Flestir Íslendingar telja mikla spillingu vera í viðskiptalífinu

Maskína spurði nýlega um spill­ingu á fjórum sviðum sam­fé­lags­ins, við­skipta­líf­inu, stjórn­málum, opin­bera geir­anum og fjöl­miðlum. Í öllum til­vikum er hærra hlut­fall sem telur spill­ingu mikla en litla.

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu telja 72 til 73 pró­sent lands­manna mikla spill­ingu vera í við­skipta­líf­inu en 8 til 9 pró­sent telja hana litla eða enga.

Maskína spurði í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins um spill­ingu á fjórum sviðum sam­fé­lags­ins, við­skipta­líf­inu, stjórn­málum, opin­bera geir­anum og fjöl­miðlum. Í öllum til­vikum er hærra hlut­fall sem telur spill­ingu mikla en litla.

Um 72 pró­sent telja spill­ingu mikla í stjórn­málum á Íslandi en næstum 11 pró­sent telja hana litla eða enga. Um 57 pró­sent telja spill­ingu mikla í opin­bera geir­anum en næstum 18 pró­sent telja hana litla eða enga.

Telja spillingu minnsta í fjölmiðlum

Minnst er svo spill­ingin í fjöl­miðlum að mati lands­manna en 42 til 43 pró­sent telja hana mikla þar en næstum fimmt­ungur segir hana litla eða enga. Það er ein­ungis þegar spurt er um fjöl­miðla sem færri en helm­ingur lands­manna telur spill­ingu mikla.

Konur telja spillingu meiri í viðskiptum og stjórnmálum en karlar

Svipað mynstur við­horfs er til allra þess­ara þátta spill­ingar þegar bak­grunnur er skoð­aður. Konur telja spill­ingu meiri í við­skiptum og stjórn­málum en karlar en ekki er mark­tækur munur á kynj­unum þegar spurt er um spill­ingu í opin­bera geir­anum og fjöl­miðlum.

Eftir því sem svar­endur hafa meiri menntun og hærri tekjur þeim mun minni telja þeir spill­ing­una vera nema þegar spurt er um fjöl­miðla þá er ekki mark­tækur munur milli tekju­hópa.

Í flestum til­vikum telja þeir sem eru yngri en 40 ára spill­ingu meiri en þeir sem eldri eru.

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins skera sig úr

Þegar svörin um spill­ingu eru skoðuð með til­liti til stjórn­mála­skoð­unar kemur í ljós, sam­kvæmt Maskínu, að mun­ur­inn er minnstur þegar spurt er um fjöl­miðla. Á bil­inu 30 til 35 pró­sent kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna telja spill­ingu mikla í fjöl­miðlum. Það eru kjós­endur Mið­flokks­ins sem telja spill­ingu mesta í fjöl­miðlum eða 60 pró­sent þeirra en á bil­inu 35 til 47 pró­sent kjós­enda ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins skera sig alveg úr þegar spurt er um spill­ingu í við­skipta­lífi, stjórn­málum og opin­bera geir­anum. Einungis um 30 pró­sent þeirra telja spill­ingu mikla þar og er það í flestum til­vikum mun lægra hlut­fall heldur en hjá kjós­endum ann­arra flokka. Eina sam­bæri­lega hlut­fallið er hlut­fall kjós­enda VG þegar spurt er um opin­bera geir­ann en 30 pró­sent þeirra telja spill­ingu mikla þar.

Yfir 80 pró­sent kjós­enda Pírata, Flokks fólks­ins, VG og Sam­fylk­ing­ar­innar telja spill­ingu mikla í við­skiptum á Íslandi, en 50 til 67 pró­sent kjós­end­anna hinna flokk­anna, nema Sjálf­stæð­is­flokks eins og fyrr er rakið.

Kjós­endur þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka, Pírata, Flokks fólks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar, telja spill­ing­una mesta í stjórn­málum, eða 83 til 96 pró­sent. Um 57 pró­sent kjós­enda VG telja mikla spill­ingu í stjórn­málum en 63 til 67 pró­sent Við­reisnar og Mið­flokks­ins en um þriðj­ungur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eins og áður hefur komið fram.

Kjósendur Flokks fólksins telja spillingu mesta í opinbera geiranum

Kjós­endur telja almennt að spill­ing sé minni í opin­bera geir­anum en í við­skipta­líf­inu og stjórn­málum. Það eru kjós­endur Flokks fólks­ins á hinn bóg­inn sem telja spill­ingu mesta í opin­bera geir­anum eða 83 til 84 pró­sent en 52 til 65 pró­sent kjós­enda hinna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Sem fyrr segir er um 30 til 32 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og VG sem telja spill­ingu mikla í opin­bera geir­anum en um 44 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks.

Maskína tekur fram að spurt hafi verið um þessi fjögur svið sam­fé­lags­ins í til­vilj­un­ar­röð. Þannig hafi til­viljun ráðið því í hvaða röð hver svar­andi fékk þessar fjórar spurn­ingar.

Svar­endur voru 1027 tals­ins og koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könnunin fór fram dag­ana 19. til 25. nóv­em­ber á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár