Gjá orðin til milli launafólks og stjórnenda

Mikill þrýst­ingur hefur verið settur á stærstu hlut­hafa N1 um að koma í veg fyrir þær launa­hækk­anir sem hafa komið fram hjá stjórn­endum félags­ins.

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, segir að þær launa­hækk­anir sem hafa átt sér stað hjá N1, og einnig hjá stjórn­endum hjá hinu opin­bera, sýni þá miklu gjá sem sé komin milli launa­fólks og síðan stjórn­enda.

Hann segir verka­lýðs­hreyf­ing­una hafa beitt sér fyrir því að und­an­förnu að líf­eyr­is­sjóð­irnir setji sér stefnu í launa­mál­unum, meðal ann­ars til að koma í veg fyrir að það mynd­ist gjá milli fólks­ins á gólf­inu og síðan stjórn­enda.

Á Facebook síðu sinni hvetur Gylfi hlut­hafa N1, þar helst líf­eyr­is­sjóði, til að draga launa­hækk­anir stjórn­enda hjá félag­inu til baka á aðal­fundi félags­ins sem fer fram á mánu­dag­inn.

Eins og greint var frá fyrr í dag þá hafa líf­eyr­is­sjóðir sem eru í hlut­hafa­hópi félags­ins lýst sig undr­andi á því launa­skriði sem verið hefur hjá félag­inu. „Í starfs­kjara­stefnu N1 hf. kemur fram að kjör for­stjóra skuli vera sam­keppn­is­hæf og taka mið af hæfni, ábyrgð og umfangi starfans. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn telur það orka mjög tví­mælist hvort fjár­hæð launa for­stjóra og hækkun þeirra sam­ræm­ist þessum við­miðum og þeim sjón­ar­miðum sem hlut­hafa­stefna sjóðs­ins byggir á,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna, sem er stærsti eig­andi félags­ins með 13,3 pró­sent hlut.

Egg­ert Þór Krist­ó­­fer­s­­son, for­­stjóri N1, var með tæpar 5,9 millj­­ónir króna á mán­uði í laun á síð­­asta ári. Heild­­ar­­laun hans á því ári námu 70,5 millj­­ónum króna og hækk­­uðu um rúm­­lega 12 millj­­ónir króna á árinu, eða um eina milljón króna á mán­uði.

Gylfi hvetur til þess að skattar séu hækk­aðir á há laun, og það sé séð til þess að svona miklar launa­hækk­anir þeirra sem eru að stjórna fyr­ir­tækjum séu ekki fram­kvæmdar þannig, að skatta­af­slættir getur leitt til þess, að í raun sé það almenn­ingur sem borgi fyrir þær með því að veita skatta­af­slætti. „Annars vegar á að setja 65% hátekju­skatt á ofur­tekjur með það að mark­miði að ef stjórnir taki svona ákvörðun eigi lung­inn af þeim að renna í rík­is­sjóð. Hins vegar þarf að setja skýr ákvæði um að fyr­ir­tæki geti ekki dregið slík ofur­laun frá tekjum þegar kemur að útreikn­ingi á tekju­skatti fyr­ir­tæk­is­ins. Hluthafa verði ein­fald­lega að greiða þennan reikn­ing sjálfir en ekki senda lands­mönnum hluta hans með lækkun skatt­stofna!“ segir Gylfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár