Vandræðin í Venstre flokknum

Danski Venstre flokk­ur­inn er í miklum vanda. Vara­for­mað­ur­inn Inger Støjberg var neydd til afsagnar og Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt sig úr flokknum.

Inger Støjberg er ekki lengur varaformaður Venstre.
Inger Støjberg er ekki lengur vara­for­maður Venstre. Mynd: EPA

Flestir þekkja máls­hátt­inn „oft veltir lítil þúfa þungu hlassi“. Hann á vel við upp­haf atburða­rásar sem end­aði með afsögn Inger Støjberg sem vara­for­manns Venstre sl. þriðju­dags­kvöld.

„Litla þúfan“ var stutt­orð frétta­til­kynn­ing, sem danska inn­flytj­enda­ráðu­neytið sendi frá sér 10. febr­úar 2016.

[links]Í til­kynn­ing­unni var lagt bann við því að pör, þar sem annar aðil­inn, væri yngri en 18 ára, byggju saman í búðum hæl­is­leit­enda í Danmörku. Án und­an­tekn­inga.Til­kynn­ingin var, eins og áður sagði, stutt­orð, og danska Útlend­inga­stofn­unin fékk aldrei nein fyr­ir­mæli, né leið­bein­ingar, um hvernig þessu banni skyldi fram­fylgt. Ýmsir urðu til að gagn­rýna bannið sem sagt var brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Inger Støjberg, ráð­herra inn­flytj­enda­mála, stóð fast á sínu og sagði bannið gert í þeim til­gangi að forða barn­ungum stúlkum úr þving­uðum hjóna­böndum.

Umdeild harðlínukona

Inger Støjberg var fyrst kjörin á þing fyrir Venstre (sem er hægri miðju­flokkur) árið 2001 og varð strax nokkuð áber­andi innan flokks­ins. Hún var um skeið ráð­herra atvinnu­mála í rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen sem hafði tekið við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu af Anders Fogh Rasmus­sen þegar sá síð­ar­nefndi sagði af sér þing­mennsku árið 2009. Stjórn Venstre féll í kosn­ing­unum árið 2011. Á næstu árum var mik­ill straumur flótta­fólks til Evrópu, einkum frá Sýrlandi og Eritreu. Mörg hund­ruð þús­und manns leit­uðu eftir land­vist­ar­leyfi í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins en stjórn­mála­menn stóðu nær ráð­þrota gegn vand­anum.

Eftir þing­kosn­ingar í Danmörku árið 2015 varð Inger Støjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála í rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen. Hún taldi að flótta­fólk og hæl­is­leit­endur hefðu alltof greiðan aðgang að Danmörku „flótta­manna­gátt­irnar galopnar“ eins og hún komst að orði. Inger Støjberg vildi harð­ari stefnu, en fylgt var í rík­is­stjórn Helle Thorning-Schmidt, á árunum 2011 – 2015, og lét ekki sitja við orðin tóm. Í mars árið 2017 fagn­aði hún því sér­stak­lega, með rjóma­tertu, að síðan hún varð ráð­herra, eftir kosn­ing­arnar 2015, hefði hún 50 sinnum hert reglur um mál­efni hæl­is­leit­enda og flótta­fólks. Til­kynn­ingin frá 10. febr­úar 2016 var liður í þess­ari hertu stefnu.

Að ganga, eða ekki að ganga, í takt

Í lok ágúst árið 2019 sagði Lars Løkke Rasmus­sen af sér sem for­maður Venstre. Kristian Jensen vara­for­maður sagði af sér sama dag.

Þessir tveir höfðu átt erfitt með að finna „sam­vinnu­takt­inn“ og skyndi­legt brott­hvarf þeirra kall­aði á nýja for­ystu í flokknum. Á flokks­þingi Venstre þrem vikum síðar var Jacob Ellemann- Jensen kjör­inn for­maður og Inger Støjberg vara­for­maður. Ekki voru allir trú­aðir á að þau tvö gætu unnið saman, en Venstre fólk von­aði hið besta. Lars Løkke hafði áður en til afsagnar hans kom viðrað þá hug­mynd að rétt væri að flokk­arnir á hægri væng stjórn­mál­anna, bláa blokkin svo­nefnda, íhug­uðu sam­starf við flokk­ana vinstra megin miðj­unnar, rauðu blokk­ina.

Skýrslan og Landsdómur

Í nýrri skýrslu (14.12.2020) vegna emb­ætt­is­færslna Inger Støjberg kom fram að hún hefði brotið lög með fyr­ir­skip­unum sínum var­andi mál­efni hæl­is­leit­enda (til­kynn­ingin frá 10.febr­úar 2016) og auk þess logið að þing­inu. Margir þing­menn vilja að málið fari fyrir lands­dóm (rigs­ret) sem er dóm­stóll sem dæmir ein­göngu í málum sem varða starf­andi, eða fyrr­ver­andi, ráð­herra. Þingið ákvað á end­anum að fá sér­staka ráð­gjaf­ar­nefnd til að meta hvort leggja skuli mál Inger Støjberg fyrir lands­dóm. Jacob Ellemann- Jensen lýsti jafn­framt yfir að yrði nið­ur­staða ráð­gjaf­ar­nefnd­ar­innar sú að málið eigi erindi fyrir lands­dóm muni hann styðja það. Þessi yfir­lýs­ing for­manns­ins und­ir­strik­aði ágrein­ing for­manns og vara­for­manns.

[adspot]Síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 29.12.2020, var hald­inn fundur í 25 manna flokks­stjórn Venstre. Þar lýsti Jacob Ellemann- Jensen því yfir að Inger Støjberg yrði að hætta sem vara­for­maður. Hann hefði hvatt hana til að segja af sér, ágrein­ingur þeirra væri alltof djúp­stæður, fyrir utan hugs­an­legt lands­dóms­mál. Nokkrir full­trúar á fund­inum vildu að Inger Støjberg færi í leyfi, sem vara­for­maður, en Jacob Ellemann- Jensen tók þeirri hug­mynd illa, Inger Støjberg yrði að hætta. Ljóst var að meiri­hluti flokks­stjórn­ar­innar var á sama máli. Engin ákvörðun var tekin á þessum fundi, önnur en sú að flokks­stjórnin myndi hitt­ast aftur eftir nokkra daga. Eftir fund­inn birti Inger Støjberg færslu á Facebook þar sem hún til­kynnti afsögn sína. Þar sagði hún að Jacob Ellemann- Jensen hefði beðið sig að hætta og hún yrði við þeirri beiðni.

Nýársbomban frá Lars Løkke Rasmussen

Vegna kór­ónu­veirunnar var minna um flug­elda og gamlárs­kvölds­bombur í Danmörku en venjan er. En Lars Løkke Rasmus­sen bætti það upp svo um mun­aði.

Að kvöldi nýárs­dags kastaði hann, á Facebook, stórri bombu inn í danskt sam­fé­lag. Þar lýsti hann yfir að hann segði sig úr Venstre og yrði þing­maður utan flokka. „Atburðir sein­ustu daga hafa sann­fært mig um að ég eigi ekki lengur sam­leið með flokknum sem ég hef til­heyrt í 40 ár. Þetta var ekki auð­veld ákvörðun en sú rétta”. Hann nefnir einnig nauð­syn þess að Venstre horfi ekki ein­ungis til hægri í dönskum stjórn­málum, en slíkum hug­myndum hafði Jacob Ellemann- Jensen algjör­lega hafnað.

Nýr flokkur?

Danskir stjórn­mála­skýrendur segja að þótt mjög óvenju­legt sé að fyrr­ver­andi flokks­for­menn og for­sæt­is­ráð­herra segi sig úr stjórn­mála­flokki sem þeir hafa helgað póli­tískt líf sitt, hafi ákvörðun Lars Løkke Rasmus­sen ekki komið bein­línis á óvart. Christine Cordsen, stjórn­mála­skýr­andi DR, danska útvarps­ins, telur ómögu­legt að spá hvað Lars Løkke Rasmus­sen ætlist fyrir. Ljóst sé að úrsögn hans úr Venstre valdi mörgum þar á bæ miklum áhyggjum. Ef hann ákveði að stofna nýjan flokk geti það haft mikil áhrif á gengi Venstre í næstu kosn­ingum. „Áhyggjur flokks­manna voru þó ærnar fyrir” segir Christine Cordsen. Hans Engell, fyrr­ver­andi for­maður danska Íhalds­flokks­ins og núver­andi stjórn­mála­skýr­andi TV2 sjón­varps­stöðv­ar­innar, segir brott­hvarf Lars Løkke Rasmus­sen úr Venstre þungt högg fyrir flokk­inn og bætir við „eng­inn veit hvað Inger Støjberg ætl­ast fyrir”.

Kjör­tíma­bilið í Danmörku er fjögur ár. Síðast var kosið 5. júní 2019 og að óbreyttu fara næstu þing­kosn­ingar fram árið 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár