Efni Fréttablaðsins á að fara inn á Vísi í 44 mánuði eftir kaup

Gangi kaup Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Vodafone, á flestum miðlum 365 utan Frétta­blaðs­ins mun efni mest lesna dag­blaðs lands­ins samt sem áður birt­ast á Vísi.is í 44 mán­uði. Efni blaðs­ins má hins vegar ekki birt­ast á nýjum vef Frétta­blaðs­ins.

Í sam­starfs­samn­ingi sem gerður var sam­hliða kaupum Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Vodafone, á flestum fjöl­miðlum 365 miðla kemur fram að efni Frétta­blaðs­ins, sem er ekki hluti af kaup­unum, muni áfram birt­ast á Vísi.is í 44 mán­uði eftir að kaupin ganga í gegn. Það þýðir að Vísir.is, sem verður þá í eigu Fjar­skipta, mun geta birt allt efni Frétta­blaðs­ins að morgni í tæp fjögur ár þrátt fyrir að fjöl­miðl­arnir verði ekki lengur í eigu sama aðila. Þetta kemur fram í sam­runa­skrá vegna fyr­ir­hug­aðs sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem skilað var til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 27. apríl síð­ast­lið­inn.

[links]

Ritað var undir samn­ing um kaup Fjar­skipta á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að und­an­skildum eignum er varða útgáfu Frétta­blaðs­ins og Glamour í mars síð­ast­liðnum. Kaup­verðið er 7.725-7.875 millj­ónir króna. að greið­ist í reiðu­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­skiptum og yfir­töku á 4,6 millj­arða króna skuld­um.

Fjar­skipti eru að kaupa sjón­varps- og útvarps­stöðvar 365 auk fjar­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins og frétta­vefs­ins Vísir.is. Helstu sjón­varps­stöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­in. Helstu útvarps­stöðvar eru Bylgj­an, FM957 og X-ið. Þær eignir sem verða eftir í 365 miðlum eru Frétta­blaðið og tíma­ritið Glamour.

[adspot]

Á fjár­festa­kynn­ingu sem haldið var vegna þessa kom fram að aðilar hefðu „samið um miðlun frétta­efnis og sam­starf sín á milli í kjöl­far við­skipta.“ Í því fælist aðal­lega að efni úr Frétta­blað­inu heldur áfram að birt­ast á Vísi, á grunni gerðs þjón­ustu­samn­ings. Hins vegar hafði ekki komið fram áður í hversu langan tíma slíkur samn­ingur ætti að gilda né hvaða tak­mark­anir hann myndi setja á notkun þess efnis á nýjum vef Frétta­blaðs­ins.

Fréttablaðið má ekki birta eigið efni á eigin vef

Í sam­starfs­samn­ingnum sem gerður var milli Fjar­skipta og 365 miðla er einnig kveðið á um að efni Frétta­blaðs­ins megi ekki fara inn á nýjan vef þess sem settur verði upp í kjöl­farið af söl­unni á Vísi yfir til Fjar­skipta. Í sam­runa­skránni segir: „Er samn­ing­ur­inn tal­inn nauð­syn­legur til þess að sam­run­inn gangi í gegn, þar sem Fjar­skipti munu ekki hafa yfir að ráða frétta­stofu af því tagi sem þarf til að sinna vef­síð­unni visir.is þegar við afhend­ingu eigna sam­kvæmt samn­ingnum, gangi kaupin eftir. Því telja sam­runa­að­ilar nauð­syn­legt að við­hafa slíkt sam­starf tíma­bundið, til þess að tryggja sam­fellu í rekstri frétta­síð­unnar visir.is, gangi sam­run­inn í gegn“.

Þessi full­yrð­ing, um að Fjar­skipti muni ekki hafa yfir að ráða nægi­lega öfl­ugri frétta­stofu til að sinna Vísi.is stang­ast á við aðra full­yrð­ingu í sam­runa­skránni. Þar segir að Frétta­stofa þeirra ljós­vaka­miðla sem verið sé að kaupa og Vísis.is verði „eftir sem áður rekin af mynd­ug­leik og ekki eru áform um að draga úr getu hennar eða sjálf­stæði. Þvert á mót ætti hún að efl­ast í efna­hags­lega sterk­ari sam­stæðu en áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár