Loksins – eftir 13 ára seinkun

Þegar til­kynnt var um bygg­ingu nýs flug­vallar og flug­stöðvar í Berlín árið 1996 átti fram­kvæmdum að ljúka árið 2007. Nú hillir undir að hann verði tek­inn í notkun, þrettán árum á eftir áætlun.

Rúllustigarnir eru enn tómir. En listaverkin eru komin á sinn stað.
Rúllu­stig­arnir eru enn tómir. En lista­verkin eru komin á sinn stað. Mynd: berlin-airport.de

Stundum er haft á orði að góðir hlutir ger­ist hægt þegar eitt­hvað tekur lengri tíma en ráð var fyrir gert. Árið 1996, þegar til­kynnt var að nýr flug­völlur og flug­stöð myndi, eftir ell­efu ár, árið 2007, leysa af hólmi þrjá flug­velli, Tegel, Schönefeld og Tempel­hof, sem fyrir voru í næsta nágrenni Berlínar þótti það hið besta mál. Tempel­hof var reyndar lokað árið 2008. Fæsta grun­aði að þessir góðu hlutir myndu ganga svo hægt að stutt yrði til loka árs­ins 2020 þegar flug­stöðin og völl­ur­inn kæmust í gagnið en nú er miðað við að það verði 31. októ­ber næst­kom­andi.

Hugmyndir um nýjan flugvöll

Nokkru eftir fall Berlín­ar­múrs­ins árið 1989, og sam­ein­ingu Þýska­lands ári síðar, hófust umræður um að í stað þriggja, til­tölu­lega gam­alla flug­valla, skyldi gerður einn stór og nútíma­legur flug­völlur, í nágrenni Berlínar. Með öllu til­heyr­andi, eins og það var orðað. Slíkur völlur væri um leið tákn­rænn, tákn hins sam­ein­aða Þýska­lands.

[adspot]

2. maí árið 1991 var hald­inn stofn­fundur rekstr­ar­fé­lags þessa fyr­ir­hug­aða flug­vallar og jafn­framt ákveðið að Berlín­ar­borg og sam­bands­ríkið Brand­en­burg myndu, hvort um sig eiga 37.5% í rekstr­ar­fé­lag­inu og þýska ríkið 25%. Árið 1993 var til­kynnt að nýja flug­stöðin skyldi rísa í nágrenni Schönefeld vall­ar­ins, átján kíló­metrum sunnan við mið­borg Berlínar, og að ein flug­braut gamla Schönefeld yrði hluti hins nýja flug­vallar.

Samningaviðræður og málaferli

Schönefeld er á mörkum Berlínar og sam­bands­rík­is­ins Brand­en­burg. Þótt íbúar á þessu svæði hefðu haft Schönefeld flug­völl­inn í næsta nágrenni leist þeim miður vel á að fá þennan nýja ofur­flug­völl, eins og hann var kall­aður í næsta nágrenni. Á svæð­inu var 300 manna þorp, sem fyrir lá að yrði jafnað við jörðu og íbú­arnir yrðu að flytja í nýtt þorp, sem kæmi í stað hins gamla. Skemmst er frá því að segja að þessi mál end­uðu fyrir dóm­stólum og, eftir tíu ára vafstur, varð nið­ur­staðan sú að heim­ildin til að byggja flug­völl­inn stóð, sú nið­ur­staða lá fyrir árið árið 2006. Öllum var ljóst að nýi flug­völl­ur­inn kæm­ist ekki í gagnið árið 2007, eins og upp­haf­lega var stefnt að, sú dag­setn­ing var fokin út í veður og vind.

Flughafen Berlin Brandenburg Willy Brandt

Þegar und­ir­bún­ingur vegna hins nýja flug­vallar hófst var hann kall­aður Berlin Brand­en­burg International Airport. Allir hlut­að­eig­andi voru sáttir við nafnið og líka þriggja stafa skamm­stöf­un­ina BBI. Sú skamm­stöfun var hins vegar þegar í notkun á Indlandi. Þá var ákveðið að skamm­stöfun vall­ar­ins yrði BER. Síðar var ákveðið að flug­völl­ur­inn skyldi kenndur við Willy Brandt, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Berlínar, 1957 – 1966, og kansl­ara Vestur-Þýska­lands frá 1969 til 1974. Völl­ur­inn og flug­stöðin bera þess vegna þetta langa nafn: Flug­hafen

Berlin Brand­en­burg Willy Brandt. Skamm­stöf­unin BER stendur hins­vegar óbreytt.

Seinkun á seinkun ofan

2011, 2012, 2013, 2016, 2017, 2019 (eftir hádegi).

Þegar ljóst var að BER yrði ekki til­bú­inn til notk­unar árið 2007, nefndu for­svars­menn ártalið 2011. Síðan fylgdu ártölin hér að ofan í kjöl­farið, og þegar greint var frá því að stefnt væri að opnun árið 2017 sagði sér­fræð­ingur um flug­vall­ar­mál, í við­tali, að kannski væri árið 2019 raun­hæf­ara, og bætti við „eftir hádegi“. Þetta þótti ýmsum óþarfa svart­sýni en löngu er komið á dag­inn að sér­fræð­ing­ur­inn hafði ekki tekið sér­lega djúpt í árinni.

Fúsk á fúsk ofan

Hvernig stendur á því að flug­völlur, með til­heyr­andi flug­stöð, sem átti að taka í notkun árið 2007 er ekki enn, þrettán árum síðar, kom­inn í gagnið?

Svarið við því er í stuttu máli að við bygg­ingu flug­stöðv­ar­innar (flug­braut­irnar eru löngu til­búnar) fór fjöl­margt úrskeiðis. Í mörg hund­ruð blað­síðna skýrslu rann­sókn­ar­nefndar sem þýska þingið skip­aði eru nefndir 150 þús­und gallar, stórir og smáir. Þar á meðal að 600 veggir sem áttu að vera eld­traustir reynd­ust ekki eld­traustir og varð að skipta um þá alla. Eldvarna- og loft­ræsti­kerfi voru ófull­nægj­andi og upp­fylltu ekki lág­marks­kröfur, loft í flug­stöðv­ar­bygg­ing­unni hafði ekki nægi­legt burð­ar­þol. Og svona mætti áfram telja. Mörg þeirra fyr­ir­tækja sem unnið hafa að fram­kvæmd­unum á liðnum árum eru farin á haus­inn og því erfitt að draga ein­hvern til ábyrgðar.

Þýskir stjórn­mála­menn hafa margir hverjir kallað þessa fram­kvæmd mesta klúður í þýskri bygg­inga­sögu. Í umræðum í þing­inu lagði einn þing­maður til að flug­stöðin yrði gerð að „Safni mis­tak­anna“.

Kostnaðurinn hefur meira en tvöfaldast

Upp­haf­leg fjár­hags­á­ætlun vegna BER hljóð­aði uppá 3 millj­arða evra (481 millj­arð íslenskra króna) en nú er kostn­að­ur­inn orð­inn rúmir 7 millj­arðar evra (1123 millj­arðar króna) og á eftir að hækka tals­vert.

Er nýja flugstöðin kannski of lítil?

Síðan ákvarð­anir um bygg­ingu BER voru teknar fyrir tæpum 30 árum hefur margt breyst. Ferða­manna­fjöld­inn hefur marg­fald­ast, þótt ástandið sé öðru­vísi akkúrat núna vegna veirunnar. Á þess­ari stundu veit eng­inn hvaða áhrif veiru­far­ald­ur­inn kann að hafa á ferða­lög á næstu árum. Áður en veiran kom til sög­unnar voru þýskir fjöl­miðlar farnir að velta fyrir sér hvort nýi flug­völl­ur­inn BER yrði kannski of lít­ill til að anna umferð­inni, og hvað væri þá til ráða. Mjög þröngt er um flug­stöð­ina og því erfitt um vik að stækka hana.

Nokkrir þýskir stjórn­mála­menn hafa nefnt þann mögu­leika að Tegel flug­völl­ur­inn verði opinn áfram og þar verði gerðar nauð­syn­legar end­ur­bætur.

9 þúsund taka þátt í að prufukeyra kerfið

Fyrir nokkru aug­lýsti flug­vall­ar­stjórnin eftir níu þús­und sjálf­boða­liðum, til að prufu­keyra kerfið, eins og fram­kvæmda­stjór­inn orð­aði það. Fyrsta æfingin fór fram fyrir nokkrum dögum, þá mættu 400 „far­þegar“ í flug­stöð­ina. Þeir fengu upp­lýs­ingar um verk­efnið, sumir fengu ferða­töskur til að inn­rita, aðrir bak­poka og enn aðrir svo­kall­aðan stóran far­angur, sem þarf að inn­rita sér­stak­lega. Sumir voru einnig með far­angur sem ólög­legt er að fara með í flug. Síðan áttu „far­þeg­arnir“ að inn­rita sig, og fara að við­kom­andi brott­far­ar­hliði. Allt eins og í alvöru brott­för. En í stað þess að fara um borð í flug­vél fóru far­þeg­arnir í rútu þvert yfir völl­inn og eftir nokkra stund til baka og þá voru þeir orðnir að „komu­far­þegum“, þurftu að sækja far­ang­ur­inn og fara í gegnum toll­inn og út. Allt eins og í „alvör­unni“.

Að sögn flug­vall­ar­stjór­ans gekk þessi fyrsta æfing vel og í við­tölum sagði hann að „far­þeg­arnir“ hefðu komið með alls kyns ábend­ingar og auð­vitað hefði ýmis­legt komið í ljós sem gera mætti betur og úr því yrði bætt.

Grínararnir þurfa vonandi að finna nýtt viðfangsefni

Eins og nærri má geta hefur BER og allt klúðrið varð­andi fram­kvæmd­irnar, um ára­bil verið skot­spónn þýskra spaug­ara. Eng­el­bert Ludke Daldrup fram­kvæmda­stjóri flug­vall­ar­ins sagð­ist þess full­viss að BER verði tek­inn í notkun 31. októ­ber næst­kom­andi „við erum búin að til­kynna þessa dag­setn­ingu og ætlum að standa við það. Og þá þurfa grín­ar­arnir að finna sér ný við­fangs­efni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár