Sjálfstæðisflokkurinn fékk of háa styrki frá Ísfélagsfjölskyldunni

Þrjú félög í eigu fjöl­skyldu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, eig­enda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum, styrktu Sjálf­stæð­is­flokk­inn um rúm­lega tvö­falda þá upp­hæð sem lög heim­ila tengdum aðilum að gera. Hluti styrkj­anna hafa verið end­ur­greiddir.

Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins.
Valhöll, höf­uð­stöðvar Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Úr safni.

Samkvæmt útdrætti úr árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir árið 2017 fékk flokk­ur­inn alls 900 þús­und krónur í fram­lög frá Ísfélagi Vest­manna­eyja, Ísam ehf. og Odda prentum og umbúðum ehf.

[links]Öll umrædd fyr­ir­tæki eru í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og fjöl­skyldu hennar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfti að end­ur­greiða 500 þús­und krónur af styrkj­unum frá fyr­ir­tækj­unum þremur þar sem þeir komu á end­anum allir úr sama vasa.

Þetta kemur fram í útdrætti úr árs­reikn­ingi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem birtur var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í vik­unni. Flokk­ur­inn hafði skilað árs­reikn­ingi sínum til eft­ir­lits­ins fyrir 1. októ­ber, líkt og lög gera ráð fyrir, en útdrátt­ur­inn var hins vegar ekki birtur fyrr en tæpum tveimur mán­uðum síðar. Þá höfðu þegar verið birtir útdrættir úr árs­reikn­ingum allra ann­arra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi.

[adspot]Kjarninn greindi frá því fyrir tíu dögum síðan að ástæða þessa væri sú að það vatn­aði svör við við­bót­ar­spurn­ingu sem hefðu ekki borist.

Um sex prósent af framlögum lögaðila

Samkvæmt lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka má lög­að­ili ekki gefa ein­stökum stjórn­mála­flokki meira en 400 þús­und krónur árlega. Í lög­unum er tekið fram að tengdir aðilar telj­ist sem einn ef „sami aðili eða sömu aðilar eiga meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í báðum eða öllum lög­að­il­unum, enda nemi eign­ar­hlutur hvers þeirra um sig a.m.k. 10% af hlutafé, stofnfé eða atkvæða­fjölda í við­kom­andi lög­að­ilum. Sama á við ef ein­stak­lingar eða lög­að­ilar, sem eiga meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í lög­að­ila og hver um sig á a.m.k. 10% hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í lög­að­il­anum, eiga ásamt við­kom­andi lög­að­ila meiri hluta hluta­fjár, stofn­fjár eða atkvæð­is­réttar í öðrum lög­að­ila. Til eign­ar­hluta og atkvæð­is­réttar ein­stak­linga í lög­að­ilum sam­kvæmt þessum tölu­lið telst jafn­framt eign­ar­hlutur og atkvæð­is­réttur maka og skyld­menna í beinan legg.“

[adspot]Því á að telja saman fram­lög tengdra aðila. Ísfélag Vest­manna­eyja er í eigu Fram ehf. Það félag er í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og barna hennar. Fram á einnig fjár­fest­inga­fé­lagið Kristinn ehf., sem á allt hlutafé í Ísam ehf. og 73,5 pró­sent hlut i Odda prentun og umbúðir ehf. Félögin eru því aug­ljós­lega tengd, enda í eigu sömu fjöl­skyldu.

Þrátt fyrir það gaf Ísfé­lagið Sjálf­stæð­is­flokknum 400 þús­und krónur í fyrra, Ísam gaf honum sömu upp­hæð og Oddi gaf flokknum 100 þús­und krónur. Sam­an­lagt fram­lag þess­arra þriggja tengdu aðila var því 900 þús­und krónur, eða 500 þús­und krónum meira en lög heim­ila.

Við þetta gerði Rík­is­end­ur­skoðun athuga­semd og upp­lýsti Sjálf­stæð­is­flokk­inn um það. ÚR var að flokk­ur­inn end­ur­greiddi styrk­ina frá Ísfé­lag­inu og Odda. Alls tap­aði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 15,1 milljón króna í fyrra. Framlög lög­að­ila til hans námu alls 15,3 millj­ónum króna, að með­töldum þeim fram­lögum sem hann fékk frá Ísfé­lag­inu og Odda, og því námu fram­lög Ísfé­lags­fjöl­skyld­unnar til flokks­ins um sex pró­sent af öllum fram­lögum lög­að­ila fyrir end­ur­greiðslu.

Stærstu eigendur Morgunblaðsins

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, og afkom­endur hennar, eru á meðal efn­uð­ustu fjöl­skyldna á Íslandi og reka umsvifa­mikla fyr­ir­tækja­starf­semi. Fjöl­skyldan á meðal ann­ars nær allt hlutafé í Ísfélagi Vest­manna­eyja, hluti í skráðum félögum, allt hlutafé í Ísam, einu stærstu inn­flutn­ings- og fram­leiðslu­fyr­ir­tækis lands­ins, og stærstan hluta bréfa í Odda. Guðbjörg og börn hennar greiddu sér 3,25 millj­arða króna í arð á síð­asta ári í gegnum félagið ÍV fjár­fest­inga­fé­lag ehf., sem heldur meðal ann­ars á hlut hennar í Ísfé­lag­inu.

Fjöl­skyldan eru líka stærstu eig­endur Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­­sent hlut og áður­nefnt félag, Hlynur A, í eigu Guð­­bjargar Matt­h­í­a­s­dótt­­ur, á 16,45 pró­­sent hlut.

Aðkoma fjöl­skyld­unnar að rekstri Morg­un­blaðs­ins hófst árið 2009 þegar hún mynd­aði bak­beinið í hópi aðila, að mestu tengdum sjáv­ar­út­vegi, sem keypti Árvakur. Nokkrum mán­uðum síðar réðu nýir eig­endur Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem rit­stjóra. Hann gegnir því starfi enn.

[adspot]Árvakur tap­aði 284 millj­ónum króna á árinu 2017. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009, og fram að síð­ustu ára­mótum, hefur félagið tapað um 1,8 millj­arði króna. Hlut­hafar Árvakurs, meðal ann­ars Ísfé­lags­fjöl­skyldan, hafa sett inn rúm­lega 1,4 millj­arða króna inn í Árvakur hið minnsta á því tíma­bili.

Fjármál taka stakkaskiptum

Fjármál þeirra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á þingi munu taka stakka­skiptum á þessu ári. Samþykkt var milli jóla- og nýárs 2017 að auka fram­lög þeirra úr rík­is­sjóði um 127 pró­sent, í 648 millj­ónir króna árlega. Einu flokk­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins. ­Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír fá sam­tals 347,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og fram­lög til þeirra hækka um 195 millj­ónir króna. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fá 300,5 millj­ónir króna, sem er 137 millj­ónum króna meira en þeir hefðu fengið ef fram­lögin hefðu ekki verið hækk­uð.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, fær hæstu upp­hæð­ina, 166 millj­ónir króna. Ef fram­lögin hefðu ekki verið hækkuð hefði fram­lag til hans verið 93 millj­ónum krónum lægra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár