Að ljúga með penslinum

Danskur list­mál­ari hefur fyrir skömmu lokið við gerð sjö mál­verka sem eiga að sýna sögu Danska jafn­að­ar­manna­flokks­ins. Efnistök lista­manns­ins hafa verið gagn­rýnd harð­lega og eitt dönsku dag­blað­anna sagði að þarna væri logið með pensl­inum.

Hér er Jens Otto Krag við málaratrönurnar og við borðið má sjá Anker Jörgensen. Þeir voru báðir forsætisráðherrar Danmerkur á sínum tíma.
Hér er Jens Otto Krag við mál­ara­trön­urnar og við borðið má sjá Anker Jörg­en­sen. Þeir voru báðir for­sæt­is­ráð­herrar Dan­merkur á sínum tíma. Mynd: Brostrup.dk

Löng hefð er fyrir því að á veggjum fund­ar­her­bergja þing­flokk­anna á Krist­jáns­borg hangi mál­verk. Þing­flokk­arnir eru að mestu sjálf­ráðir um hvað hengt er á vegg­ina en til að fá styrk til að kaupa slík verk þarf við­kom­andi þing­flokkur að fá sam­þykki sér­stakrar „lista­verka­nefndar“ á Krist­jáns­borg. Fyrir nokkrum árum vakti athygli þegar Frjáls­ræð­is­banda­lag­inu (Liberal Alliance) var neitað um slíkan styrk, vegna kaupa á fimm mál­verkum eftir Johnny Madsen. Nefndin skoð­aði ekki verkin áður en hún synj­aði um styrk­inn en byggði afstöðu sína á þeirri stað­reynd að málar­inn væri ekki mennt­aður sem slíkur. Það er rétt en hins vegar er við­kom­andi bæði virtur og vin­sæll í heima­landi og hefur feng­ist við mynd­list frá unga aldri. Hann er þó lík­lega þekkt­ari sem tón­list­ar­maður og hefur gefið út 20 sóló­plötur. Af mál­verk­unum fimm er það að segja að Frjáls­ræð­is­banda­lagið keypti þau, fyrir eigið fé, og þau hanga nú á veggjum þing­flokks­her­berg­is­ins. 

Hugmynd Henrik Sass Larsen

Fyrir rúmum tveimur árum fékk Henrik Sass Larsen for­maður þing­flokks jafn­að­ar­manna þá hug­mynd að skipta út myndum sem Maja Lise Eng­el­hardt hafði málað árið 2001. Hún er þekktur lista­maður og myndir hennar í þing­flokks­her­berg­inu voru af lands­lagi á mis­mun­andi árs­tíma. Hugmynd Henrik Sass var að nýju mál­verkin myndu segja sögu flokks jafn­að­ar­manna sem var stofn­aður árið 1871. Henrik Sass vildi fá tvo menn til þessa verks: mál­ar­ann Jacob Brostrup og sagn­fræð­ing­inn Martin E.O. Grunz. Jacob Brostrup var til­tölu­lega lítið þekktur en Martin E.O. Grunz hins vegar þekktur á sínu sviði. Þeir hófust þegar handa við að skipu­leggja vinn­una og ákváðu fljót­lega að yfir­skrift verks­ins skyldi vera „Folkets Tid“ sem er fengin úr bar­áttu­söng jafn­að­ar­manna „Danmark for fol­ket“ eftir Oskar Hansen. Lagið varð til um sama leyti og jafn­að­ar­menn, undir for­ystu Thorvald Stauning, kynntu nýja stefnu­skrá „Danmark for fol­ket“ árið 1934.

[adspot]Sjö stórar myndir

Þegar þeir Jacob Brostrup og Martin E.O. Grunz byrj­uðu að skipu­leggja efn­is­tökin varð þeim fljót­lega ljóst að ekki yrði vinn­andi vegur að hafa allt með. Þótt vegg­plássið væri all­mikið yrðu þeir að velja og hafna. Í blaða­við­tali sögð­ust tví­menn­ing­arnir hafa fengið mjög frjálsar hendur varð­andi efn­is­tökin. Þeir, og Henning Sass Larsen, hefðu verið sam­mála um að mynd­irnar ættu ekki að vera ein­hvers­konar tím­an­leg skrá­setn­ing þar sem reynt yrði að fylgja sögu flokks­ins frá stofnun til dags­ins í dag. Og þetta ættu ekki að vera por­trett­myndir af for­mönnum og ráð­herrum, nóg væri til af slíku.

Nið­ur­staðan varð sjö stórar myndir þar sem, í hverri fyrir sig, er lögð áhersla á ákveðna þætti í dönsku þjóð­lífi og jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn hefur komið við sögu. Brostrup sagð­ist hafa reynt að hafa hverja mynd þannig að í henni rúm­að­ist margt og ekki væri allt aug­ljóst ef litið væri á mynd­ina í skynd­ingu. Sér hefði líka þótt nauð­syn­legt að mynd­irnar yrðu, hvað lita­valið varð­aði, líf­legar, eins og hann orð­aði það.

Ekki setið auðum höndum

Mynd­irnar sjö voru fyrir skömmu hengdar upp í fund­ar­her­bergi jafn­að­ar­manna á Krist­jáns­borg. Af því til­efni voru þar sam­an­komnir nokkrir fyrr­ver­andi ráð­herrar flokks­ins og þing­menn, auk frétta­manna. Óhætt er að taka undir þau orð lista­manns­ins að í hverri mynd rúmist margt og þar er að finna fjöl­mörg smá­at­riði sem ekki blasa við né eru aug­ljós við fyrstu sýn. Og málar­inn hefur ekki setið auðum höndum enda sagð­ist hann hafa unnið nótt og dag síðan hann hófst handa.

Það sem er og það sem ekki er

Danskir gagn­rýnendur eru ekki vanir að taka á hlut­unum með silki­hönskum. Og það á sann­ar­lega við um mynd­irnar sjö sem nýlega voru afhjúpaðar. Hjá þeim fékk „Folkets Tid“ væg­ast sagt blendnar mót­tökur. Sum blað­anna hafa eytt miklu púðri í umfjöllun um mynd­irnar, þar hefur Politi­ken verið fremst í flokki en þar hafa birst margar greinar um mynd­irnar. Það er ekki hin tækni­lega hlið mynd­anna, vinna mál­ar­ans, sem einkum er gagn­rýnd heldur efn­is­tökin. Í mynd­unum sé dregin upp ákveðin glans­mynd af sögu jafn­að­ar­manna, lögð áhersla á allt sem jákvætt getur talist í tæp­lega 150 ára sögu flokks­ins en lítt eða ekki það nei­kvæða. For­mönnum og for­sæt­is­ráð­herrum flokks­ins sé gert mis­hátt undir höfði, sumir sjá­ist hrein­lega ekki meðan aðrir fái mikla athygli í mynd­unum.

Þegar blaða­menn Politi­ken gengu á Henrik Sass Larsen varð­andi valið á þeim for­ingjum Jafn­að­ar­manna­flokks­ins sem sýndir eru á mynd­unum svar­aði hann því til að hann hefði í sam­tölum við mál­ar­ann nefnt ákveðin nöfn, meira hefði það nú ekki verið. „Það er kannski í eðli okkar allra að muna frekar það sem vel er gert en hitt“ sagði Henrik Sass Larsen þegar hann var spurður um söl­una á raf­orku­fyr­ir­tæk­inu DONG, á öðrum ára­tug þess­arar aldar, í stjórn­ar­tíð Helle Thorning-Schmidt. Sú sala var geysi­lega umdeild og er eitt­hvert mesta hita­mál í dönskum stjórn­málum um margra ára skeið. Eftir á við­ur­kenna flestir að ákvörð­unin um söl­una á DONG hafi verið röng, verðið allt of lágt og kaup­and­inn, Goldman Sachs, hagn­að­ist um millj­arða danskra króna þegar hann seldi hlut­inn tveimur árum síðar. Mörgu fleiru þótti blaða­mönnum Politi­ken hafa verið stungið undir stól á lérefti Jacob Brostrup. Meðal ann­ars er lítið gert úr hlut Helle Thorning-Schmidt, á einni af mynd­unum sést hún ganga yfir lesta­teina, í átt að Mette Frederik­sen eft­ir­manni sínum á for­manns­stóli. Það að lista­mað­ur­inn láti fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra ganga yfir lesta­teina þótti blaða­mönnum Politi­ken ærið gild­is­hlaðið. Þótt mörgum jafn­að­ar­mönnum hafi þótt stjórn­ar­stefna Helle Thorning- Scmidt hall­ast nokkuð til hægri má ekki líta fram hjá því að frá alda­mótum hefur jafn­að­ar­mönnum ein­ungis einu sinni tek­ist að vera í rík­is­stjórn, það var frá 2011 -2015, undir stjórn Helle Thorning- Schmidt.

Að ljúga með penslinum

Þótt margir blaða­menn, og sagn­fræð­ingar hafi gagn­rýnt efn­is­tök þeirra Jacob Brostrup og Martin E.O. Grunz og sneytt fram hjá mörgu því sem jafn­að­ar­menn vilja kannski gleyma er þó sýnu alvar­leg­ast þegar „bein­línis er logið með pensl­inum“ eins og kom­ist er að orði í þremur dönsku dag­blað­anna. Þarna vísa þeir í mynd af kútt­ernum Henny, sem er í for­grunni einnar mynd­anna. Myndin er máluð eftir ljós­mynd sem tekin var í maí árið 1945, þar er Henny á leið til Dan­merkur frá Svíþjóð. Henny var einn þeirra báta sem flutti um það bil sjö þús­und Gyðinga frá Danmörku til Sví­þjóðar og forð­aði þeim þannig úr klóm nas­ista. Málarinn Jacob Brostrup hefur skipt út eða fjar­lægt nokkra þeirra sem eru á ljós­mynd­inni. Aftan við stýr­is­húsið á mynd Brostrup standa hjónin Ella og Hans Hedtoft. Hans Hedtoft var einn helsti áhrifa­maður í danskri póli­tík og vann leynt og ljóst gegn nas­istum á her­náms­ár­unum í Danmörku. Það eru þó ekki Hedtoft hjónin sem vekja mesta athygli á mál­verki Brostrup heldur er það skip­stjór­inn sem stendur í stýr­is­hús­inu. Þar hefur málar­inn gert sér lítið fyrir og skip­stjór­inn er eng­inn annar en Vilhelm Buhl sem var for­sæt­is­ráð­herra um skeið árið 1942 og aftur í nokkra mán­uði eftir að stríð­inu lauk. Það að Jacob Brostrup skuli hafa valið að gera Vilhelm Buhl að skip­stjóra á fiski­bátnum hefur sætt harðri gagn­rýni. Árið 1942, þegar Vilhelm Buhl var for­sæt­is­ráð­herra, hélt hann ræðu þar sem hann hvatti landa sína til að segja til þeirra sem ynnu gegn Þjóð­verjum. Þessi ræða sætti mik­illi gagn­rýni. Hann neydd­ist til að segja af sér skömmu síðar, að kröfu Þjóð­verja sem þrátt fyrir áður­nefnda ræðu töldu hann ekki „sinn mann“.

Rétt er að geta þess að fund­ar­her­bergi jafn­að­ar­manna, frekar en önnur slík á Krist­jáns­borg, er að jafn­aði ekki opið almenn­ingi. Hins vegar er af og til boðið upp á skoð­un­ar­ferðir um höll­ina og þá geta þátt­tak­endur oft­ast nær fengið að sjá fund­ar­her­bergi flokk­anna

Á hlekknum hér fyrir neðan má sjá allar mynd­irnar sem Jacob Brostrup mál­aði fyrir þing­flokk jafn­að­ar­manna og hanga uppi í fund­ar­her­bergi þeirra á Krist­jáns­borg.

www.brostrup.dk

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár