Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna boða til blaðamannafundar í Hörpu vegna viðbragða

For­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra munu kynna aðgerðir til að takast á við yfir­stand­andi aðstæður á blaða­manna­fundi á morgun.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, boða til blaða­manna­fundar í Norð­ur­ljósum í Hörpu á morgun, laug­ar­dag­inn 21. mars, klukkan 13:00.

Fundinum verður streymt á vef­síðu Stjórn­ar­ráðs­ins og hann verður tákn­mál­stúlk­aður.

Fastlega er búist við því að á fund­inum verði kynnt um frek­ari aðgerðir til að takast á við þær efna­hags­legu afleið­ingar sem blasa við að munu verða hér­lendis vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Beðið hefur verið eftir því að rík­is­stjórnin kynnti risa­pakka aðgerða til að takast á við stöð­una, líkt og mörg önnur ríki heims hafa þegar gert. Upp­haf­lega var búist við því að hann yrði á mið­viku­dag eða fimmtu­dag, en af því varð ekki. Stjórn­ar­and­staðan hefur kvartað undan því að vera ekki hleypt að borð­inu og fá að leggja sínar hug­myndir í púkkið. Þorri vinn­unnar sem fram hefur farið hefur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, farið fram í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og hefur upp­leggi hennar verið haldið leyndu utan mjög þröngs hóps ráð­herra og helstu ráð­gjafa þeirra.

Þurfa að bregðast við vegna tekjufallsins

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra stað­­festi í Kast­ljósi á þriðju­dag að frek­­ari efna­hags­að­­gerðir væru í und­ir­­bún­­ingi, en Kjarn­inn greindi frá því í á mánu­dag að slíkar yrðu vænt­an­­lega kynntar í vik­unni.

Katrín sagði í þætt­inum að stjórn­­völd þyrfti að gera fernt með aðgerðum sín­­um. „Stóru mark­miðin í þeim eru í fyrsta lagi að tryggja lífs­af­komu fólks. Alþingi var í dag að ræða frum­varp um hluta­bæt­­ur, það mun taka breyt­ing­­um.[...]Við erum að tryggja að lífs­af­koma fólks sé tryggð og að það geti haldið ráðn­­ing­­ar­­sam­­band­inu við sinn vinn­u­veit­anda.

Við þurfum að ráð­­ast í aðgerðir til þess að styðja við fyr­ir­tækin vegna þess að þau auð­vitað halda uppi atvinn­u­líf­inu í þessu landi. Þar vinnur allt fólkið í land­inu. Við þurfum söm­u­­leiðis að verja grunn­­stoðir atvinn­u­lífs­ins.[...]Í fjórða lagi þurfum við að gefa í í fjár­­­fest­ingu til að tryggja að hag­­kerfið nái ákveð­inni við­­spyrn­u.“

Bjarni Bene­dikts­son sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun að þau í rík­is­stjórn­inni hefðu þurft að vinna dag og nótt und­an­farnar tvær vikur til þess að fylgj­ast með þró­un­inni frá degi til dags og leggja mat á raun­hæfar aðgerðir til að bregð­ast við afleið­ingum COVID-19 far­ald­urs­ins. „Það eru nokkrir hlutir sem standa upp úr. Það er gríð­ar­legt tekju­fall í einka­geir­an­um, sem auð­vitað mun brjót­ast fram í tekju­falli hjá rík­inu og hinu opin­bera sömu­leið­is.“

Fjármagn til að brúa tímabilið

­Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði Bjarna hvort hann teldi ekki æski­legt að allir flokkar á Alþingi ynnu nánar en nú væri gert að vinnu við stóra aðgerða­pakk­ann eða sæi hann ein­hverja aug­ljósa van­kanta eða hindr­anir á því.

Bjarni svar­aði og sagði að hann sæi þetta í grófum dráttum þannig að þær aðgerðir sem stjórn­völd myndu kynna – sem rík­is­stjórnin myndi jafn­framt vilja leggja fyrir þingið – væru í öllum meg­in­at­riðum nokkuð fyr­ir­sjá­an­leg­ar. „Það er að segja; við þurfum að bregð­ast við vegna tekju­falls­ins, við þurfum að huga að atvinnu­ör­yggi fólks, við þurfum að huga að því að þegar fyr­ir­tæki tapa lausu fé þá þarf að vera til eitt­hvað fjár­magn til þess að brúa tíma­bilið sem við von­umst til að verði sem styst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár