Kveður Venstre en hvað svo?

Inger Støjberg er umdeild­asti stjórn­mála­maður Dan­merkur nú um stundir. Eftir að meiri­hluti á danska þing­inu, þar á meðal hennar eigin flokks­systkin, sam­þykkti að stefna henni fyrir lands­dóm sagði hún skilið við flokk­inn. Verður utan­flokka­þing­maður.

Støjberg var ráðherra innflytjendamála í stjórn Lars Løkke Rasmussen 2015–2019. Hún er fylgjandi harðri stefnu í málefnum flóttafólks og hælisleitenda.
Støjberg var ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke Rasmus­sen 2015–2019. Hún er fylgj­andi harðri stefnu í mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Mynd: EPA

Skive Fol­keblad birti á vef­síðu sinni langt við­tal við Inger Støjberg að morgni 4. febr­úar. Þar kom fram að hún hefði ákveðið að segja sig úr Venstre. Þegar við­talið birt­ist hafði Støjberg ekki til­kynnt flokks­for­yst­unni um ákvörðun sína. Jacob Ellemann-Jensen for­maður Venstre fékk sms-skila­boð, frá kunn­ingja sínum á Skive Fol­keblad, um úrsögn­ina 10 mín­útum áður en við­talið birt­ist. Í við­tali við dag­blaðið Politi­ken sagði hann að úrsögnin hefði ekki komið á óvart en hann hefði hins vegar vonað að Støjberg yrði áfram í Venstre.

[adspot]

Inger Støjberg, sem er fædd 1973, bauð sig fyrst fram til þings, Fol­ket­inget, árið 1998 en náði þá ekki kjöri. Hún bauð sig aftur fram árið 2001 og hefur setið á þingi síðan. Fyrir Venstre flokk­inn, þangað til fyrir þremur dögum. Støjberg var ráð­herra inn­flytj­enda­mála í stjórn Lars Løkke Rasmus­sen 2015–2019. Hún er fylgj­andi harðri stefnu í mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda.

Tilkynning og kvörtun

Forsaga þess að Inger Støjberg sagði sig úr Venstre (sem er hægri miðju­flokkur) er löng og verður ekki rakin hér í smá­at­riðum.

[links]Snýst í stuttu máli um til­kynn­ingu frá ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála, dag­settri 10. febr­úar 2016. Þar var lagt bann við því að pör, þar sem annar aðil­inn væri yngri en 18 ára, byggju saman í búðum hæl­is­leit­enda í Danmörku. Án und­an­tekn­inga. Þótt til­kynn­ingin væri gagn­rýnd, meðal ann­ars sagt að hún væri brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna stóð ráð­herr­ann fast á sínu, sagði bannið forða barn­ungum stúlkum úr þving­uðum hjóna­böndum. Í apríl 2016 sendi Umboðs­maður þings­ins dönsku Útlend­inga­stofn­un­inni bréf þar sem spurt var um fram­kvæmd „aðskiln­að­ar­fyr­ir­mæl­anna“. Umboðs­manni hafði borist kvörtun frá pari sem neytt var til að flytja í sundur, án þess að mál þess væri skoðað sér­stak­lega. Kvörtunin var kveikjan að rann­sókn, sem síðar leiddi til þess að Inger Støjberg verður dregin fyrir lands­dóm.

Skýrslan og Landsdómur

Rík­is­stjórn Mette Frederik­sen, sem tók við völdum í kjöl­far kosn­inga 5. júní 2019, ákvað haustið 2019 að fram skyldi fara rann­sókn á emb­ætt­is­færslum Inger Støjberg. Þeirri rann­sókn lauk með skýrslu sem afhent var þing­inu 14. des­em­ber í fyrra. Þar kom fram að Inger Støjberg hefði brotið lög með fyr­ir­skip­unum sínum varð­andi hæl­is­leit­endur (til­kynn­ingin frá 10.2. 2016) og auk þess logið að þing­inu. Sjálf hefur hún alla tíð neitað að hafa fyr­ir­skipað aðskilnað án þess að hvert mál yrði skoðað sér­stak­lega. Margir þing­menn nefndu, í umræðum, að málið ætti að fara fyrir Landsdóm (rigs­ret).

Lands­dómur er sér­stakur dóm­stóll, skip­aður allt að 15 hæsta­rétt­ar­dóm­urum og jafn­mörgum „leik­mönnum“ sem þingið til­nefnir, þeir mega ekki vera starf­andi þing­menn. Lands­dómur dæmir ein­göngu í málum sem varða starf­andi, eða fyrr­ver­andi ráð­herra. Þingið ákvað, eftir að áður­nefnd skýrsla um emb­ætt­is­færslu Inger Støjberg lá fyrir, að fá sér­staka ráð­gjaf­ar­nefnd til að meta hvort mál hennar ætti að fara fyrir Landsdóm. Nið­ur­staða ráð­gjaf­ar­nefnd­ar­innar var að svo væri, og 14. jan­úar lá fyrir að meiri­hluti þing­manna studdi ákæru. Síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 2. febr­úar, ákvað danska þingið, eftir langar umræður og margar ræður, að ákæra Inger Støjberg. Þingmenn á danska þing­inu eru 179, 139 studdu ákæruna, 30 voru á móti og 10 kusu ekki. 9 þing­menn Venstre kusu gegn ákæru en þing­menn Venstre eru sam­tals 41. Meðal þeirra sem kusu gegn ákæru var Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra en hann sagði skilið við Venstre 1. jan­úar sl. með yfir­lýs­ingu á Facebook.

Þvinguð til afsagnar

29. des­em­ber í fyrra sagði Inger Støjberg af sér sem vara­for­maður Venstre. Tveimur dögum fyrr hafði Jakob Ellemann-Jensen sagt að hann myndi styðja ákæru á hendur Inger Støjberg ef svo færi að kosið yrði um það í þing­inu. Sem gerð­ist, eins og áður sagði, síð­ast­lið­inn þriðju­dag 2. febr­úar.

Hér er rétt að geta þess að í lok ágúst 2019 sagði Lars Løkke Rasmus­sen af sér for­mennsku í Venstre, og sama dag sagði Kristian Jensen af sér sem vara­for­maður flokks­ins. Þrem vikum síðar var Jakob Ellemann-Jensen kos­inn for­maður og Inger Støjberg vara­for­maður.

Úrsögn úr Venstre

4. febr­úar, tveimur dögum eftir að þingið tók ákvörðun um ákæruna til Lands­dóms, sagði Inger Støjberg sig úr Venstre. Í við­tölum við fjöl­miðla sagði hún að það hafi verið erfið ákvörðun að segja skilið við flokk­inn sem hún hefði stutt frá ung­lings­árum. Ákvörð­unin hefði hins­vegar verið óhjá­kvæmi­leg eftir að flokk­ur­inn, með for­mann­inn Jakob Ellemann-Jensen í broddi fylk­ingar, hefði ákveðið að snú­ast gegn sér. Hún gagn­rýndi for­mann­inn sér­stak­lega, sagði að undir hans stjórn væri flokk­ur­inn að fær­ast fjær grunn­gildum sínum. Inger Støjberg nefndi sér­stak­lega að sú stefna sem hún hefði fylgt, í rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen, að hamla gegn stríðum straumi flótta­fólks og hæl­is­leit­enda, nyti mik­ils stuðn­ings meðal þeirra sem fram til þessa hefðu kosið Venstre. Stefna Jakobs Ellemann- Jensen núver­andi for­manns væri óljós og hann yrði aldrei for­sæt­is­ráð­herra. Jakob Ellemann-Jensen væri ekki rétti mað­ur­inn til að sam­eina flokk­ana á hægri væng danskra stjórn­mála, bláu blokk­ina svo­nefndu.

Inger Støjberg til­kynnti að hún hygð­ist sitja áfram á þingi en yrði, að minnsta kosti fyrst um sinn, utan­flokka, løs­gæn­ger.

Högg en líka léttir

Venstre flokk­ur­inn er í vanda staddur. Í skoð­ana­könn­unum að und­an­förnu hefur fylgi flokks­ins hrapað.

Að Inger Støjberg skuli hafa ákveðið að segja skilið við Venstre er áfall fyrir flokk­inn. Hún nýtur mik­ils per­sónu­fylgis og skýrir það að hluta minnk­andi stuðn­ing kjós­enda. Einsog áður var getið yfir­gaf Lars Løkke Rasmus­sen flokk­inn í árs­byrjun og situr nú sem utan­flokka­þing­maður. Hann nýtur mik­ils fylgis, og ljóst að brott­hvarf hans, og Inger Støjberg, er þungt högg fyrir flokk­inn.

Danskir stjórn­mála­skýrendur segja að brott­hvarf Inger Støjberg sé líka ákveð­inn léttir fyrir Jakob Ellemann-Jensen og Venstre, það geti ekki verið fleiri en einn skip­stjóri á hverri skútu. For­mað­ur­inn geri sér jafn­framt grein fyrir að margt Venstre fólk lýsi eftir ákveð­inni stefnu, varð­andi mál­efni inn­flytj­enda. Það kom því ekki á óvart að sama dag og ákveðið var að stefna Inger Støjberg fyrir lands­dóm kynnti Jakob Ellemann- Jensen nýtt útspil flokks­ins, eins og hann komst að orði.

[adspot]

Hann sagði að meðal inn­flytj­enda væru allt of margir sem kæmust í kast við lögin vegna afbrota, alltof margir án atvinnu og allt of margir sem ekki virði danskt gild­is­mat. „Danskt sam­fé­lag á ekki að aðlaga sig þeim sem hingað flytja, þeir sem kom hingað eiga að laga sig að okkar sam­fé­lagi“.

Stjórn­mála­skýr­andi dag­blaðs­ins Berl­ingske sagði að með þessum yfir­lýs­ingum legði for­maður Venstre áherslu á að stefna flokks­ins væri sú sama í mál­efnum inn­flytj­enda þrátt fyrir að Inger Støjberg sé horfin á braut.

Hvað ætlast Inger Støjberg fyrir?

Eins og áður var nefnt lýsti Inger Støjberg því yfir að hún hygð­ist sitja áfram á þingi, fyrst um sinn sem utan­flokka­þing­maður. Stjórn­mála­skýrendur veittu orðum hennar „fyrst um sinn“ sér­staka athygli. Það telja þeir vís­bend­ingu um að hún ætli sér ekki að vera utan­flokka­þing­maður nema rétt á meðan hún „taki sól­ar­hæð­ina“ á þingi. Utan­flokka­þing­maður hefur mjög tak­mörkuð áhrif, því atkvæði hans ræður sjaldn­ast úrslitum í atkvæða­greiðslum, að minnsta kosti eins og hlut­föllin í danska þing­inu eru núna.

Tveir vonbiðlar

Inger Støjberg þarf ekki að hafa áhyggjur af því að vera ein og yfir­gefin utan flokka lengur en hún kærir sig um. Tveir flokks­for­menn hafa þegar biðlað til hennar og boðið hana vel­komna í sínar raðir. Von­biðl­arnir eru Kristian Thulesen Dahl for­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins og Pernille Vermund for­maður Nýja Borg­ara­flokks­ins.

Þessir tveir flokkar eiga það sam­eig­in­legt að vilja tak­marka, eða jafn­vel stöðva algjör­lega, komu hæl­is­leit­enda og flótta­fólks til Dan­merkur. Þessi sjón­ar­mið eru mjög í anda Inger Støjberg og danskir stjórn­mála­skýrendur telja víst að hún muni ganga til liðs við annan þess­ara flokka. Nýi Borg­ara­flokk­ur­inn er nýliði í dönskum stjórn­málum, stofn­aður árið 2015, náði fyrst inn á þing í kosn­ing­unum 2019, fékk þá fjóra þing­menn. Stofn­andi flokks­ins og for­maður hans er Pernille Vermund. Hún og Inger Støjberg eru góðar vin­konur. Það yrði að lík­indum mikil lyfti­stöng fyrir Nýja Borg­ara­flokk­inn ef atkvæða­seg­ull­inn Inger Støjberg bætt­ist í hóp­inn. Flokk­ur­inn er nú á mik­illi sigl­ingu ef svo mætti að orði kom­ast, ef marka má kann­anir. Kosn­ingar eru vel að merkja ekki á næsta leiti, fara að óbreyttu fram fyrri hluta árs 2023.

Það er hins­vegar ekki vindur í seglum Danska Þjóð­ar­flokks­ins. Flokk­ur­inn galt afhroð í kosn­ing­unum 2019, tap­aði 21 þing­manni frá kosn­ing­unum 2015 og hefur nú 16 full­trúa á þingi. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn var stofn­aður árið 1995 og hefur því yfir að ráða mun öfl­ugri „flokksmask­ínu“ en Nýi Borg­ara­flokk­ur­inn. Inger Støjberg hefur oft sagt að á milli sín og Danska Þjóð­ar­flokks­ins sé góður sam­hljómur. Það yrði að lík­indum búhnykkur fyrir Kristian Thulesen Dahl og Danska Þjóð­ar­flokk­inn ef Inger Støjberg myndi bæt­ast í hóp­inn. Framtíð hennar veltur hins­vegar á nið­ur­stöðu Lands­dóms, ekki liggur fyrir hvenær rétt­ar­höldin þar hefj­ast.

Hér í lokin er rétt að nefna að Lands­dómur sé kvaddur saman er ekki dag­legt brauð og að sæta ákæru þar er mjög alvar­legt mál. Lands­dómur var stofn­aður árið 1849 og hefur aðeins fimm sinnum áður verið kall­aður saman og kveðið upp dóm. Síðast árið 1995, í tengslum við Tamíla­málið svo­nefnda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár