Støjberg fer fyrir landsdóm

Meiri­hluti er nú í danska þing­inu fyrir því að fyrrum ráð­herra inn­flytj­enda­mála lands­ins fari fyrir lands­dóm vegna brota í emb­ætti.

Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála Danmerkur
Inger Støjberg, fyrr­ver­andi ráð­herra inn­flytj­enda­mála Dan­merkur Mynd: EPA

Ljóst er að Inger Støjberg, fyrrum ráð­herra inn­flytj­enda­mála Dan­merkur, muni fara fyrir lands­dóm þar í landi vegna laga­brota sem hún fram­kvæmdi í emb­ætt­is­tíð sinni. Þetta kemur fram á vef danska rík­is­út­varps­ins, DR.

Samkvæmt frétt DR hafa þing­menn Sós­í­alde­mókra­ta­flokks Dan­merkur ákveðið að kjósa með því að Støjberg fari fyrir lands­dóm, en með því er kom­inn meiri­hluti í þing­inu fyrir ákærunni. Þetta yrði sjötta lands­dóms­málið í sögu Dan­merkur.

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um mál Støjberg, en hún braut lög með fyr­ir­skip­unum sínum um mál­efni hæl­is­leit­enda, sam­kvæmt skýrslu sem birt­ist í síð­asta mán­uði frá sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd.

Í skýrslu nefnd­ar­innar kemur fram að ákvörðun ráð­herr­ans fyrr­ver­andi um að aðskilja gifta hæl­is­leit­endur ef annar aðil­inn væri undir 18 ára aldri hafi verið ólög­mæt. Einnig hefði Støjberg, að minnsta kosti sex sinn­um, bein­línis sagt ósatt við yfir­heyrslur þing­nefndar (sam­råd).

[adspot]

Óljóst var hvort Sós­í­alde­mókra­ta­flokk­ur­inn myndi styðja ákæru á hendur Støjberg fyrir lands­dóm, þar sem það gæti aukið lík­urnar á því að ráð­herrar innan flokks­ins yrðu einnig ákærðir fyrir lands­dóm. Ráð­herrar innan flokks­ins hafa verið ásak­aðir um að brjóta lög í minka­mál­inu svo­kall­aða, þegar ákveðið var að aflífa alla minka Dan­merkur af ótta við að nýtt afbrigði af kór­ónu­veirunni myndi breið­ast út með þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár