Miðflokkurinn vill að þing verði kallað saman milli jóla og nýárs til að ræða bóluefni

Þing­flokkur Mið­flokks­ins segir rík­is­stjórn­ina stuðla að upp­lýs­inga­óreiðu og sýna ráða­leysi þegar kemur að því að upp­lýsa almenn­ing um stöðu mála varð­andi komu bólu­efna.

Hluti þingflokks Miðflokksins.
Hluti þing­flokks Mið­flokks­ins. Mynd: Facebook / Miðflokkurinn

Þing­flokkur Mið­flokks­ins fer fram á að Alþingi verði kallað sama í síð­asta lagi mánu­dag­inn 28. des­em­ber næst­kom­andi. Fundum Alþingis var frestað 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn í mánuð, eða til 18. jan­úar 2021.

Mið­flokk­ur­inn segir í til­kynn­ingu að nauð­syn­legt sé að kalla þing fyrr saman en stóð til í „ljósi þeirrar óvissu sem nú er uppi varð­andi komu bólu­efna vegna COVID-19 hingað til lands“. Þing­heimur þurfti að fá tæki­færi til að ræða málið við rík­is­stjórn­ina.

Flokk­ur­inn telur að mjög mis­vísandi upp­lýs­ingar hafi birst um þá samn­inga sem gerðir hafi verið við bólu­efn­is­fram­leið­endur und­an­farna daga og um hvernig bólu­setn­ingu verði háttað. „Þar veg­ast upp­lýs­inga­óreiða og ráða­leysi stjórn­valda á.“

Að mati Mið­flokks­ins verður rík­is­stjórnin að veita sem fyrst „áreið­an­legar og nákvæmar upp­lýs­ingar um hver raun­veru­leg staða er á samn­ingum um virk og not­hæg bólu­efni og hvernig bólu­setn­ing þjóð­ar­innar mun ganga fyrir sig og hvenær þess er að bæta að þjóð­líf geti færst í hefð­bundið ástand. Rík­is­stjórnin verður að gefa skýr­ingar á því hvort öll úrræði þ.m.t. aðkoma einka­fyr­ir­tækja að útvegun bólu­efnis hafa verið nýtt.“

Janssen bóluefnið kemur ekki fyrr á þriðja ársfjórðungi 2021

Ísland und­ir­rit­aði í gær samn­ing um bólu­efni frá lyfja­fram­leið­and­anum Janssen. Um er að ræða þriðja samn­ing íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda um kaup á bólu­efnum við COVID-19, en hann tryggir bólu­efni fyrir 235 þús­und ein­stak­linga. Áður höfðu íslensk stjórn­völd gert samn­ing um bólu­efni frá Pfizer fyrir um 85 þús­und manns og Astra Zeneca fyrir um 115 þús­und manns.

[adspot]Bólu­efni Janssen, sem verður fram­leitt af lyfja­fram­leið­and­anum Johnson & Johnson, er í fasa III próf­unum og áformað er að Evrópsa lyfja­stofn­unin gefi út álit, sem er for­senda mark­aðs­leyfis fyrir efn­ið, í febr­úar 2021. Áætlað er að byrja afhend­ingu á þessu bólu­efni á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2021, sem hefst í júlí á næsta ári.

Í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu sagði að þátt­taka Íslands í sam­starfi Evr­ópu­þjóða um kaup á bólu­efnum í gegnum samn­inga fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins tryggi Íslandi hlut­falls­lega sama magn bólu­efna og öllum öðrum þjóðum sem taka þátt í sam­starf­inu. „Fram­kvæmda­stjórnin kveður á um hve mikið ríkin fá og er þar alfarið byggt á hlut­falls­legri úthlutun miðað við höfða­tölu hverrar þjóð­ar. Heil­brigð­is­ráðu­neytið vinnur að loka­gerð samn­ings við lyfja­fram­leið­and­ann Moderna og er ráð­gert að und­ir­rita hann 31. des­em­ber næst­kom­and­i.“

Fyrstu skammtar frá Pfizer væntanlegir

Fyrsta bólu­efnið sem Ísland fær verður frá Pfizer. Samn­ingar við það fyr­ir­tæki voru und­ir­rit­aðir 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn og Evr­ópska lyfja­stofn­unin veitti bólu­efn­inu skil­yrt mark­aðs­leyfi í vik­unni. Ísland fær 170 þús­und skammta af bólu­efn­inu en hver ein­stak­lingur mun þurfa tvo skammta. Það dugar því fyrir 85 þús­und manns. Bólu­efnið frá Pfizer kemur þó ekki allt í einu hingað til lands. Stefnt er að því að afhend­ing hefj­ist fyrir árs­lok og að fyrsta send­ing verði tíu þús­und skammt­ar.

[links]Bólu­efni Moderna verður lík­ast til næst til að koma á mark­að. Fasa III próf­unum á því er lokið og áætlað er að Evr­ópska lyfja­stofn­unin haldi mats­fund vegna Moderna bólu­efn­is­ins 6. jan­úar næst­kom­andi. Ísland hefur ekki samið við Moderna en við­ræður eru í gangi og stefnt er á und­ir­ritun samn­ings á gaml­árs­dag.

Astra Zeneca hefur líka lokið fasa III próf­un­um. Virkni þess bólu­efnis er þó minni en hjá Pfizer og Moderna. ekki liggur fyrir hvenær Evr­ópska lyfja­stofn­unin mun gefa út álit á bólu­efn­inu, en stefnt er að því að byrja að afhenda skammta í Evr­ópu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2021. Ísland fær, líkt og áður sagði, efni sem dugar fyrir 115 þús­und ein­stak­linga það­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár