Metnaðarleysi, tækifæri, snillingar, svipur og réttlát umskipti í loftslagsmálum

Í kapp­ræðum um lofts­lags­mál á RÚV tók­ust stjórn­mála­leið­togar tíu flokka á um mis­mun­andi leiðir til þess að stýra Íslandi að mark­miðum í lofts­lags­málum, árang­ur­inn hingað til, mark­miðin sjálf og það hverjir eigi að bera byrð­arnar.

Bæði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Logi Einarsson gagnrýndu Katrínu Jakobsdóttur fyrir árangur og stefnu ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Bæði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Logi Ein­ars­son gagn­rýndu Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir árangur og stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna tal­aði bæði til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar og leið­toga sam­starfs­flokka sinna í rík­is­stjórn er full­trúar tíu flokka ræddu um lofts­lags­mál í sjón­varps­sal Rík­is­út­varps­ins í kvöld, sem var fyrsta mál­efnið á dag­skrá í þætt­inum.

Hún vís­aði gagn­rýni þess fyrst­nefnda á bug og kom því á fram­færi við félaga sína við rík­is­stjórn­ar­borðið að Vinstri græn vildu ganga lengra í lofts­lags­málum en rík­is­stjórnin hefur gert til þessa.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hafði gagn­rýnt stjórn­völd fyrir metn­að­ar­leysi í lofts­lags­málum og sagt að áskor­anir fram­tíðar í lofts­lags­málum þyrftu á meira sam­stíga rík­is­stjórn að halda en þeirri sem Katrín hefur leitt síð­ustu síð­ustu ár, til þess að hægt væri að sætt­ast á eitt­hvað meira en minnsta sam­nefn­ara.[links]

Katrín sagði hins vegar að með aðkomu Vinstri grænna að rík­is­stjórn hefði Ísland náð miklum árangri í lofts­lags­málum, en um leið að VG væru búin að fara yfir skýrslu IPCC um lofts­lags­mál og væru nú búin að segja að það þyrfti að ganga lengra.

Flokk­ur­inn boð­aði nú, rétt eins og Sam­fylk­ingin, að draga ætti úr losun um 60 pró­sent fram til árs­ins 2030. „Við þurfum að tryggja að Ísland verði óháð jarð­efna­elds­neyti fyrir 2045,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Þarf að virkja meira?

Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gaf ekki mikið fyrir spurn­ingu Jóhönnu Vigdísar Hjalta­dóttur þátt­ar­stjórn­anda Rík­is­út­varps­ins, sem sner­ist um það hvort lofts­lags­málin væru helsti átaka­punkt­ur­inn á milli Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins og virt­ist hálf hvumsa yfir þeirri fram­setn­ingu. „Ég myndi ekki segja það, alls ekki,“ sagði Bjarni.

Hann sagði heim­inn æpa á lausnir í lofts­lags­málum og að Íslandi ætti mikið af snill­ingum á sviði jarð­varma- og vatns­afls. „Við erum til­búin til þess að virkja meira og við eigum marga ónýtta virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokki. Vind­orkan er val­kostur sem við þurfum að fara að skoða af mik­illi alvöru,“ sagði Bjarni, sem telur Ísland geta orðið leið­andi á þessu sviði.

Vísaði hann sér­stak­lega til fréttar sem birt­ist á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag um mögu­leik­ann á vetn­is­verk­smiðju á vegum franska fyr­ir­tæk­is­ins Qair á Grund­ar­tanga, sem Tryggvi Þór Her­berts­son fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins er í for­svari fyrir hér á landi.

„Ef við ætlum í alvöru orku­skipti og hætta að kaupa olíu af Norð­mönnum og fá hana hingað í tank­skipum, segja nei takk við því, þá verður eitt­hvað að koma í stað­inn og þá verður að vera vilji til þess að nýta aflið í land­inu,“ sagði Bjarni en komst ekki mikið lengra, þar sem Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir full­trúi Pírata í kapp­ræð­unum stökk inn í orð­ræðu hans og sagði að ekki þyrfti að virkja meira til þess að orku­skipti gætu átt sér stað.

Viðreisn vill að stjórnvöld beiti á sig svipu en Framsókn síður

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar sagði að flokk­ur­inn vildi flétta umhverf­is­málin inn í alla mála­flokka. Hún sagði að ný rík­is­stjórn ætti að setja nýja fram tölu­setta aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum á hverju ári, setja svip­una á sig sjálf svo að stjórn­mála­menn gætu ekki komið fyrir kosn­ingar og lofað ein­hverjum fag­ur­gala. Stjórn­völd þyrftu að búa til kerfi sem setti stjórn­völdin sjálf í spenni­treyju, auk þess sem nota ætti hug­vitið til þess að hjálpa Íslandi að verða for­ystu­þjóð í lofts­lags­málum á heims­vísu.

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sagði er röðin kom að honum að flokk­ur­inn vildi leggja áherslu á fjár­fest­ingu þegar kæmi að lofts­lags­málum, en minni á „boð og bönn“.

Hann ræddi um gríð­ar­leg tæki­færi vegna end­ur­nýj­an­legrar orku og að flokkur sinn vildi hraða orku­skiptum eins hratt og hægt er. Hann sagði að atvinnu­lífið, almenn­ingur, frjáls félaga­sam­tök og háskól­arnir þyrftu að koma að borð­inu ef árangur ætti að nást.

Orkuskipti láglaunahópa

Nokkuð var tek­ist á um það á milli stjórn­mála­leið­tog­anna sem kallað er rétt­lát umskipti í lofts­lags­málum, sem felur í sér að þeim byrðum sem fylgja umbreyt­ing­unum sem fyr­ir­séð er að gera þurfi til þess að ná lofts­lags­mark­miðum sé dreift með rétt­lætum hætti á milli þjóð­fé­lags­hópa. Katrín Jak­obs­dóttir sagði í þess­ari umræðu mik­il­vægt að tryggja rétt­lát umskipti, en sagði um leið að ljóst væri að rétta leiðin væri ekki að lækka álögur á bensín og díselolíu.

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins sagði að Flokkur fólks­ins myndi ekki sætta sig við það að grænum sköttum yrði beitt til þess að ná fram lofts­lags­mark­miðum. Þeir sem meng­uðu mest ættu að borga mest.

[adspot]

Hún spurði aðra leið­toga í sjón­varps­sal að því hvernig þau ætl­uðu að aðstoða fólk sem fengi 250-280 þús­und krónur útborgað á mán­uði með að kaupa raf­bíl og spurði hvort það ætti ef til vill ekki að verða fyrir fátæk­asta fólkið í land­inu að eiga bíl; hvort þau ættu bara að taka Borg­ar­línu og vera á hjóli.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir fékk orðið á eftir Ingu og sagð­ist sam­mála henni um það að það væru þeir sem meng­uðu mest sem ættu að borga mest. Hún hins vegar beindi orðum sínum að yfir­lýs­ingum for­sæt­is­ráð­herra um metn­að­ar­fullar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum og sagði það „vand­ræða­lega metn­að­ar­laust“ að bera þær saman við „stór­iðju­stjórnir“ síð­ustu ára­tuga.

Hún sagði Pírata boða mjög rót­tækar og mik­il­vægar aðgerðir í lofts­lags­málum strax. „Við ætlum ekki að prútta við móður jörð um þær aðgerðir sem þarf að grípa til,“ sagði Þór­hildur Sunna og gagn­rýndi síðan rík­is­stjórn­ar­flokk­ana fyrir að hafa hvorki fall­ist á að hækka sjálf­stæð mark­mið Íslands um losun né að leggja bann við olíu­leit í efna­hags­lög­sögu Íslands, eins og lagt hafi verið til á þingi.

Gunnar Smári Egilsson full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins skaut á nálgun Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lofts­lags­málum og sagði að ástæðan fyrir því að Bjarni og aðrir í hans flokki væru að tala um lofts­lags­mál og orku­skipti væri sú að menn væru búnir að „kveikja á því að lík­lega væri hægt að nota rík­is­sjóð til þess að styrkja fyr­ir­tækin“ í tengslum við fjár­fest­ingar í orku­skiptum. Hann sagði að það hefði „klingt í pen­inga­kass­anum“ á flokks­þingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fór fram um liðna helgi.

Sós­í­alist­inn sagði að lofts­lagskrís­una mætti að miklu leyti rekja til starf­semi fyr­ir­tækja, sem hefðu fengið að menga nátt­úr­una óáreitt og að Sós­í­alista­flokk­ur­inn teldi að vand­inn yrði ekki leystur með fyr­ir­tæki við stýrið. Hann tók síðan undir með Ingu Sæland, um hvernig byrðar aðgerða í lofts­lags­málum lentu ójafnt á tekju­hópum, betur settir fengu styrki til að kaupa umhverf­is­væna bíla beint úr kass­anum en lág­tekju­fólk fengi enga styrki.

„Vanda­málið er það að þeir sem eru á elstu bíl­unum sem menga mest eru fátæk­asta fólkið, við viljum styrkja það í orku­skiptum, til að það geti ferð­ast um án þess að menga svona mikið,“ sagði Gunnar Smári og var spurður af Ingu um leið: „Af hverju ert þú ekki í Flokki fólks­ins?“

Gunnar Smári sagði að það væru aðrar ástæður fyrir því, þrátt fyrir að hann væri sam­mála Ingu um þetta atriði.

Röng nálgun, segir Sigmundur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins sagði að það væri verið að nálg­ast þessi mál á algjör­lega rangan hátt. Hann tal­aði til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sagði að Ísland ætti að nota ork­una hér­lendis til þess að fram­leiða meira. Það hjálp­aði lofts­lag­inu og bætti lífs­kjör í land­inu.

Hann sagði núver­andi stefnu stjórn­valda draga úr lífs­gæðum og hélt því fram að bæði Sigurður Ingi og Bjarni stæðu í stafni rík­is­stjórnar sem hefði rekið slíka stefnu í lofts­lags­málum und­an­farin ár og myndi gera það áfram.

Róttæk hugmynd Glúms

Glúmur Bald­vins­son fram­bjóð­andi Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins, sem býður fram í fyrsta sinn núna, gagn­rýndi nálgun Þór­hildar Sunnu og ann­arra, sagð­ist vera orð­inn þreyttur á dóms­dags­spám um lofts­lags­mál, sem hann sagði að minntu sig á kjarn­orku­vánna sem hann sjálfur hefði alist upp við.

Hann kom fram með til­lögu sem hann taldi geta gert mikið varð­andi lofts­lags­málin, fleiri störf án stað­setn­ingar, þannig að fólk þyrfti ekki að ferð­ast til vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár