Aðeins tuttugu ný smit greind

Aðeins tutt­ugu ný smit af kór­ónu­veirunni hafa greinst á Íslandi síð­asta sól­ar­hring­inn. Mun færri sýni eru tekin á hverjum degi en dag­ana á undan. Staðfest smit eru nú 588.

Staðfest smit af nýju kór­ónu­veirunni eru nú orðin 588 hér á landi. Í gær voru þau 568 og hefur þeim því fjölgað um 20 á rúm­lega einum sól­ar­hring. Í dag eru 6.816 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 6.340. Tæplega 1.200 manns hafa lokið sótt­kví.

Nú liggja fjórtán á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins. Á síð­unni Covid.is kemur fram að 36 hafi náð sér af sjúk­dómnum.

Flest smit eru nú svokölluð inn­an­lands­smit eða 249. Smit sem rekja má beint til veru erlendis eru 195 og smit af óþekktum upp­runa eru 144.

Í dag hafa 10.301 sýni verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins, þar af 183 síð­asta sól­ar­hring­inn. Öll voru þau tekin á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans.

[adspot]

Færri sýni hafa verið tekin síð­ustu sól­ar­hringa en dag­ana á undan vegna yfir­vof­andi skorts á sýna­tökupinnum sem nauð­syn­legir eru til rann­sókn­anna. Sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að von­ast væri til að send­ing af pinnum komi til lands­ins í þess­ari viku.

Hann sagði einnig að tölur yfir smit hér á landi gætu sveifl­ast milli daga af mörgum ástæðum. Ein þeirra væri ein­fald­lega fámennið á Íslandi. Nokkur hópsmit síð­ustu daga gætu hafa skýrt mikla aukn­ingu í fjölda smita í gær og fyrra­dag.

2.500-6.000 gætu sýkst fyrir apríllok

Spá yfir fjölda til­fella og álag á heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi hefur breyst veru­lega frá því 19. mars þar sem far­ald­ur­inn er í veld­is­vexti og frá þeim tíma hefur fjöldi til­fella allt að því tvö­fald­ast.

Þetta sýnir spálíkan sem vís­inda­menn við Háskóla Íslands hafa þróað í sam­starfi við Land­lækn­is­emb­ættið, Land­spít­ala og sótt­varna­yf­ir­völd vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

[links]Helstu nið­ur­stöður spálík­ans­ins með gögnum til og með 22. mars eru eft­ir­far­andi:

Búist er við því að fyrir lok apríl 2020 hafi lík­lega um 2.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð tæp­lega 6.000 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Búist er við að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki á fyrstu vikum apríl, og verði senni­lega nær 2.000 manns, en gæti náð tæp­lega 4.500 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Búist er við að á meðan að far­ald­ur­inn gengur yfir muni um 170 manns þarfn­ast aðhlynn­ingar í inn­lögn á sjúkra­húsi, en gæti náð um 400 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár