Varð að bíða í tíu ár eftir að flytja til fjölskyldunnar

Dönsk stjórn­völd lutu í lægra haldi fyrir tyrk­neskri konu sem hafði í tíu ár beðið eftir að flytja til eig­in­manns og fjög­urra barna í Danmörku.

Þótt tyrk­nesku hjónin þekki lík­lega ekki íslenska máls­hátt­inn „þol­in­mæði þrautir vinnur allar“ á hann sann­ar­lega við um deilu þeirra við dönsk stjórn­völd. Deilu sem staðið hefur frá árinu 2009 en Dómstóll Evr­ópu­sam­bands­ins felldi dóm í máli þeirra fyrir nokkrum dögum. Margir danskir stjór­mála­menn eru mjög ósátt við dóms­nið­ur­stöð­una og segja hana vekja spurn­ingar um sjálf­stæði ESB ríkja.

Hjónin sem um ræðir gift­ust árið 1983 og bjuggu þá í Tyrk­landi. Á næstu árum eign­uð­ust þau fjögur börn. Árið 1998 skildu þau og mað­ur­inn flutti til Dan­merkur þar sem hann fékk tíma­bundið dval­ar­leyfi. Í árs­byrjun 1999 gift­ist hann þýskri konu, búsettri í Danmörku.

Árið 2006 sótti mað­ur­inn um, og fékk, ótíma­bundið dval­ar­leyfi í Danmörku. Það leyfi var veitt á grund­velli reglna Evr­ópu­sam­bands­ins um hjóna­bönd fólks frá löndum ESB og löndum utan þess Það dval­ar­leyfi gilti jafn­framt fyrir börnin fjögur sem voru þá komin til föður síns.

Giftist aftur fyrri konunni

Í júní árið 2009 skildu tyrk­neski mað­ur­inn og þýska konan. Tveimur mán­uðum síðar gift­ist mað­ur­inn, í annað sinn, móður barn­anna fjög­urra, hún var þá búsett í Tyrk­landi. Nokkrum dögum eftir gift­ing­una sótti konan um dval­ar­leyfi í Danmörku. Það gerði hún á grund­velli reglna ESB um fjöl­skyldu­sam­eingu.

Fékk synjun

Í lok maí árið 2010, fékk konan svar frá dönskum yfir­völdum. Þau synj­uðu beiðni hennar um að fá að flytja til manns­ins og barn­anna í Danmörku. Rökin voru þau að „fjöl­skyldu­tengsl“ hennar við Tyrkland væru sterk­ari en við Danmörku. Konan sendi sam­dæg­urs form­lega kvörtun vegna þess­arar ákvörð­unar danskra yfir­valda. Fjórum mán­uðum síðar, 30. sept­em­ber 2010, vís­aði Útlend­inga­ráðu­neytið (eins og það hét þá) kvörtun­inni frá. Ráðu­neytið mat það svo að tengsl fjöl­skyld­unnar væru sterk­ari við Tyrkland en Danmörku og hvatti kon­una til að búa þar áfram og fá tvö yngstu börnin til sín. Ráðu­neytið benti á að árið 2000 hefðu í Danmörku tekið gildi lög um fjöl­skyldu­tengsl umsækj­enda um land­vist­ar­leyfi, með síð­ari tíma við­bótum. Samkvæmt þeim ætti konan ekki rétt á að flytja til Dan­merkur.

Nú lá málið niðri í tæp fjögur ár, eða þangað til í mars árið 2014. Þá óskaði konan eftir því að umsókn hennar um að sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni í Danmörku yrði end­ur­skoðuð. Hún höfð­aði mál fyrir Bæj­ar­rétti í Álaborg í þessu skyni. Dóm­stóll­inn í Álaborg vís­aði mál­inu til Bæj­ar­rétt­ar­ins í Kaup­manna­höfn sem kvað upp þann úrskurð að kona ætti ekki rétt á að fá land­vist­ar­leyfi. Bæj­ar­réttur er lægsta dóm­stig af þremur í Danmörku og konan kærði úrskurð­inn til Eystri – lands­réttar sem stað­festi úrskurð Bæj­ar­rétt­ar­ins.

Dómnum snúið við

Nú leið tím­inn. Tyrk­neska konan og danskur lög­maður hennar höfðu hins­vegar ekki lagt árar í bát og í mars á þessu ári kom málið til kasta Evr­ópu­dóm­stóls­ins (dóm­stóls ESB) í Lúx­em­borg. Þar gengu hlut­irnir hratt fyrir sig og síð­ast­lið­inn mið­viku­dag (10. júlí) kvað dóm­stóll­inn upp þann úrskurð að nið­ur­stöður danskra dóm­stóla um synjun á beiðni kon­unnar stæð­ust ekki. Dómurinn byggir nið­ur­stöðu sína á sam­komu­lagi frá árinu 1980 milli Dan­merkur og Tyrk­lands. Sam­komu­lagið var við­bót við eldri samn­ing milli land­anna, frá sjö­unda ára­tugnum. Í við­bót­inni segir að hvorki Danmörk né Tyrk­landi geti gert breyt­ingar á upp­haf­lega sam­komu­lag­inu milli land­anna varð­andi fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. Síðari tíma ein­hliða við­bætur danskra stjórn­valda (strang­ari reglur) stæð­ust sem sé ekki.

Sprengja í vegkantinum eða borðsprengja

Danskir stjórn­mála­menn höfðu lengi vitað að „fjöl­skyldu­sam­ein­ing­ar­málið“ kæmi til kasta Evr­ópu­dóm­stóls­ins. Seint á síð­asta ári sagði Mattias Tesfaye, sem þá var tals­maður jafn­að­ar­manna (sem voru í stjórn­ar­and­stöðu) í mál­efnum útlend­inga að ef allt færi á versta veg (eins og hann orð­aði það) gæti dóms­nið­ur­staðan orðið til þess að end­ur­skoða yrði þús­undir ákvarð­ana danskra stjórn­valda. Þetta er mál sem stjórn­völd verða að búa sig undir. Nú er Mattias Tesfaye orð­inn ráð­herra útlend­inga­mála í stjórn Mette Frederik­sen. Í við­tali við Danska sjón­varpið, DR, eftir að dóm­ur­inn féll, sagði ráð­herr­ann að það væri aldrei gott að fá á sig dóm. Nú yrði að fara vand­lega yfir dóm­inn og það sem kæmi fram í honum til að átta sig á hvaða afleið­ingar nið­ur­staðan gæti haft. Hvort þetta væri stór bomba í veg­kant­inum eða bara pínu­lítil borð­sprengja.

Ráð­herr­ann lagði áherslu á að Danir myndu áfram halda sig við ströng skil­yrði varð­andi land­vist­ar­leyfi útlend­inga.

Hver á að ráða?

Morten Messerschmidt, þing­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins og tals­maður hans í mál­efnum Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði að ráð­herra útlend­inga­mála yrði strax að bregð­ast við og útskýra áætl­anir stjórn­ar­innar fyrir þing­heimi.

„Það veldur áhyggjum að Evr­ópu­dóm­stóll­inn skuli geta blandað sér í stefnu Dana í mál­efnum útlend­inga. Við höfum árum saman fengið að vita að það væri danska þingið, Fol­ket­inget, sem tæki allar ákvarð­anir í slíkum málum en það gildir greini­lega ekki. Við það getum við ekki unað“ sagði Morten Messerschmidt.

Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke Rasmus­sen, sagði að stefnu Dana í mál­efnum útlend­inga ætti Danska þingið að ákveða og hún væri mjög ósátt við dóm­inn. Hún sagð­ist vænta þess að rík­is­stjórnin myndi innan skamms upp­lýsa hvaða áhrif nið­ur­staða dóm­stóls­ins hefði, einkum varð­andi fjölda þeirra Tyrkja sem hugs­an­lega væru í sömu stöðu og tyrk­nesku hjónin.

Hjónin hafa ekki tjáð sig um dóm­inn og danskur lög­maður kon­unnar hefur ekki viljað ræða við fjöl­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár