og Pétur kall­aði hann. Frá þeim tíma hefur fyr­ir­tækið tífaldað veltu sína úr einni milljón evra árið 2011 í nærri tíu millj­ónir evra í fyrra. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins koma nær ein­vörð­ungu frá útflutn­ingi. „Við erum orðin pínu­lítil stór­iðja í sam­heng­i hlut­anna. Veltan í íslenskum krónum í fyrra er á bil­inu 1.500 til 1.600 millj­ónir króna. Við erum samt hvergi hætt. Við erum rétt að byrja. Það eru ­mikil vaxta­tæki­færi í þessum svefn­bransa. Svefn­grein­ing á erindi víða.,“ sagði Pétur.

Helgi Tómasson list­dans­stjóri fékk við sama tæki­færi sér­staka heið­ur­svið­ur­kenn­ingu sem veitt er ein­stak­lingi sem þykir með starfi sínu hafa borið hróður Íslands víða um heim og þannig stuðlað að jákvæðu umtali um land okkar og þjóð. Fyrri hand­hafar þess­ara heið­ursverð­launa eru m.a. Björk, Arnaldur Ind­riða­son og ljós­mynd­ar­inn RAX.

Í frétta­til­kynn­ingu Íslands­stofu vegna verð­laun­anna segir:

„Helgi Tómasson er einn virt­asti dans­fröm­uður heims, og hefur vakið athygli sem bæði dans­ari, list­dans­stjóri og dans­höf­undur í yfir fjör­tíu ár. Í fyrstu alþjóð­legu ball­et­keppn­inni sem haldin var í Moskvu árið 1969 hafn­aði Helgi í öðru sæti á eftir Mikhail Bar­ys­hnikov. Fljót­lega eftir þetta var Helgi ráð­inn til New York City Ballet þar sem hann dans­aði við frá­bæran orðstír í hálfan annan ára­tug.

Árið 1985 lagði Helgi ball­ett­skóna á hill­una og réð sig í stöðu list­ræns stjórn­anda San Francisco-ball­etts­ins, elsta starf­andi list­dans­flokks Banda­ríkj­anna, þar sem hann hefur starfað allar götur síðan. Undir stjórn Helga hefur San Francisco-ball­ett­inn náð þeim árangri að vera í hópi bestu dans­flokka sam­tím­ans, eft­ir­sóttur um allan heim. Sem helsti dans­höf­undur flokks­ins hefur Helgi samið fjölda ball­etta, sem fluttir hafa verið á leik­sviðum um víða ver­öld við fádæma góðar und­ir­tektir."

Útflutn­ings­verð­launin eru nú veitt í 28. sinn en þau voru fyrst veitt árið 1989. Meðal ann­arra fyr­ir­tækja er hlotið hafa verð­launin í gegnum tíð­ina eru Bláa lónið, CCP, Hamp­iðjan, Trefjar ehf og Ferða­skrif­stofa bænda og á síð­asta ári hlaut Icelandair Group verð­launin.

Úthlut­un­ar­reglur kveða á um að Útflutn­ings­verð­laun for­seta Íslands skuli veitt fyr­ir­tækjum eða ein­stak­lingum, íslenskum eða erlendum, fyrir árang­urs­ríkt starf að útflutn­ingi á íslenskum vörum eða þjón­ustu á erlendum mark­aði. Veiting verð­laun­anna tekur mið af verð­mæt­is­aukn­ingu útflutn­ings, hlut­deild útflutn­ings í heild­ar­sölu, mark­aðs­setn­ingu á nýjum mark­aði, ásamt fleiru.

Í úthlut­un­ar­nefnd­inni sátu að þessu sinni: Örnólfur Thorsson, frá emb­ætti for­seta Íslands, Runólfur Smári Stein­dórs­son, frá við­skipta- og hag­fræði­deild Háskóla Íslands, Björgólfur Jóhanns­son frá Við­skipta­ráði, Þórunn Svein­björns­dóttir, frá Alþýðu­sam­bandi Íslands og Vilborg Ein­ars­dóttir frá Íslands­stofu, en Íslands­stofa ber ábyrgð á und­ir­bún­ingi og kostn­aði við verð­launa­veit­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár