Grímur Grímsson verður yfirmaður miðlægu rannsóknardeildarinnar

Grímur starf­aði hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og sagði sig frá rann­sókn á máli lög­reglu­full­trú­ans sem sak­aður var rang­lega um brot í starfi. Hann tekur nú við yfir­manns­stöðu í deild sem lýst hefur verið sem bruna­rústum vegna sam­skipta­vanda, fólks­flótta og skipu­lags­breyt­inga.

Grímur Grímsson, sem starfað hefur sem yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, mun taka við starfi yfir­manns hjá mið­lægu rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Þetta var starfs­mönnum deild­ar­innar til­kynnt í gær en Stundin greindi frá því þann 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að Runólfur Þór­halls­son myndi hætta sem yfir­maður deild­ar­innar. 

Grímur hefur áður starfað sem lög­reglu­full­trúi hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hjá efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Sem yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara átti Grímur aðkomu að rann­sókn á máli lög­reglu­full­trú­ans sem kall­aður hefur verið lög­reglu­full­trúi x í umfjöllun Stund­ar­innar og tók þátt í að yfir­heyra nokkra þeirra sem borið höfðu sakir á lög­reglu­full­trú­ann. Aðkoma Gríms að mál­inu olli titr­ingi vegna vina­tengsla hans við við Karl Steinar Valsson og Aldísi Hilm­ars­dóttur, fyrr­ver­andi yfir­menn fíkni­efna­deildar og í kjöl­farið ákvað Grímur að segja sig alfarið frá rann­sókn­inni. 

Mynd teng­ist frétt ekki beint.

Í skýrslu­tök­unum hjá hér­aðs­sak­sókn­ara lýstu lög­reglu­menn ólgu, ósætti og flokka­dráttum og haft var á orði að „smá­kónga­stríð“ geis­aði innan fíkni­efna­deildar. Nið­ur­staða sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins var sú að lög­reglu­full­trúi x hefði verið hafður fyrir rangri sök. Fullyrt var að eftir ítar­lega rann­sókn – þar sem meðal ann­ars voru teknar skýrslur af 29 vitnum og tveimur mönnum með rétt­ar­stöðu sak­born­ings – lægi ekk­ert fyrir sem renndi stoðum undir að lög­reglu­full­trú­inn hefði með neinum hætti gerst brot­legur í starfi.

Stundin hefur fjallað ítar­lega um mál­efni mið­lægu rann­sókn­ar­deild­ar­innar und­an­farna mán­uði. Eftir að lög­reglu­full­trúi x var sak­aður um brot í starfi og óeðli­leg sam­skipti við aðila úr und­ir­heimum fór af stað þróun þar sem meira en helm­ingur þeirra sem áður störf­uðu að fíkni­efna­rann­sóknum var færður til, hætti eða tók sér launa­laust leyfi. Reyndum starfs­mönnum var bolað úr deild­inni og tveir þeirra kvört­uðu undan ein­elti Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra. Nokkrir þeirra sem höfðu tor­tryggt lög­reglu­full­trú­ann voru hins vegar hækk­aðir í tign, fengu óaug­lýsta stöðu eða fram­gang af ein­hverju tagi. 

Fram kom í umfjöllun Stund­ar­innar í sept­em­ber að starf­semi mið­lægu rann­sókn­ar­deild­ar­innar hefði beðið hnekki; lítið væri um frum­kvæð­is­rann­sóknir, lög­reglan réði ekki lengur við flókin og umfangs­mikil fíkni­efna­mál og mann­afls­frekum rann­sóknar­úr­ræðum á borð við skygg­ingar væri síður beitt en áður, enda skorti mann­skap, sér­þekk­ingu og reynslu til að fram­kvæma slíkar aðgerðir. Þetta stað­festi fjöldi lög­reglu­manna, meðal ann­ars starfs­menn umræddrar deildar og fólk í yfir­manns­stöðum hjá lög­reglu­emb­ætt­inu, í sam­tölum við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár