Ætla að taka við miðlum 365 í október eða nóvember

Fjar­skipti munu taka við þeim miðlum 365 sem félagið hefur samið um kaup á annað hvort 1. októ­ber eða 1. nóv­em­ber, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­run­ann.

Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, býst við því að taka við þeim eignum 365 miðla sem félagið hefur samið um kaup á annað hvort 1. októ­ber eða 1. nóv­em­ber næst­kom­andi. Þetta kemur fram í kynn­ing­ar­gögnum af upp­gjörs­fundi Fjar­skipta vegna hálfs­árs­upp­gjörs félags­ins.

[links]Fjar­skipti hafa sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu upp­færð skil­yrði sem félagið er til­búið að und­ir­gang­ast vegna kaupanna en eft­ir­litið hefur enn ekki tekið afstöðu til þeirra. Það hefur frest til þess að taka ákvörðun um hvort að heim­ila eigi sam­runa þorra miðla 365 miðla og til fyrri hluta októ­ber­mán­aðar. Ef sam­þykki fæst fyrir sam­run­anum fæst fyrir 15. sept­em­ber þá munu Fjar­skipti taka við þeim hluta 365 miðla sem félagið hefur sam­þykkt að kaupa þann 1. októ­ber næst­kom­andi. Ef sam­þykki fæst eftir 15. sept­em­ber munu Fjar­skipti taka við hinu keypta 1. nóv­em­ber.

Skuldbinda sig til að reka miðla 365 í þrjú ár

Fjar­skipti sam­þykkti fyrr á þessu ári að kaupa alla fjar­skipta­þjón­ustu sem 365 veit­ir. Auk þess fara allar sjón­varps- og útvarps­stöðvar 365 miðla yfir til Fjar­skipta. Þar á meðal eru Stöð 2, allar íþrótt­ar­ás­ir, Bylgj­an, FM957 og X-ið. Til við­bótar var ákveðið á loka­sprett­in­um að frétta­vef­ur­inn Vísir.is og frétta­stofa ljós­vaka­miðla myndi fylgja með í kaup­un­um. Það sem skilið verður eftir í 365 miðlum eru Frétta­blaðið og tíma­ritið Glamour.

Kaup­verðið er 7.725-7.875 millj­­ónir króna. Það greið­ist í reið­u­­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­­skiptum og yfir­­­töku á 4,6 millj­­arða króna skuld­­um. 365 miðlar verða í kjöl­farið næst stærsti eig­andi Fjar­skipta.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi drög að skil­yrðum fyrir kaup­unum til sam­keppn­is­að­ila 365 miðla og Vodafone í júlí. Í þeim kom meðal ann­ars fram að Fjar­skipti muni skuld­binda sig til að að halda áfram rekstri þeirra fjöl­miðla sem félagið hefur samið um að kaupa af 365 miðlum í þrjú ár „nema að mark­verðar nei­kvæðar breyt­ingar eigi sér stað á mark­aðs­að­stæð­u­m“.

[adspot]Í drög­unum um skil­yrði sem Fjar­skipti eru til­búin að und­ir­gang­ast er að mestu fjallað um sjón­varps­rekstur og þann aðskilnað sem þurfi að vera á milli þess sem keypt er (Stöð2 og Stöð 2 Sport) og þess sjón­varps­rekstrar sem fyrir er í Fjar­skipt­um. Til­gang­ur­inn er sá að tryggja að við­skipti milli ein­ing­anna fari fram á við­skipta­legum for­sendum og að sam­run­inn skapi ekki aðgangs­hindr­anir fyrir aðra inn á mark­að­inn. Þá eru Fjar­skipti til­búin að und­ir­gang­ast skil­yrði um að félag­inu verði óheim­ilt að gera það að skil­yrði fyrir kaupum á fjar­skipta­þjón­ustu þess að kaup á ein­hverri sjón­varps­þjón­ustu, t.d. Stöð 2, fylgi með í pakk­an­um. Það þýðir samt sem áður ekki að Fjar­skipti geti ekki tvinnað saman sölu á t.d. inter­neti ann­ars vegar og sjón­varps­þjón­ustu hins veg­ar, líkt og Sím­inn ger­ir.

Leggja til leiðir til að tryggja sjálf­stæði rit­stjórna

Í drög­unum voru einnig tvær greinar sem snúa ann­ars vegar að sjálf­stæði rit­stjórna og hins vegar að fram­leiðslu á íslensku efni og áfram­hald­andi rekstri fjöl­miðla. Þeir miðlar sem seldir verða yfir frá 365 miðlum eru Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðv­ar, útvarps­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins (t.d. Bylgj­an, X-ið og FM957) og frétta­vef­ur­inn Vísir.is. Frétta­stofa 365 fylgir með í kaup­un­um, en hún er ein stærsta frétta­stofa lands­ins og sú eina sem heldur úti dag­legum sjón­varps­frétta­tíma utan frétta­stofu RÚV.

Í skil­yrði um sjálf­stæði rit­stjórna þeirra fjöl­miðla sem Fjar­skipti vilja kaupa sagði: „Í þviskyni að standa vörð um sjálf­stæði rit­stjórna fjöl­miðla sem Fjar­skipti reka skal skipuð sér­stök und­ir­nefnd stjórnar Fjar­skipta hf. Í nefnd­inni skulu sitja þrír nefnd­ar­menn, þar af tveir óháðir sem eftir atvikum geta verið kosnir á hlut­hafa­fundi Fjar­skipta, en einn nefnd­ar­maður skal til­nefndur af stjórn Fjar­skipta. Skulu hinir óháðu nefnd­ar­menn hafa sér­þekk­ingu og reynslu af rekstri fjöl­miðla.[...]Skal nefndin hafa það hlut­verk að standa vörð um sjálf­stæði rit­stjórna, fjöl­ræði og fjöl­breytni og taka við kvört­unum vegna frétta­flutn­ings og efn­istaka fjöl­miðl­anna. Þess skal gætt að eig­end­ur, starfs­menn og stjórn­ar­menn Fjar­skipta hlut­ist ekki til um atriði sem geta raskað sjálf­stæði rit­stjórna fjöl­miðla sem Fjar­skipti reka eða dragi úr fjöl­ræði eða fjöl­breytni í rekstri fjöl­miðla Fjar­skipta.“

Ætla að til­nefna „óháðan kunn­áttu­mann“

Í næstu grein skil­yrð­anna kom fram að Fjar­skipti skuld­bindi sig til að halda áfram rekstri þeirra fjöl­miðla sem séu and­lag kaupanna næstu þrjú ár „nema mark­verðar breyt­ingar eigi sér stað á mark­aðs­að­stæð­u­m“. Ekki var til­greint hvað felist í „mark­verðum breyt­ing­um“.

Í þeirri grein sagði einnig að Fjar­skipti skuld­bindi sig til að „halda áfram kaupum eða fram­leiðslu á íslensku efni að því gefnu að slík fram­leiðsla byggi á eðli­legum við­skipta­legum for­send­um“.

Fjar­skipti bauðst einnig til að til­nefna „óháðan kunn­áttu­mann“ til að hafa eft­ir­lit með því að skil­yrð­unum sem félagið er til­búið að und­ir­gang­ast verði fram­fylgt. Kunn­áttu­mað­ur­inn má ekki vera starfs­maður eða stjórn­ar­maður félags­ins eða hjá tengdum aðil­um, má ekki vera maki stjórn­ar­manns eða fram­kvæmda­stjóra/for­stjóra eða skyldur þeim í beinan legg. Þá telj­ast þeir sem sinna reglu­bund­inni hags­muna­gæslu og/eða ráð­gjafa­störfum fyrir ofan­greinda aðila og hafa meiri­hluta tekna sinna að slíkum við­skiptum ekki upp­fylla skil­yrði um óhæði.

Sam­starf milli Frétta­blaðs­ins og Vísir.is í tæp fjögur ár

Kjarn­inn greindi frá því í maí að alls sé gert ráð fyrir því að sam­run­inn skili kostn­að­­ar­­sam­­legð upp á rúman millj­­arð króna. Þar af gera áætl­­­anir ráð fyrir að sparn­aður í launum og starfs­­manna­­kostn­aði verði um 275 millj­­ónir króna á ári og að stöð­u­­gildum þeirra ein­inga sem fær­­ast yfir til Fjar­­skipta frá 365 miðlum muni fækka um 41. Þetta kom fram í sam­runa­­skrá vegna sam­runa Fjar­­skipta og 365 miðla sem birt var á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 10. maí síð­­ast­lið­inn. Fækk­unin verður 365-­meg­in. Fjar­skipti brugð­ust við frétt­inni með því að segja að fækk­unin muni vera gerð í gegnum starfs­manna­veltu á 12-18 mán­uð­u­m.

Í fyrstu útgáf­unni af sam­runa­­skránni sem eft­ir­litið birti voru trún­­að­­ar­­upp­­lýs­ingar úr skránni aðgeng­i­­leg­­ar, þar á meðal upp­­lýs­ingar um hversu mörg stöð­u­­gildi myndu hverfa við sam­run­ann. Ný útgáfa án trún­­að­­ar­­upp­­lýs­ing­anna var sett á vef­inn í stað hinnar síðar sama dag. Kjarn­inn hefur upp­­runa­­legu útgáf­una undir hönd­­um.

Í upp­runa­legu útgáf­unni birt­ust einnig trún­að­ar­upp­lýs­ingar um sam­starfs­samn­ing sem gerður var sam­hliða kaup­un­um. Í honum felst að efni Frétta­­blaðs­ins, sem er ekki hluti af kaup­un­um, muni áfram birt­­ast á Vísi.is í 44 mán­uði eftir að kaupin ganga í gegn. Það þýðir að Vísir.is, sem verður þá í eigu Fjar­­skipta, mun geta birt allt efni Frétta­­blaðs­ins að morgni í tæp fjögur ár þrátt fyrir að fjöl­mið­l­­arnir verði ekki lengur í eigu sama aðila. Ekk­ert er fjallað um þetta sam­starf í bréfi Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár