Fyrirtæki sem sækja nýtt hlutafé verði undanþegin skilyrðum um arðsúthlutun

Efnahags- og við­skipta­nefnd gerði nokkrar breyt­ing­ar­til­lögur á frum­varpi til laga um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Kostn­aður aðgerð­anna áætl­aður 27 millj­arðar.

Óli Björn Kárason er formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Óli Björn Kárason er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Efnahags- og við­skipta­nefnd leggur til að nýtt ákvæði um und­an­þágu frá skil­yrði um arðsút­hlutun verði bætt inn í lög um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Ákvæðið myndi veita fyr­ir­tækjum sem ráð­ist hafa í hluta­fjár­aukn­ingu und­an­þágu frá þeirri meg­in­reglu að ekki skuli koma til arðsút­hlut­unar fyrr en að fjár­stuðn­ingur sam­kvæmt frum­varp­inu hafi verið að fullu tekju­færður eða end­ur­greiddur.

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir: „Bent hefur verið á að ástæða kunni að vera til að heim­ila und­an­þágu frá þessu skil­yrði í til­vikum þegar um nýtt hlutafé er að ræða sem orðið hefur til á grund­velli hluta­fjár­aukn­ingar sem ráð­ist er í eftir að fjár­hags­legir erf­ið­leikar, sem rekja má beint eða óbeint til heims­far­ald­urs­ins, komu upp.“

Ástæðan fyrir und­an­þág­unni er sögð vera að frum­varpið í núver­andi mynd geti tak­markað mögu­leika atvinnu­rek­enda til að halda velli, enda gæti skil­yrði um arðsút­hlutun haft fælandi áhrif á fjár­festa.

Þar segir einnig að und­an­þágu­á­kvæðið skuli túlkað þröngt. Skatt­ur­inn hefur þannig rúmar heim­ildir til að hafna und­an­þágu­beiðnum. „Þetta getur t.d. átt við ef sýnt þykir að ákvörðun um hluta­fjár­aukn­ingu hafi verið tekin í þeim til­gangi fremstum að kom­ast hjá skil­yrð­inu um arðsút­hlutun eða ef slík ákvörðun var tekin áður en ljóst varð að far­aldur kór­ónu­veiru mundi hafa veru­lega slæmar efna­hags­legar afleið­ingar hér á landi.“

Miðað við 1. apríl í stað 1. mars

Ein af breyt­ing­ar­til­lögum nefnd­ar­innar snýr að við­mið­un­ar­tíma­bili tekju­falls. Miðað verði við að tekju­fall fyr­ir­tækja hafi verið 75 pró­sent frá 1 apríl í stað 1. mars, og til upp­sagn­ar­dags. Tölu­verður fjöldi ferða­manna var hér á landi í fyrri hluta mars og í umsögnum til nefnd­ar­innar kemur fram að mars­mán­uður hafi ekki gefið raun­hæfa mynd af því tekju­falli fyr­ir­tækja sem rétt væri að miða við.

Á meðal skil­yrða í frum­varp­inu er að atvinnu­rek­andi hafi ekki keypt eigin hluti frá 15. mars síð­ast­liðnum. Í áliti nefnd­ar­innar segir að bent hafi verið á að ástæða sé til að veita und­an­þágu frá þessu skil­yrði. Vísað er í umsögn KPMG þar sem kemur fram að skil­yrðið geti talist eðli­legt þegar um veru­legan eign­ar­hlut er að ræða, „enda megi í slíku til­viki gera ráð fyrir að starfs­sam­bandið sé fremur afleið­ing eign­ar­að­ild­ar­innar en öfugt.“

Þar að auki er vikið að kaup­rétt­ar­samn­ingum í umsögn KPMG, þar sem félag hafi skuld­bundið sig til að kaupa hluti starfs­manns við starfs­lok. Þar segir að „í slíku til­viki geti verið óeðli­legt að bann við kaupum á eigin hlutum girði fyrir efndir slíkra samn­inga.“ Nefndin leggur því til að orða­lags­breyt­ing í frum­varp­inu taki af allan vafa um slíkir samn­ingar, gerðir fyrir 15. mars, megi vera efndir án þess að það komi í veg fyrir stuðn­ing. Orða­lags­breyt­ingin kemur til vegna þess að í frum­varp­inu er skýrt kveðið á um úthlutun arðs en sam­kvæmt umsögn KPMG geti orða­lagið valdið vafa þegar kemur að lækkun hluta­fjár og kaup eigin hluta.

Breytingar á grein um stuðning vegna orlofslauna

Nefndin leggur einnig til breyt­ing­ar­til­lögu á grein sem snýr að stuðn­ingi vegna orlofs­launa. „Nefnd­inni var bent á að ekki væri nægj­an­legt að taka fram í ákvæð­inu að stuðn­ing­ur­inn skyldi greið­ast vegna orlofs­launa sem launa­maður kynni að eiga rétt á heldur stæðu efni til að taka fram að orlofs­launin hefðu verið greidd við starfs­lok.” Með því að taka það sér­stak­lega fram verði skýrt að heim­ild til að greiða atvinnu­rek­anda stuðn­ing vegna orlofs­launa virkj­ast þegar starfs­sam­bandi er lokið, en sam­kvæmt dóma­fram­kvæmd er óheim­ilt að láta starfs­mann taka orlof á upp­sagn­ar­fresti.

Þá leggur meiri­hlut­inn til að breyta grein frum­varps­ins sem snýr að tekju­færslu. Í álit­inu segir: „Komi til þess að fjár­stuðn­ingur sé umfram það sem dugar til að jafna að fullu tap á yfir­stand­andi rekstr­ar­ári og yfir­fær­an­legt tap frá fyrri árum skal sam­kvæmt ákvæð­inu tekju­færa stuðn­ing­inn á næstu sex árum þar á eftir, 10% á ári fyrstu tvö árin og 20% á ári næstu fjögur ár þar á eftir. Meiri hlut­inn leggur til að í stað þessa verði miðað við fjögur ár og 25% á ári.“

Áætlaður kostnaður 27 milljarðar

Nefndin tekur einnig fyrir þá grein frum­varps­ins sem snýr að birt­ingu upp­lýs­inga um fjár­stuðn­ing svo að hún sam­ræm­ist betur sjón­ar­miðum um rétt almenn­ings til aðgangs að upp­lýs­ingum um ráð­stöfun opin­bers fjár. Nefndin leggur þannig til að í frum­varp­inu verði kveðið á um skyldu Skatts­ins til birt­ingar upp­lýs­inga um nöfn styrk­þega, í stað þess að talað sé um að Skatt­inum sé heim­ilt að birta upp­lýs­ing­arnar. Jafn­framt leggur nefndin til að í frum­varp­inu verði tekið fram að birta skuli upp­lýs­ingar um fjár­hæð stuðn­ings til hvers atvinnu­rek­anda fyrir sig.

Áætlaður kostn­aður við þennan hluta aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar, þann sem snýr að stuðn­ingi við atvinnu­rek­endur vegna greiðslu á hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti, er 27 millj­arðar króna.

Undir nefnd­ar­á­litið skrifa full­trúar stjórn­ar­flokk­anna sem mynda meiri­hluta nefnd­ar­innar. Auk þeirra skrifar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, undir með fyr­ir­vara. Aðrir nefnd­ar­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokka skrifa ekki undir álitið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár