Hægt sé að lesa á milli línanna og sjá hvaða fyrirtæki uppsagnarstyrkir séu hugsaðir fyrir

Þing­maður Pírata telur lík­legt að sagan muni dæma frum­varp um að greiða 27 millj­arða króna í styrkti til fyr­ir­tækja til að hjálpa þeim að segja upp fólki, sem mis­tök. Stöð­ug­leika þorra launa­manna sé fórnað fyrir hags­muni nokk­urra fyr­ir­tækja­eig­enda.

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Smári McCarthy, þing­maður Pírata og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd, seg­ist ekki hafa átt von á því á árinu 2020 að meiri­hlut­inn í nefnd­inni myndi „ákveða að skapa sterka hvata fyrir gríð­ar­lega umfangs­miklum, jafn­vel sögu­legum, hóp­upp­sögnum.“

Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti hans um frum­varp til laga um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti, sem afgreitt var úr nefnd­inni í gær með sam­þykki nefnd­ar­manna úr stjórn­ar­flokk­unum, auk þess sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, skrif­aði undir meiri­hluta­á­litið með fyr­ir­vara.

Frum­varpið gerir ráð fyrir að rík­is­sjóður greiði fyr­ir­tækjum 27 millj­arða króna til að hjálpa þeim að segja upp fólki.

Í minni­hluta­á­liti Smára, sem hann er einn skrif­aður fyrir, segir að það kunni ekki góðri lukku að stýra þegar rík­is­stjórnin leggur fram sér­tæka aðgerð, dul­búna sem almenna aðgerð, í þeim til­gangi að leysa flókið og víð­feðmt vanda­mál. „Það er hægt að lesa á milli lín­anna í frum­varp­inu og sjá hvaða fyr­ir­tæki það er hugsað fyrir. Almenn­ingur á Íslandi hefur fullan skiln­ing á því að núver­andi ástand er flókið og erfitt og sam­staðan und­an­farna mán­uði hefur sýnt vilja í verki til að íslenskt sam­fé­lag komi sterkara undan heims­far­aldr­inum. Þegar hags­munum almenn­ings er hins vegar fórnað á alt­ari örfárra fyr­ir­tækja eins og hér er gert skal engan undra þótt skiln­ing­ur­inn fari þverr­andi.“

Fjölmörg fyr­ir­tæki sjái að óbreyttu fram á gjald­þrot á næstu vikum og mán­uðum. Frumvarp rík­is­stjórn­ar­innar muni eflaust bjarga ein­hverjum þeirra en aug­ljóst sé að þónokkur hluti þeirra þrátt fyrir það fara í þrot. Svarið við þeirri stöðu sé ekki fólgið í einu risa­stóru sleggju­frum­varpi heldur mörgum minni og hnit­mið­aðri aðgerðum, að mati Smára. Hann telur lík­legt að sagan muni „dæma þetta úrræði sem mis­tök þar sem hags­munum og stöð­ug­leika þorra launa­manna var fórnað fyrir hags­muni nokk­urra fyr­ir­tækja­eig­enda.“

Leggur til fjórar aðrar leiðir

Smári segir í álit­inu að þótt vissu­lega sé girt fyrir ákveðnar gerðir mis­notk­unar og ýmis­legt gert til að tryggja starfs­mönnum rétt­indi sé þeim boðin vinna á ný þá sé ljóst að í frum­varp­inu sé á ferð­inni réttur fyrir ótil­greindan fjölda fyr­ir­tækja til opin­bers fjár­stuðn­ings í tengslum við upp­sagnir ótil­greinds fjölda starfs­manna. „Starfs­mönnum verður gert að vinna á upp­sagn­ar­fresti, á kostnað rík­is­sjóðs. Að upp­sagn­ar­fresti liðnum er atvinnu­rek­andi hvattur til að bjóða starfs­manni sem sagt var upp end­ur­ráðn­ingu með sömu kjara­samn­ings­bundnu rétt­indum og hann hafði áður en ekki endi­lega sömu launum, hafi þau verið hærri en kjara­samn­ingar segja til um.“

Hann telur aðrar leiðir til boða, en til að kort­leggja þær þyrfti að grípa til sér­tæk­ari lausna. Smári segir að eðli­legt gjald fyrir gagn­rýni sé betri hug­mynd.

Smári leggur til fjórar leiðir.

[adspot]Í fyrsta lagi telur hann að ríkið gæti boð­ist til að kaupa nýtt útgefið hlutafé fyr­ir­tækja sem reka mik­il­væga sam­fé­lags­lega inn­viði með þeim áhrifum að hlutur eig­enda minnkar en að fyr­ir­tækin fyr­ir­geri sér á móti rétti til útgreiðslu arðs og við­líka ráð­staf­ana þar til hlutur rík­is­ins hefur verið keyptur til baka af fyr­ir­tæk­inu sjálfu.

Í öðru lagi mætti liðka fyrir end­ur­reisn þeirra fyr­ir­tækja sem ekki telj­ast reka mik­il­væga sam­fé­lags­lega inn­viði með því að rík­is­sjóður keypti skuldir fyr­ir­tækj­anna.

Í þriðja lagi mætti nýta hluta­bóta­leið­ina betur og lengur sam­hliða öðrum aðgerðum. Smári telur raunar það vera mikla mót­sögn að keyra þessar tvær lausnir sam­hliða þar sem hvat­arnir stang­ast á. „Líklegt er að nokkur fjöldi fyr­ir­tækja hafni hluta­bóta­leið­inni um leið og tæki­færi gefst til að segja upp starfs­fólki á kostnað rík­is­sjóðs. Með því að sam­keyra hluta­bóta­leið­ina við öfl­ugan nýsköp­un­ar­pakka og jafn­vel útvíkka hluta­bóta­leið­ina þannig að hún tryggði skil­yrð­is­lausar atvinnu­leys­is­bætur í ein­hvern tíma hefði mátt greiða fyrir því að atvinnu­lífið næði sér smám saman yfir lengra tíma­bil, og yrði jafn­vel sterkara eftir á.“

[links]Í fjórða lagi bendir hann á að upp­söfnuð fjár­fest­ing­ar­þörf hins opin­bera sé gíf­ur­lega mikil. „Nærtækt dæmi er að hús­næði sýkla- og veiru­fræði­deildar Land­spít­al­ans er ónýtt og hefur verið það í minnst fimmtán ár. Loka þurfti tveimur frumu­rækt­un­ar­stofum út af myglu sem skemmdi öll sýni 2006 en lítið sem ekk­ert hefur verið gert til að laga aðstæður þess­arar deildar sem öll þjóðin hefur reitt sig á. Ef búinn væri til for­gangs­listi yfir öll þau verk­efni sem vitað er að rík­is­stjórnir und­an­far­inna ára­tuga hafa van­rækt, og ráð­ist í þau af ákefð á grunni góðrar skulda­stöðu rík­is­sjóðs, mætti bæði efla atvinnustigið veru­lega og um leið auka lík­urnar á því að fólk geti nýtt sam­fé­lags­lega inn­viði lands­ins til að búa til enn frek­ari efna­hags­leg, sam­fé­lags­leg og menn­ing­ar­leg tæki­færi. Samkvæmt spátöflum Seðla­banka Íslands sem birt­ast í maí­hefti Pen­inga­mála 2020 má sjá að gert er ráð fyrir að fram­leiðslu­spenna minnki minnst næstu þrjú ár. Það er eðli­legt að ríkið nýti þessa van­nýttu fram­leiðslu­getu til góðra verka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár