„Það er svona sem A+ einkunnaspjald lítur út“

Samkvæmt gögnum sem Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna hefur birt veitir bólu­efni Pfizer og BioNtech góða vörn gegn COVID-19 innan við tíu dögum eftir að fólk fær fyrri spraut­una. Virknin er talin jafn góð óháð aldri, kyni og kyn­þætti.

William Shakespeare og Margaret Keenan voru fyrstu Bretarnir sem fengu bóluefni gegn COVID-19 í almennri bólusetningu.
William Shakespe­are og Margaret Keenan voru fyrstu Bret­arnir sem fengu bólu­efni gegn COVID-19 í almennri bólu­setn­ingu. Mynd: EPA

Myndir af fyrsta fólk­inu sem var bólu­sett fyrir COVID-19 í Bret­landi á þriðju­dag hring­sól­uðu þegar í stað um heim­inn á for­síðum blaða, í sjón­varpi og á net­miðlum. Gjörn­ing­ur­inn veitir mörgum von um að far­ald­ur­inn verði senn á enda. Og það er til­efni til þess­arar bjart­sýni. Bóluefni, sem þróuð hafa verið á met­tíma, eru í þann mund að koma á markað víða.

En það er þó mik­il­vægt að fagna ekki of snemma. Þau Margaret Keenan, níræður fyrrum skart­gripa­sali, og hinn rúm­lega átt­ræði William Shakespe­are, (já, hann heitir það) voru þau fyrstu í Bret­landi til að fá fyrri spraut­una af bólu­efni Pfizer og BioNtech. Þau verða þó, líkt og aðrir sem þegar hafa fengið bólu­efnið, að gæta að sótt­vörnum, s.s. fjar­lægð­ar­mörkum og hand­þvotti, áfram eða þar til búið er að bólu­setja mik­inn meiri­hluta þjóð­ar­innar. Því stað­reyndin er sú að þótt bólu­efnið veiti níu af hverjum tíu sem það fá góða vörn gegn því að veikj­ast er enn ekki að fullu vitað hvort að þeir sem það fái geti smitað aðra sem enn eru næmir fyrir veirunni.

Enn er því langt í land þar til hið eft­ir­sótta hjarð­ó­næmi næst í sam­fé­lögum heims­ins og meðal jarð­ar­búa í heild. En fyrsta skrefið hefur verið stigið.

[adspot]

Yfirvöld í Bret­landi gáfu Pfizer og BioNtech sér­stakt neyð­ar­leyfi til að hefja dreif­ingu bólu­efnis síns þar í landi. Evrópska lyfja­stofn­unin er enn að fara yfir nið­ur­stöður rann­sókna á efn­inu. Sömu sögu er að segja um Matvæla- og lyfja­stofnun Banda­ríkj­anna (FDA) sem þó færði góðar fréttir af sínu eft­ir­lits­ferli í vik­unni. Samkvæmt gögnum sem stofn­unin birti veitir bólu­efni fyr­ir­tækj­anna góða vörn gegn COVID-19 innan við tíu dögum eftir að fólk fær fyrri spraut­una.

Um er að ræða nið­ur­stöður sem ekki hafa áður verið gefnar út. Þegar hafði Pfizer upp­lýst að sam­kvæmt rann­sóknum hefði bólu­efnið gefið 95 pró­sent þeirra sem tóku það í próf­unum vörn eftir báðar spraut­urnar sem gefnar eru með þriggja vikna milli­bili.

[links]Þá þykir einnig fagn­að­ar­efni að bólu­efnið gaf góða virkni óháð kyn­þætti, þyngd og aldri þátt­tak­enda í próf­un­unum. Þó að sjálf­boða­lið­arnir sem fengu efnið hafi ekki fundið fyrir alvar­legum auka­verk­unum fengu margir þeirra væg ein­kenni á borð við hita og verki eftir að hafa fengið það, sér­stak­lega eftir seinni spraut­una. Það gæti því verið ráð að taka sér frí frá vinnu í sól­ar­hring.

„Það er svona sem A+ ein­kunna­spjald lítur út þegar bólu­efni á í hlut,“ hefur New York Times eftir Akiko Iwasaki, ónæm­is­sér­fræð­ingi við Yale-háskóla um fyrstu nið­ur­stöður FDA.

Lyf og bólu­efni fá ítar­lega skoðun hjá FDA áður en þau koma á markað. Í næsta skrefi mun ráð­gjafa­ráð stofn­un­ar­innar fara yfir öll gögn máls­ins og skera úr um hvort að mælt verði með því að heim­ila almenna bólu­setn­ingu með bólu­efni Pfizer og BioNtech. Ráðið mun koma saman í dag, fimmtu­dag, til að ráða ráðum sínum.

44 þús­und sjálf­boða­liðar í Banda­ríkj­unum, Brasilíu og Argent­ínu tóku þátt í próf­unum á bólu­efni Pfizer og BioNtech. Helm­ingur þeirra fékk sjálft bólu­efnið en aðrir fengu lyf­leysu.

Óvissuþættir enn til staðar

Nokkrir óvissu­þættir eru þó enn til staðar. Í fyrsta lagi er ekki vitað með vissu hversu lengi vörnin sem fyrri sprautan af bólu­efn­inu gefur varir. Því er talið nauð­syn­legt að gefa það tvisvar eins og áður segir og rann­sóknir lyfja­fyr­ir­tækj­anna þykja sýna að þá mynd­ist góð og langvar­andi vörn.

Þá hafa margir sér­fræð­ingar viðrað þær áhyggjur sínar að bólu­efnið kunni að verja ákveðna hópa fólks betur en aðra. En þau gögn sem FDA birti í gær benda ekki til þess. Samkvæmt þeim verkar bólu­efnið jafnt á konur sem karla, óháð kyn­þætti þeirra. Þá er það talið verja offitu­sjúk­linga vel gegn sjúk­dómnum en sá hópur fólks er tal­inn í mik­illi hættu á að veikj­ast alvar­lega af COVID-19.

Sum bólu­efni gegn öðrum sjúk­dómum veita minni vörn eftir því sem fólkið sem þau fá er eldra. En sam­kvæmt rann­sókn­ar­nið­ur­stöðum Pfizer og BioNtech ver bólu­efnið fólk yfir 65 ára aldri jafn vel og yngra fólk.

„Ég fór að skjálfa þegar ég las þetta,“ hefur New York Times eftir Gregory Poland, bólu­efna­sér­fræð­ingi við Mayo Clinic. „Þetta er alslemma hvað alla mæli­kvarða snertir.“

Niðu­staða FDA á þessum stað í leyf­is­ferl­inu er sú að ekk­ert bendi til alvar­legra heilsu­far­s­vanda­mála í tengslum við bólu­efnið. Prófanir Pfizer og BioNtech munu halda áfram, jafn­vel þótt að FDA leyfi dreif­ingu bólu­efn­is­ins og notkun í Banda­ríkj­unum. Áfram verður fylgst með sjálf­boða­lið­unum sem fengu bólu­efnið í próf­unum með lang­tíma­virkni þess og öryggi í huga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár