Eignir og tekjur þeirra ríkustu jukust mest

Hlut­falls­legur ójöfn­uður virð­ist hafa minnkað í fyrra, bæði í tekjum og eignum. Hins vegar hefur bilið á milli ríkra og fátækra auk­ist í krónu­tölum, þar sem meiri fjár­munir runnu til þeirra sem eru efna­meiri.

Ójöfn­uður, mældur sem hlut­falls­legur munur á tekjum og eignum rík­asta fimmt­ungs þjóð­ar­innar og þess efna­minnsta, minnk­aði í fyrra frá árinu 2019. Hins vegar hefur ójöfn­uð­ur­inn í krónu­tölum auk­ist á sama tíma. Einnig gæti ójöfn­uður auk­ist í fram­tíð­inni vegna fjölda fólks sem nýtti sér sér­eignar­úr­ræði stjórn­valda í fyrra. Þetta kemur fram þegar tölur Hagstofu um tekju- og eigna­dreif­ingu eru skoð­aðar.

Hlutfallslegur ójöfnuður minni

Í síð­ustu viku greindi Við­skipta­ráð frá því að litlar sem engar vís­bend­ingar væru um vax­andi ójöfnuð vegna yfir­stand­andi kreppu, þar sem tekju­jöfn­uður virð­ist hafa nokkurn veg­inn staðið í stað á síð­asta ári, miðað við árið á undan. Máli sínu til stuðn­ings vís­aði ráðið í tölur Hagstofu, en sam­kvæmt þeim var hlut­falls­leg aukn­ing tekna til­tölu­lega jöfn á milli tekju­tí­unda í fyrra.

Ein leið til að mæla ójöfnuð er með svoköll­uðu 20/20 hlut­falli, þar sem tekjur efna­mesta fimmt­ungs þjóð­ar­innar eru bornar saman við tekjur efna­minnsta fimmt­ungs­ins. Þetta hlut­fall lækk­aði í fyrra, sem gefur til kynna að hlut­falls­legur tekju­ó­jöfn­uður hafi minnkað.

Sömu sögu er að segja um eigna­dreif­ingu, en sam­kvæmt tölum Hagstofu lækk­aði 20/20 hlut­fallið í eignum skarpt í fyrra, eftir að hafa hækkað í fimm ár í röð. Samkvæmt þessum mæli­kvarða hefur hlut­falls­legur eigna­ó­jöfn­uður ekki verið minni hér á landi í tíu ár.

Ójöfnuður í krónutölum jókst

Þessir mæli­kvarðar sýna hins vegar ein­ungis hlut­falls­legan mun á milli tekju- og eigna­tí­unda. Ef krónu­tölu­hækk­anir eru skoð­aðar blasir önnur mynd við, en sam­kvæmt þeim jókst ójöfn­uður í fyrra.

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær voru þau þrjú störf sem hækk­uðu mest í mán­að­ar­launum í fyrra öll hátekju­störf. Þetta voru sér­fræð­ingar við lækn­ingar, ásamt yfir­manna­stöðum í bygg­ing­ar­iðn­aði og störfum sem tengj­ast ráð­gjöf og sölu á verð­bréfum. Ef dreif­ing heild­ar­tekna fyrir síð­asta ár er skoðuð sést einnig að for­skot efn­aðra á aðra jókst. Samkvæmt henni juk­ust tekjur efna­mesta fimmt­ungs­ins að með­al­tali um milljón á síð­asta ári, á meðan tekjur efna­minnsta fimmt­ungs­ins juk­ust að með­al­tali um 172 þús­und. Munurinn er því rúm­lega fjór­faldur.

Ef litið er á eigna­dreif­ingu lands­manna fæst sama nið­ur­staða, efn­aðir högn­uð­ust mun meira heldur en efna­litlir. Á þetta benti Kristrún Frosta­dóttir fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Twitter-þræði í gær, en sam­kvæmt henni rann tæpur helm­ingur af aukn­ingu eigna Íslend­inga án fast­eigna og líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­inga til 10 pró­sent þjóð­ar­innar sem átti mestu eign­irnar fyrir. Sama mun má sjá í aukn­ingu eigin fjár Íslend­inga, sem sýnir eignir þeirra að frá­dregnum skuldum. Þráðinn má sjá hér að neðan.

Ójöfnuði slegið á frest

Ýmsir sér­fræð­ingar hafa spáð auknum ójöfn­uði í kjöl­far kór­ónu­krepp­unnar, þar sem ljóst var að hún kæmi verst niður á illa launuð störf í veit­inga- og ferða­þjón­ustu. Samkvæmt tölum Hagstofu um tekju­dreif­ingu virð­ist þó sem úrræði stjórn­valda, til við­bótar við atvinnu­leys­is­bætur og aðrar félags­legar greiðslur, hafi komið í veg fyrir að aukn­ingin hafi verið mikil.

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um breytt­ist sam­setn­ing tekna tölu­vert í fyrra. Atvinnu- og fjár­magnstekjur lands­manna dróg­ust saman, en gríð­ar­lega mikil aukn­ing var í „öðrum tekjum“ sem inni­heldur allar þær tekjur sem falla ekki inn í hina tvo flokk­ana.

Um helm­ingur þess­ara greiðslna, eða um 50 millj­arðar króna, voru atvinnu­leys­is­bætur, en rúmur þriðj­ungur þeirra voru auknar líf­eyr­is­greiðslur lands­manna. Þar af juk­ust líf­eyr­is­greiðslur til 16-64 ára um tæpa 23 millj­arða, en það er sama upp­hæð og var greidd út í sér­eignar­úr­ræði stjórn­valda í fyrra, sem fól í sér heim­ild til að taka út sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn til að mæta tekju­falli.

Því má rekja tæpan fjórð­ung af tekju­aukn­ingu lands­manna í gegnum greiðslur sem ekki ná til atvinnu- eða fjár­magnstekna til sér­eignar­úr­ræð­is­ins. Þar sem ein­stak­lingar sem nýttu sér þetta úrræði fá minni líf­eyri greiddan út seinna gæti því ójöfn­uður auk­ist í fram­tíð­inni vegna úrræð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár