Heppni, samvinna, peningar – og meiri peningar

Hingað til hefur tekið mörg ár og stundum ára­tugi að þróa bólu­efni. En innan við ári eftir að sjúk­dómur vegna nýrrar kór­ónu­veiru fór að herja á fólk eru fleiri en eitt bólu­efni til­búin. Hvernig í ósköp­unum stendur á því?

Litli gaddaboltinn, kórónuveiran sem veldur COVID-19, verður von bráðar afvopnuð.
Litli gadda­bolt­inn, kór­ónu­veiran sem veldur COVID-19, verður von bráðar afvopnuð. Mynd: EPA

Árið 1951 varð Max Theiler fyrsti vís­inda­mað­ur­inn til að fá Nóbels­verð­launin fyrir þróun bólu­efnis. Enginn annar hefur hlotið þá við­ur­kenn­ingu fyrir slíkt sam­bæri­legt afrek síðan þá þó að mörg árang­urs­rík bólu­efni hafi litið dags­ins ljós.

Gulusótt hefur herjað á mann­kynið í að minnsta kosti fimm hund­ruð ár og í lok nítj­ándu aldar var hún vel þekkt bana­mein margra. Hins vegar var þá lítið vitað um sjálfan sjúk­dóm­inn og sér­fræð­ingar þess tíma héldu að um bakt­er­íu­sýk­ingu væri að ræða og til­raunir voru gerðar til að búa til bólu­efni með það í huga.

Árið 1918, sama ár og spænska veikin varð að far­aldri, töldu vís­inda­menn við Rockerfeller-stofn­un­ina sig loks hafa náð að þróa árang­urs­ríkt bólu­efni gegn gulu­sótt. Rann­sóknir Max Theiler leiddu hins vegar í ljós tæpum ára­tug síðar að bólu­efnið væri ekki að skila árangri og fram­leiðslu þess var hætt. Enn leið ára­tugur þar til Theiler náði þeim árangri að þróa virkt og öruggt bólu­efni gegn gulu­sótt og er það notað enn þann dag í dag.

[adspot]

Þetta er aðeins eitt dæmi um hversu langan tíma hefur tekið að þróa bólu­efni við smit­sjúk­dómum í gegnum tíð­ina. Þró­un­ar­ferlið hefur oft spannað mörg ár og jafn­vel ára­tugi. Það þóttu því stór­tíð­indi þegar það tókst að þróa bólu­efni gegn hettu­sótt á aðeins fjórum árum á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Ekkert annað bólu­efni hefur tekið jafn stuttan tíma að þróa.

Þar til nú.

Og það eru margar ástæður fyrir því að bólu­efni gegn COVID-19 er til­búið – um ári eftir að sjúk­dóm­ur­inn var fyrst greindur í fólki. Tvö lyfja­fyr­ir­tæki hafa þegar sótt um mark­aðs­leyfi í nokkrum löndum. Um svokölluð neyð­ar­leyfi verður að ræða, vegna þess hve þörfin er brýn. Annað þess­ara fyr­ir­tækja, Pfizer í sam­starfi við BioNtech, hefur þegar hafið dreif­ingu á bólu­efni sínu í Bret­landi.

Krafta­verk segja sumir. Vís­inda­legt þrek­virki segja aðrir. Peningar og meiri pen­ingar. Enginn þarf að velkj­ast í vafa um að þeir hafa skipt sköpum við rann­sóknir og þróun bólu­efn­anna gegn COVID-19.

Í raun má segja að tek­ist hafi að búa til bólu­efni á innan við ári sem undir „venju­legum kring­um­stæðum“ hefði tekið ára­tug. Þó var það ekki þannig að lyfja­fyr­ir­tækin og þeirra sam­starfs­að­ilar væru að stytta sér leið við þró­un­ina, prófun á bólu­efnum sínum eða í fram­leiðsl­unni.

Öll dýrin í skóginum eru vinir

Eitt þeirra lyk­il­at­riða sem varð til þess að svo hratt var hægt að þróa bólu­efni er að vís­inda­menn, rann­sókn­ar­stofur og lyfja­fyr­ir­tæki opn­uðu aðgang sín á milli að gögnum sem aflað var um veiruna, s.s erfða­efni hennar og ítar­legar rað­grein­ingar. Það lögð­ust sem sagt allir, eða að minnsta kosti flestir, á eitt í því sam­eig­in­lega verk­efni að útrýma far­aldri kór­ónu­veirunnar.

Hvernig bólu­efnið er búið til er annað lyk­il­at­riði. Þær aðferðir sem beitt var eru nýstár­legar og þar til nú hefur ekk­ert bólu­efni byggt á þeim komið á markað.

Aðferðir til að búa til bólu­efni eru fjöl­breyttar. Við gerð þeirra hafa til dæmis verið not­aðar bækl­aðar veirur en nokkur þeirra bólu­efna gegn COVID-19 sem lengst eru komin í þróun byggja á erfða­efni (kjarna­sýru) veirunnar.

Nýjar aðferðir

Erfða­efni manna er í DNA-formi en erfða­efni veirunnar í RNA-formi. Nýja kór­ónu­veiran er svo í raun ekki sér­stak­lega flókin. Hún er byggð úr fjórum bygg­ing­ar­próteinum, fitu­efnum og tæp­lega 30 þús­und kirna RNA-sam­eind. Í RNA-sam­eind­inni er geymd upp­skrift að 29 próteinum sem veiran notar bæði sem bygg­ing­ar­ein­ingar en líka sem „vopn í lífs­bar­áttu sinni þegar hún fer inn í frumur [fólks], sýkir þær og nýtir til að fjöl­falda sjálfa sig og síðan kom­ast í aðrar frumur,“ líkt og mann­erfða­fræð­ing­ur­inn Agnar Helgason lýsti svo vel á ráð­stefnu Íslenskrar erfða­grein­ingar í maí.

Tvö þeirra þriggja lyfja­fyr­ir­tækja sem komin eru lengst í þróun sinna bólu­efna nota svo­kall­aða mRNA-tækni sem felst í því að ein­angra eitt prótein hennar. En þegar því er svo sprautað í fólk veik­ist það ekki heldur myndar lík­am­inn mótefni.

Upp­skriftin að erfða­efni veirunnar var fljótt aðgengi­leg öllum vís­inda­mönnum og það áður en hún var farin að breið­ast mikið út fyrir Kína svo vitað sé. Þess vegna gátu vís­inda­menn hafið und­ir­bún­ing að gerð bólu­efnis fljót­lega eftir að veiran upp­götv­að­ist. Og hin nýja aðferð, að nota erfða­efni veirunnar en ekki veikl­aða veiru eða hluta af veikl­aðri veiru, hafði einnig verið í þróun lengi.

Peningar og meiri peningar

Enn ein skýr­ingin er pen­ingar. Þegar vís­inda­menn voru að fást við sjúk­dóma á borð við ebólu, sem herj­aði á á árunum 2014-2015, vant­aði pen­inga til rann­sókn­anna. Þess vegna gekk þróun lyfja og bólu­efnis mjög hægt.

En núna flæða pen­ing­arnir inn. Og einn helsti mis­skiln­ing­ur­inn varð­andi þróun bólu­efnis gegn COVID-19 er sá að hún hafi haf­ist dag­inn sem far­ald­ur­inn braust út.

„Heims­byggðin hefði átt að gera betur,“ segir Sarah Gilbert, pró­fessor við Oxford-háskóla og arki­tekt­inn að bólu­efni því sem skól­inn er að þróa í sam­starfi við lyfja­fyr­ir­tækið Astra Zeneca. Í kjöl­far ebólu-far­ald­urs­ins ein­settu vís­inda­menn­irnir við Oxford-háskóla sér að gera betur næst þegar far­aldur bryt­ist út. Þeir settu saman áætlun um hvernig takast mætti á við „sjúk­dóm X“ – sjúk­dóm sem myndi spretta upp og herja á fólk að því er virð­ist fyr­ir­vara­laust.

Sá sjúk­dómur reynd­ist vera COVID-19.

„Við reyndum að und­ir­búa okkur svo að við gætum brugð­ist mjög hratt við og haft til­búið bólu­efni á sem skemmstum tíma, segir Gilbert í sam­tali við BBC. „Und­ir­bún­ings­vinn­unni var ekki lokið en við vorum komin langt á veg.“

Gerðu grunn og bættu við hann

Það sem vís­inda­menn­irnir vildu gera var að skapa vís­inda­legan grunn, bygg­ing­ar­ein­ingu, sem væri sveigj­an­legur þegar hinn óþekkti sjúk­dómur myndi koma fram á sjón­ar­sviðið.

Oxford-hóp­ur­inn notar ekki hefð­bundna aðferð við að þróa sitt bólu­efni en heldur ekki þá sömu og Pfizer og Moderna nota – þau tvö fyr­ir­tæki sem þegar hafa sótt um mark­aðs­leyfi í Evrópu, í Banda­ríkj­unum og víðar. Þess í stað bjuggu vís­inda­menn skól­ans til það sem þeir kalla hinu mjög svo óþjála nafni: ChAdOx1. Þeir tóku algenga kvef­veiru sem sýkti simpansa og gerðu úr henni bygg­ing­ar­ein­ingu fyrir bólu­efni gegn næstum því hverju sem er. Áður en COVID-19 far­ald­ur­inn braust út höfðu 330 manns fengið bólu­efni byggt á ChAdOx1 gegn ýmsum veiru­sjúk­dómum á borð við inflú­ensu og zika.

Þar sem kvef­veiran er upp­runnin í simpönsum og hefur verið erfða­breytt getur hún ekki orsakað sýk­ingu í fólki. Upp­skrift hennar er, fræði­lega séð, svo hægt að breyta til að kalla fram við­brögð ónæm­is­kerf­is­ins. Eða eins og vís­inda­menn­irnir segja í stuttu máli: ChAdOx1 er í grunn­inn eins og smá­gerður póst­burð­ar­maður. Allt sem þarf svo að gera er að breyta inni­haldi pakk­ans sem hann afhendir.

Sjúkdómur X

„Við vorum að und­ir­búa okkur fyrir sjúk­dóm X, við höfðum verið að bíða eftir sjúk­dómi X, og mig grun­aði strax að veiru­sýk­ingin sem upp kom í Kína gæti verið sá sjúk­dómur,“ segir Gilbert en hún og teymi hennar hófust handa í byrjun jan­úar við að afla gagna og hefja rann­sóknir á veiru­sýk­ing­unni sem komið hafði upp í Wuhan-borg í Kína.

Þau gátu ekki ímyndað sér að sjúk­dóm­ur­inn yrði að far­aldri en þau vildu nota þetta tæki­færi til að láta reyna á ChAdOx1-tækn­ina.

Og vís­inda­menn voru ekki alveg á byrj­un­ar­reit hvað þessa til­teknu veiru varð­aði. Þeir segja „heppi­legt“ að hún hafi verið úr hinni þekktu kór­ónu­veiru­fjöl­skyldu en veirur úr henni höfðu valdið far­öldrum árin 2002 (SARS) og árið 2012 (MERS). Það var því vitað tölu­vert um hvernig veiran kæmi til með að haga sér og einnig var vitað hvert helsta vopn hennar en jafn­framt Akki­les­ar­hæll væri: Gadda-próteinið.

„Við vorum með for­skot,“ segir Andrew Pollard, annar pró­fessor í Oxford-teym­inu. Kór­ónu­veirur draga nafn sitt af útliti sínu. Þær líta í raun út eins og gadda­boltar. Í kór­ón­unni sem umlykur þær eru gaddar sem þær nota til að kom­ast inn í frumur lík­am­ans. Vís­inda­menn vissu að fræði­lega séð gæti bólu­efni byggst á því að fá ónæm­is­kerfið til að ráð­ast gegn gödd­unum. Oxford-teymið hafði þegar notað ChAdOx1-grunn­inn til að þróa bólu­efni gegn MERS.

Í fyrstu vant­aði fjár­magn til rann­sókn­anna og það var ekki fyrr en í apríl að pen­ing­arnir fóru að streyma inn. Til­raunir á dýrum voru fyrst gerðar og í lok apríl hófust próf­anir á bólu­efn­inu í mönnum. Engu skrefi í þró­un­ar­ferl­inu var sleppt en vegna fjár­magns var hægt að hefja hvert þeirra á fætur öðru. Á loka­stigi rann­sókna tóku yfir 30 þús­und manns þátt í próf­unum.

Einn stór misskilningur

En fyrst hægt var að þróa bólu­efni á svo skömmum tíma, hvers vegna er það ekki oftar gert?

Það er mis­skiln­ingur að það verði að taka ára­tug að þróa bólu­efni, segir lækn­ir­inn Mark Toshner sem hefur tekið þátt í rann­sóknum á bólu­efnum við Cambridge-háskóla. Á tíu ára þró­un­ar­tíma­bili er mik­ill „dauður tími“ þar sem „ekk­ert er að ger­ast“. Biðstaða.

Gríð­ar­legur tími fer í að sækja um styrki og ann­ars konar fjár­mögnun. Þeim umsóknum er oft hafnað og það þarf að sækja um aftur eða ann­ars staðar. Þá þarf að sann­færa fólk um að taka þátt í próf­unum, semja við lyfja­fram­leið­endur og þar fram eftir göt­unum. Toshner segir að þetta allt verði til þess að það geti liðið mörg ár á milli rann­sókn­ar­stiga.

„Ferlið er ekki langt af því að það þarf að vera það eða af því að það er örugg­asta leiðin, heldur af því að við búum í hinum raun­veru­lega heimi,“ segir hann við BBC.

[adspot]

Þá hefur leyfis-ferl­inu einnig verið hraðað og það svo um munar. Á meðan bólu­efni Oxford-teym­is­ins var enn í prófun hófu eft­ir­lits­að­ilar að skoða þegar fram komin gögn. Þetta símat á rann­sókn­ar­gögn­unum hefur því stytt ferlið. Umsóknir um leyfi eru svo sann­ar­lega ekki látnar bíða dögum, vikum eða mán­uðum saman áður en farið er vand­lega yfir þær. Þær fara efst í bunka eft­ir­lits­að­ila og eru eflaust merktar: Áríðandi.

„Leitin að bólu­efni tók yfir líf mitt,“ við­ur­kennir Teresa Malbe, rann­sak­andi við Oxford-háskóla, í sam­tali við tíma­ritið Nature. Hún tók þátt í þróun bólu­efn­is­ins frá upp­hafi. „Ég hef aldrei unnið jafn mikið í líf­inu. Ef ég gæti farið aftur í tím­ann og gefið sjálfri mér ráð í byrjun jan­úar myndi ég segja: Taktu nokkra frí­daga.“

Þannig hefur því eflaust verið farið með fjöl­marga vís­inda­menn um heim allan sem hafa lagt gríð­ar­lega mikið á sig til að finna lækn­ingu eða bólu­efni gegn COVID-19, sjúk­dómnum sem eng­inn vissi af fyrir ári en mun von­andi láta í minni pok­ann fyrir vís­ind­unum fljót­lega.

Litli gadda­bolt­inn verður senn afvopn­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár