Telur síðasta valkostinn ávallt vera að ríkið yrði hluthafi í fyrirtækjum

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra var spurður út í stöðu Icelandair á þing­fundi í morgun og hvort eðli­legt væri að ráð­stafa stórum upp­hæðum til að verja hlutafé fyr­ir­tækis án þess að eiga nokkurn mögu­leika á að fá það með beinum hætti til baka.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun að ríkið hefði verið í sam­skiptum við Icelandair og að sér­stakur starfs­hópur væri nú að störfum til þess að fá upp­lýs­ingar um stöðu félags­ins til þess að und­ir­byggja ákvarð­ana­töku fram­tíð­ar­innar.

„Það sem hefur gerst á und­an­förnum vikum er að félagið sjálft hefur tekið frum­kvæði. Það hefur verið greint frá því opin­ber­lega í Kauphöll og nú er boðað að félagið hygg­ist fara í hluta­fjár­aukn­ingu og um mögu­lega aðkomu rík­is­ins að mál­efnum félags­ins í tengslum við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þess er nú verið að ræða á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar og ég vænti þess að við getum brugð­ist við og lagt fram skýr svör um það hvernig við sæjum þá fyrir okkar að það gæti orðið með aðkomu rík­is­ins,“ sagði Bjarni en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði hann út í stöðu Icelandair og hver áform rík­is­stjórn­ar­innar væru varð­andi félagið.

Það er skoðun Bjarna að Icelandair sé eitt mik­il­væg­asta fyr­ir­tæki lands­ins og að allt við­skipta­mód­elið sem teng­ist Kefla­vík­ur­flug­velli sé í raun og veru undir. Þar af leið­andi hafi þau í rík­is­stjórn­inni „sett kraft og tekið mjög alvar­lega þeirri stöðu sem er uppi komin hjá fyr­ir­tæk­inu“.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, steig næst í pontu og spurði Bjarna hvort til væri grein­ing á því hvernig fjár­munir myndu skipt­ast milli fyr­ir­tækja vegna upp­sagna­leið­ar­innar og hvort eðli­legt væri að ráð­stafa svo stórum upp­hæðum til að verja hlutafé fyr­ir­tækis án þess að eiga nokkurn mögu­leika á að fá það með beinum hætti til baka og eign­ast tíma­bundið í fyr­ir­tæk­inu.

Bjarni svar­aði Loga og sagði að hann teldi ekki eðli­legt að verja hlut­hafa fyr­ir­tækja með slíku inn­gripi. „Enda liggur það fyrir eins og ég er að skilja stöð­una að hlut­haf­arnir eru að verða fyrir stór­kost­legu tjóni þar sem félagið er að fara í hluta­fjár­út­boð sem vænt­an­lega mun þýða að hlut­haf­arnir núver­andi verða þynntir út. Og almennt um þá leið að ríkið taki stöðu sem hlut­hafi í fyr­ir­tækjum þá myndi ég segja að það ætti ávallt að vera síð­asti val­kost­ur­inn.“

Hvernig tryggir ríkið stöðu sína?

Hins vegar taldi Bjarni það sjálf­sagt að ræða þessa hluti. Ef ríkið gengi í ábyrgðir fyrir lánum eða veitti lán að spurt væri hvernig það gæti tryggt stöðu sína – og fé almenn­ings sem varið væri til slíkra aðgerða. „Fram til þessa höfum við náð sam­komu­lagi hér á þing­inu um að verja millj­arða tugum í þessum til­gangi. Til dæmis með brú­ar­lána­leið­inni [...] og stuðn­ings­lán­unum. Þetta eru allt aðgerðir sem tryggja kröfur á fyr­ir­tækin. Hluta­starfa­leiðin hefur hins vegar verið öðru marki brennd. Þar höfum við ákveðið hér á þing­inu að fara þá leið að styðja fyr­ir­tæki vegna þess að við sjáum fyrir okkur að án stuðn­ings­ins myndi kostn­að­ur­inn hvort sem er lenda á rík­inu í gegnum atvinnu­leys­is­trygg­ingar, í gegnum ábyrgð­ar­sjóð launa og svo fram­vegis. Og í þeim til­gangi að fara í almenna efna­hags­lega aðgerð, höfum við verið að feta okkur þessa slóð.“

Bjarni var þeirrar skoð­unar að þetta væru almennar efna­hags­legar aðgerðir sem meðal ann­ars Icelandair væri að njóta í þessu sam­hengi, og „að sjálf­sögðu er ekki til sund­ur­lið­aður listi yfir þau fyr­ir­tæki sem munu njóta þeirrar aðgerða sem kynntar voru hér í vik­unni vegna þess að við erum ekki einu sinni búin að lög­festa þær“. Þess vegna væri ekki hægt að ræða um lista yfir fyr­ir­tæki sem myndu nýta sér þær leiðir sem aðgerða­pakk­arnir bjóða upp á.

„En að sjálf­sögðu verða það opin­berar upp­lýs­ingar þegar fram í sækir hvernig úrræðið nýtt­ist og hverjir nýttu það. Í mínum huga er þetta almenn efna­hags­leg aðgerð sem við verðum að hafa trú á að skipti máli og við verðum að spyrja okkur hvað það myndi kosta ríkið til lengri tíma að gera ekki neitt,“ sagði Bjarni.

Enginn að tala um að gera ekkert

Logi kom aftur í pontu og sagði að eng­inn væri að tala um að gera ekki neitt, heldur með hvaða hætti ætti að gera það. Nú lægi fyrir að um það bil sjö millj­arðar myndu gagn­ast Icelandair beint og spurði hann hvort eðli­legt væri að almenn­ingur á Íslandi myndi verja sína stöðu – héldu flug­fé­lag­inu gang­andi en fengju pen­ing­ana til baka.

Fjár­mála­ráð­herra sagð­ist í fram­hald­inu ekki skilja af hverju Logi væri svona upp­tek­inn af þessu eina félagi. „Við erum hér með 35 þús­und manns í hluta­starfa­leið og það stefnir í að 50 þús­und manns verði í þeim úrræðum sem stjórn­völd hafa ann­að­hvort áður lög­fest eða eru núna að bregð­ast við,“ sagði hann.

Hann spurði hvers vegna Logi vildi ein­ungis ræða Icelandair. Hvers vegna boð­aði Logi ekki þá stefnu sína að gegn stuðn­ingi við fyr­ir­tæki sem þurfa nauð­syn­lega að fá svig­rúm til að end­ur­skipu­leggja fjár­hag sinn vildi hann boða rík­i­s­væð­ingu allra slíkra fyr­ir­tækja. Logi kall­aði fram í og sagði að hann hefði ekki verið að tala um það. Bjarni sagð­ist þó skilja það þannig af orðum hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár