Ísland spilltasta land Norðurlandanna níunda árið í röð

Ísland er enn og aftur spilltasta ríki Norð­ur­land­anna sam­kvæmt nýrri úttekt Transparency International. Samtökin veittu því sér­staka eft­ir­tekt að Íslend­ingar eru meðal þeirra þjóða sem sýnt hafa van­þóknun sína á spilltum stjórn­ar­háttum æðstu vald­haf­anna.

Mynd tekin á samstöðufundi þann 8. mars í fyrra.
Mynd tekin á sam­stöðu­fundi þann 8. mars í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland er enn og aftur spilltasta ríki Norð­ur­land­anna sam­kvæmt nýrri úttekt Transparency International. Ísland vermir 11. sætið yfir óspillt­ustu lönd heims­ins, sam­kvæmt nýju mati sam­tak­anna, en Danmörk og Nýja Sjáland eru þau lönd þar sem spill­ing er minnst. Ísland hækkar á list­anum frá því í fyrra en þá var það í 14. sæti.

Finnland er í þriðja sæti yfir óspillt­ustu löndin en þar á eftir koma Svíþjóð, Singapúr og Sviss jöfn í fjórða sæti. Noregur er í sjö­unda sæti og Holland í því átt­unda. Þýska­land og Lúx­em­borg verma saman níunda sætið. Sómalía, Suður Súdan, og Sýrland lentu í neðstu sæt­unum.

Flestir Íslendingar telja mikla spillingu vera í viðskiptalífinu

Sam­kvæmt könnun sem Mask­ína gerði í lok síð­asta árs töldu 72 til 73 pró­sent lands­manna mikla spill­ingu vera í við­skipta­líf­inu en 8 til 9 pró­sent töldu hana litla eða enga.

Mask­ína spurði í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins um spill­ingu á fjórum sviðum sam­fé­lags­ins, við­skipta­líf­inu, stjórn­mál­um, opin­bera geir­anum og fjöl­miðl­um. Í öllum til­vikum var hærra hlut­fall sem telur spill­ingu mikla en litla.

Um 72 pró­sent töldu spill­ingu mikla í stjórn­málum á Íslandi en næstum 11 pró­sent töldu hana litla eða enga. Um 57 pró­sent töldu spill­ingu mikla í opin­bera geir­anum en næstum 18 pró­sent töldu hana litla eða enga.

Erfitt að uppræta kerfislæga spillingu

Spill­ing­ar­vísi­tala Transparency International er sam­an­burð­ar­könnun sem gerð er árlega þar sem kannað er hversu vel varin lönd eru gegn spill­ingu. Samkvæmt Gagnsæi – sam­tökum gegn spill­ingu þykir vísi­talan að þessu sinni sýna hversu erfitt er að upp­ræta kerf­is­læga spill­ingu, því litla sem enga breyt­ingu er að finna á spill­ing­ar­vísum flestra landa milli ára.

Í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum er of snemmt að full­yrða um hvort hækkun Íslands á list­anum sé merki um að landið hafi tekið sig á í mála­flokknum og hert lög­gjöf og aukið eft­ir­lit með þáttum eins og hags­muna­á­rekstrum, vina- og frænd­hygli, fjár­styrkjum til stjórn­mála­flokka, mútu­greiðslum íslenskra fyr­ir­tækja erlendis eða hvort önnur lönd hafi ein­fald­lega færst til og Ísland því hlut­falls­lega einnig.

Koma þarf böndum á áhrif fjámálaafla á stjórnmál

Að sögn Transparency International sýna nið­ur­stöður könn­un­ar­innar svo ekki verði um villst að koma þurfi böndum á þau áhrif sem fjá­mála­öfl hafi á stjórn­mál ein­stakra landa og við­skipti milli ríkja. Spill­ing­ar­vísi­talan leiði ítrekað í ljós að spill­ingin sé mest í ríkjum þar sem einka­fjár­magn á greiðan aðgang að fram­bjóð­endum í opin­berum kosn­ingum og í löndum þar sem stjórn­völd hafi til­hneig­ingu til að gæta helst hags­muna hinna auð­ugu og vel tengdu.

Delia Ferreira Rubio, for­maður Transparency International, segir í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna að til að berj­ast gegn spill­ingu þurfi stjórn­völd að sporna við áhrifum fjár­sterkra aðila, sem í krafti fjár­magns síns hafi of mikil mót­andi áhrif á stjórn­mála­kerfið í heild sinni, og í stað­inn leit­ast við að draga fram og fara eftir vilja umbjóð­enda sinna, almenn­ings, í stefnu­mörkun sinni.

Spill­ing­ar­vísi­tala Transparency International er byggð á áliti sér­fræð­inga sem og almennri skynjun á spill­ingu í opin­berum stofn­unum og stjórn­sýslu. Samkvæmt Gagnsæi getur ekk­ert land talist alfarið laust við spill­ingu en ýmis sam­eig­in­leg ein­kenni í opin­berri stjórn­skipun megi finna í löndum sem hljóta flest stig, svo sem fjöl­miðla­frelsi, borg­ara­legt frjáls­lyndi og sjálf­stætt dóms­kerfi. Þar sé líka stjórn­sýslan opin og almenn­ingur geti dregið stjórn­endur til ábyrgðar. Ein­kenn­andi fyrir löndin sem eru neðst á list­anum séu refsi­leysi við spill­ing­ar­brotum, veik stjórn­skipan og mátt­litilar stofn­anir, sem sinna ekki hlut­verki sínu í þágu borg­ar­anna. Þá séu mútur jafn­framt við­teknar og látnar óátaldar í þessum löndum.

Sérstök íslensk umfjöllun vegna Samherjamálsins

Í til­kynn­ingu Gagnsæis um málið segir að þrátt fyrir það áfall sem almenn­ingur hafi orðið fyrir þegar sjón­varps­þátt­ur­inn Kveikur upp­lýsti áhorf­endur um gögn sem bentu til þess að stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, Samherji, hefði borið fé á hátt­setta og vel tengda emb­ætt­is­menn í Namibíu í skiptum fyrir sér­af­greiðslu á viða­miklum fisk­veiði­heim­ildum síð­ast­liðið haust, fær­ist Ísland upp um þessi þrjú sætu.

„Transparency sam­tökin veittu því sér­staka eft­ir­tekt að Íslend­ingar eru meðal þeirra þjóða er sýnt hafa van­þóknun sína á spilltum stjórn­ar­háttum æðstu vald­hafa lands­ins á götum úti. Tug­þús­undir lands­manna tóku þátt í mót­mælum fyrst eftir banka­hrunið árið 2008-2009 sem lauk með afsögn rík­is­stjórnar Geirs H. Haarde. Þá mót­mæltu einnig tug­þús­undir manna hags­muna­á­rekstrum og aflands­við­skiptum for­sæt­is­ráð­herr­ans Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar og inn­an­rík­is­ráð­herr­ans Ólafar Nordal, sem opin­ber­uð­ust í Panama skjöl­unum árið 2016, sem leiddi til afsagnar for­sæt­is­ráð­herra,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá hafi Sam­herj­a­málið einnig vakið hneykslan fólks og leitt til mót­mæla­að­gerða á opin­berum vett­vangi í Reykja­vík, sem meðal ann­ars fólu í sér kröfu um afsögn núver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sem sam­kvæmt orðum for­stjóra Samherja í gögnum Kveiks var lýst fyrir Namib­íu­mönnum sem „okkar manni“ í rík­is­stjórn.

Sú krafa mót­mæl­enda end­ur­spegli áherslur Transparency International sem og Íslands­deildar sam­tak­anna árið 2020, að úthýsa þurfi áhrifum auð­ræðis í opin­berri stefnu­mótun og að hún fái að mót­ast fremur af ákalli almenn­ings í þágu almanna­hags­muna.

Markverð breyt­ing þykir því hafa orðið á við­horfi fólks til spill­ingar á Íslandi frá því á árunum fyrir hrun. Á árunum 2005 og 2006 var Ísland í 1. sæti list­ans. Á árinu 2008 féll Ísland niður í 7. sætið. En síð­ast­liðin 10 ár hefur leiðin legið niður á við. Árið 2018 féll Ísland niður í 14. sæti, eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár