Hvað verður um Bang & Olufsen?

Fjár­hags­staða danska sjón­varps- og hljóm­tækja­fram­leið­and­ans Bang & Olufsen er nú svo alvar­leg að vafa­samt er að fyr­ir­tækið geti starfað áfram, í óbreyttri mynd. Þetta er mat danskra sér­fræð­inga.

Það eru ekki ný tíð­indi að illa gangi hjá B&O. Árum saman hafa danskir fjöl­miðlar með reglu­legu milli­bili greint frá erf­ið­leikum í rekstri þessa gam­al­gróna fyr­ir­tækis sem var stofnað árið 1924 í Struer á Jótlandi, þar sem höf­uð­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins eru enn í dag. Stofn­end­urnir, Peter Bang og Svend Olufsen, ætl­uðu sér að fram­leiða tæki sem gæti tekið við útvarps­bylgjum. Rekst­ur­inn gekk þokka­lega og tví­menn­ing­arnir mörk­uðu sér snemma þá stefnu að fram­leiða gæða­vöru með sér­stakri áherslu á hljóm­gæði og útlits­hönnun.

Sjötti og sjö­undi ára­tugur síð­ustu aldar voru miklir upp­gangs­tímar hjá B&O, sjón­vörp, útvarps- og hljóm­flutn­ings­tæki voru að verða almenn­ings­eign. Tækni og þróun, ásamt fram­leiðsl­unni, hefur starfs­fólk B&O í Struer ann­ast en útlits­hönn­unin verið í höndum þekktra fag­manna á sínu sviði. „Sjón­varps­tæki er ekki bara sjón­varps­tæki, það er líka hús­gagn. Mjög áber­andi hús­gagn“ sagði Jacob Jensen, sem starf­aði lengi fyrir B&O, ein­hverju sinni í við­tali. Verð á tækjum B&O hefur ætíð verið hátt, sam­an­borið við vörur margra ann­arra fram­leið­enda. B&O hefur ætíð reynt að höfða til þess hóps sem vill vand­aða vöru og leggur mikið upp úr útliti en setur verðið kannski ekki fyrir sig.

B&O er dvergur í heimi tækja­fram­leið­enda, á síð­asta ári seld­ust um það bil 221 milljón sjón­varps­tækja í heim­inum, af þeim fram­leiddi B&O innan við 30 þús­und. Samsung er lang stærst á þessum mark­aði en LG næst stærst.

Eftirhrunsárin

Árin eftir banka­hrunið 2008 ein­kennd­ust af sam­drætti á flestum sviðum. Fólk hélt fastar um budd­una, fór sér t.d. hægar í að skipta út heim­il­is­tækjum og bílum. Það voru ekki síst fram­leið­endur svo­nefnds lúx­usvarn­ings sem urðu fyrir barð­inu á sam­drætt­inum. B&O var eitt þeirra fyr­ir­tækja sem máttu horfa upp á minnk­andi sölu.

Á árunum 2011 og 2012 setti B&O á mark­að­inn nýja vöru­línu, sem nefnd­ist Play. Play vör­urnar voru ein­fald­ari og ódýr­ari en áður hafði þekkst frá B&O, en kost­uðu eigi að síður meira en margt sam­bæri­legt frá öðrum fram­leið­endum. Tilkoma Play lín­unnar dugði ekki til að hleypa lífi í rekst­ur­inn og veltan jókst ekki. Það gerði tapið hins­vegar, tap­rekst­ur­inn hefur haldið áfram und­an­farin ár og slíkt gengur vita­skuld ekki árum saman. Stjórn­endur B&O hafa gripið til ýmissa ráða í því skyni að að snúa rekstr­inum til betri vegar og árið 2015 seldu þeir bíla­hljóm­tækja­fram­leiðsl­una til Harman fyr­ir­tæk­is­ins.

Á frétta­manna­fundi þegar greint var frá söl­unni sagði for­stjóri B&O að fyri­tækið ætl­aði að stór­efla sölu­starf­semi sína í Asíu og nefndi sér­stak­lega Kína. Ekki hefur það gengið eftir, miðað við sölu­töl­urnar. Í mars árið 2016 greindi DR, danska útvarpið frá því að félagið Sparkle Roll, sem er í eigu Kín­verj­ans Qi Jianhong vildi kaupa öll hluta­bréf í B&O. Ekki varð af því þá, en Sparkle Roll átti fyrir 15% hlut í B&O. Svo virð­ist sem áhugi Kín­verj­ans hafi síðan fjarað út því ekki hefur verið minnst á hugs­an­leg kaup hans á B&O. Til­raunir stjórn­enda B&O til að fá þekkta fram­leið­endur (Sony, LG og fleiri) til að taka fyr­ir­tækið undir sinn vernd­ar­væng, ef svo mætti að orði kom­ast, hafa ekki borið árangur.

Enn sígur á ógæfuhliðina

Þegar stjórn­endur B&O kynntu árs­reikn­inga síð­asta árs (fyr­ir­tækið miðar rekstr­ar­árið við 1. júlí) voru töl­urnar ekki upp­örvandi. Meira tap. Það segir líka sína sögu að í dag eru starfs­menn um 900 tals­ins en í árs­lok 2015 voru þeir 2300 og hafði þá fækkað tals­vert frá árunum á undan. Eins og stundum áður við kynn­ingu árs­reikn­inga voru stjórn­endur B&O fullir bjart­sýni um að ,,bráðum kæmi betri tíð“ en í afkomu­spá yfir­stand­andi rekstr­ar­árs, sem lögð var fram skömmu fyrir jól er reiknað með áfram­hald­andi tapi út rekstr­ar­árið.

Hvað veldur?

Þessa spurn­ingu lagði dag­blaðið Berl­ingske fyrir nokkra sér­fróða rekstr­ar­menn og konur og enn­fremur nokkra sem vel þekkja til í ,,tækni­heim­inum“ eins og blaðið orð­aði það. Svörin voru und­an­tekn­inga­lítið á þann veg að vörur B&O væru of dýrar og fyr­ir­tækið hefði ekki lengur þá sér­stöðu sem það hafði fyrir ára­tugum. Tæknin hefði breyst mikið ,,nú eru fáir að kaupa hljóm­flutn­ings­græjur í stof­una, nema kannski hátal­ara“ sögðu nokkrir við­mæl­endur Berl­ingske. ,,Einu sinni voru sjón­varps­tækin frá B&O þau alflott­ustu á mark­aðnum.

Það eru þau kannski ennþá en aðrir fram­leiða líka vel hönnuð tæki, og jafn­framt miklu ódýr­ari“ sagði einn við­mæl­enda blaðs­ins. Þá var á það bent að fyrir lítið fyr­ir­tæki á Jótlandi væri nær úti­lokað að keppa við ris­ana í Asíu. Einn sér­fræð­ing­anna sem Berl­ingske ræddi við vakti athygli á að á allra síð­ustu árum hefðu orðið miklar breyt­ingar í tækni­heim­inum og það hefði til dæmis kostað marga evr­ópska, ekki síst þýska, raf­tækja­fram­leið­endur lífið.

Hvað verður um B&O

Við­mæl­endur Berl­ingske og DR, danska útvarps­ins, sem líka hefur fjallað ítar­lega um erf­ið­leika B&O virð­ast allir sam­mála um að fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins sé ekki björt. Greiðslu­geta fyr­ir­tæk­is­ins hefur farið dvín­andi und­an­farið og til­raunir stjórn­enda til að fá nýja fjár­sterka aðila til liðs við fyr­ir­tækið hafa ekki borið árangur. Meðal stórra hlut­hafa í B&O er APT líf­eyr­is­stjóð­ur­inn, Augustin­us­sjóð­ur­inn og Færchsjóðurinn.

Tveir þeir síð­ar­nefndu styrkja margs konar menn­ing­ar­starf­semi og frum­kvöðla­starf. Hvort stjórn­endur þess­ara sjóða eru til­búnir í að auka hlut sinn í B&O liggur ekki fyrir en í apríl á næsta ári ætlar stjórn B&O að kynna þriggja ára áætlun. Ef stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins tekst ekki að leysa með ein­hverjum hætti úr vand­anum sem við blasir getur svo farið að þetta rót­gróna danska fyr­ir­tæki kom­ist í þrot. Það finnst mörgum Dönum óhugs­andi en þótt þeim sé hlýtt til B&O dugir það ekki til að halda fyr­ir­tæk­inu á lífi.

Það er við hæfi að slá botn í þennan pistil með orðum blaða­manns Berl­ingske ,,Ef þú situr með 1,7 millj­arð (31 millj­arð íslenskra króna) get­urðu keypt eitt þekktasta fyr­ir­tæki Dan­merkur, Bang & Olufsen eins og það leggur sig. Og hver veit nema þú getir prút­tað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár