„Róðurinn mun þyngjast næstu vikurnar“

Land­læknir segir það vera alveg ljóst að róð­ur­inn muni þyngj­ast næstu vik­urnar og að fleiri muni veikj­ast og lát­ast. Þessi far­aldur muni taka sífellt meira á okkur, and­lega og til­finn­inga­lega.

Alma Möller landlæknir.
Alma Möller land­læknir. Mynd: Lögreglan

Alma Möller land­læknir ítrek­aði á dag­legum blaða­manna­fundi í dag að engin sér­tæk með­ferð væri við kór­ónu­veirunni. „Sem betur fer eru samt mörg lyf til skoð­unar og þess vegna er gjör­gæslu­með­ferð ein og sér ekki lækn­ing.“

Hún sagði að gjör­gæslu­með­ferð væri ætlað að styðja við starf­semi líf­færa, til að mynda með önd­un­ar­vél og lyfjum, á meðan lík­am­inn væri að vinna á veirunni.

„En því miður þá gengur það ekki alltaf og tölur erlendis frá benda á að það sé tölu­verð dán­ar­tíðni meðal þeirra sem lagst hafa inn á gjör­gæslu. En við vitum líka að heil­brigð­is­starfs­fólk og vís­inda­menn um allan heim leggja kapp á að þróa með­ferð og menn eru stöðugt að læra,“ sagði Alma.

Verðum að hlúa hvert að öðru

Þá sagði land­læknir það vera alveg ljóst að róð­ur­inn myndi þyngj­ast næstu vik­urnar og að fleiri myndu veikj­ast og lát­ast. „Þessi far­aldur mun taka sífellt meira á okkur, and­lega og til­finn­inga­lega og við þurfum því – eins og við höfum alltaf sagt – að hlúa hvert að öðru og að sjálfum okkur.“

Af þeim sem ­greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sex lát­in. Tveir lét­ust í gær, karl­maður á níræð­is­aldri sem var íbúi á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík­ og karl­maður á sjö­tugs­aldri sem lá á Land­spít­al­an­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár