Hommahróp á vellinum

Þegar nokkrir danskir áhorf­endur á fót­bolta­leik köll­uðu „Victor Fischer er homo“ á leik­mann and­stæð­ing­anna grun­aði þá tæp­ast að það hefði eft­ir­mál. Þar skjátl­að­ist þeim illi­lega.

William Kvist og Victor Fischer að keppa fyrir danska landsliðsins.
William Kvist og Victor Fischer að keppa fyrir danska lands­liðs­ins. Mynd: EPA

Sunnu­dag­inn 7. apríl síð­ast­lið­inn fékk danska fót­boltaliðið OB (Odense bold­klub) FCK (FC Køben­havn) í heim­sókn. Þessi lið leika bæði í dönsku úrvals­deild­inni (Superligaen) og eru þessa dag­ana í hópi þeirra efstu. Fjöl­mennt var á áhorf­endapöll­unum en fram­koma stuðn­ings­manna OB hafði eft­ir­mál sem ekki sér fyrir end­ann á.

Danir eru miklir áhuga­menn um fót­bolta. Flest, ef ekki öll, lið eiga sér dygga aðdá­endur sem mæta á alla leiki, heima og heiman. Þeir hvetja sína menn með hrópum og láta sömu­leiðis leik­menn and­stæð­ing­anna vita af sér. Þótt ekki sé bein­línis hægt að kalla þetta sál­fræði­hernað skiptir stuðn­ing­ur­inn leik­menn miklu máli, og baul and­stæð­ing­anna hefur líka sín áhrif.

Á áhorf­endapöll­unum verður iðu­lega heitt í kol­unum og bæði dóm­ari og leik­menn „fá það óþvegið“ þegar „dóm­ar­arnir“ á pöll­unum tjá sig um það sem fram fer á vell­inum.

Á und­an­förnum árum hefur þeim sem mæta á völl­inn fækkað tals­vert frá því sem áður var. Fyrir því eru, að mati sparksér­fræð­inga, einkum tvær ástæður: til­koma sjón­varps­út­send­inga frá leikjum og hærra miða­verð. Lengi eftir að sjón­varpið kom til sög­unnar var ekki sýnt beint frá leikjum, það var bein­línis gert til að draga ekki úr aðsókn. Miða­verðið hefur hækkað mikið á und­an­förnum árum. Fyrir því eru ýmsar ástæður, ekki síst þau ofur­laun leik­manna sem nú tíðkast en voru óþekkt hér áður fyrr.

Aumingi, hálfviti, idjót, kerling, sleði

Ofan­greind orð, og fleiri í sama dúr hafa lengi heyrst á fót­bolta­leikjum. Hróp og köll af þessu tagi þykja nán­ast sjálf­sögð þegar áhorf­endum hleypur kapp í kinn. Leik­menn­irnir á vell­inum kippa sér sjaldn­ast upp við slíkar athug­semdir, þótt orð­unum sé ætlað að vera niðr­andi í þessu sam­hengi eru þau nán­ast við­ur­kennd og þykja til­heyra stemn­ing­unni. Öðru máli gegnir um tvö orð sem upp á síðkastið eru farin að heyr­ast frá áhorf­endapöll­unum. Þetta eru orðin negri og hommi, og öðrum for­dóma­fullum athuga­semdum er svo gjarna hnýtt við.

Hrópað að Victor Fischer

Einn þekkt­asti leik­maður FCK er Victor Fischer, 24 ára mið­vall­ar­spil­ari. Árið 2012 gekk hann til liðs við Ajax í Hollandi þar sem hann var í fjögur ár. Hann gerði síðan stuttan stans hjá Middlesbrough í Englandi og Mainz í Þýska­landi en sneri heim Dan­merkur árið 2017 og hefur síðan leikið með FCK.

Það var í áður­nefndum leik 7. apríl, í Óðins­véum, sem stuðn­ings­menn OB hróp­uðu hvað eftir annað „Victor Fischer er homo“. Leiknum lauk með sigri FCK 1- 0 og eftir að flautað var til leiksloka gekk Victor Fischer í átt að stúkunni þar sem stuðn­ings­menn OB héldu sig og sendi þeim fing­ur­koss.

Rétt er að geta þess að Victor Fischer er ekki, svo vitað sé, í neinum skáp og hefur ekki verið, hann er trú­lof­aður og býr með kærust­unni í Kaup­manna­höfn.

Sterk viðbrögð

Í við­tölum eftir leik­inn og dag­inn eftir sagði Victor Fischer að hann hefði ákveðið að leiða ekki hjá sér homma­hrópin og þar með við­ur­kenna að þau væru sjálf­sagður hlutur. Það væri kom­inn tími til að eitt­hvað yrði gert varð­andi fram­komu áhorf­enda, sem sífellt yrði gróf­ari og dóna­legri. Þetta væri ekki í fyrsta skipti sem homma­hróp hefðu heyrst á dönskum fót­bolta­velli, og þar hefði líka verið baulað á þeldökkan leik­mann og hann upp­nefndur. Þetta væri til hábor­innar skammar.

Síð­ast­lið­inn mánu­dag, einum degi eftir þetta leik­inn í Óðins­véum hróp­uðu nokkrir stuðn­ing­menn Brøndby liðs­ins þessi sömu slag­orð um Victor Fischer (sem var víðs­fjarri, enda í hvor­ugu lið­inu) frá áhorf­endapöll­unum þegar liðið mætti FC Nordsjæll­land.

Óhætt er að segja að með því að leiða ekki hjá sér homma­hrópin hafi Victor Fischer opnað flóð­gáttir. For­svars­menn OB og Brøndby lýstu strax yfir að fram­koma eins og stuðn­ings­menn lið­anna tveggja hefðu sýnt væri ólíð­andi og gripið yrði til aðgerða í því skyni að hindra slíkt. Danska knatt­spyrnu­sam­bandið (DBU) og sam­tök leik­manna hafa lýst yfir að fram­koma af þessu tagi verði ekki liðin. Fordómar eigi ekki heima á fót­bolta­leikjum frekar en ann­ars staðar.

Ráðherrann og aganefnd bregðast við

Mette Bock ráð­herra menn­ingar- og íþrótta­mála var harð­orð í við­tölum við fjöl­miðla. Sagði að hátta­lag af þessu tagi væri algjör­lega ólíð­andi og ráð­herr­ann sagð­ist vænta þess að að refs­ingum yrði beitt. Til­greindi þó ekki nánar í hverju þær ættu að fel­ast.

Aganefnd danska knatt­spyrnu­sam­bands­ins til­kynnti sl. föstu­dag, 12. apríl að félögin OB og Brøndby skuli greiða sekt, hvort um sig 25 þús­und krónur ( 450 þús­und íslenskar). Í yfir­lýs­ingu aga­nefnd­ar­innar segir að Victor Fischer hafi hugs­an­lega átt þátt í hegðun áhorf­enda með því að senda þeim fing­ur­koss. Victor Fischer seg­ist sal­tillur vegna þess­ara orða. „Aga­nefndin lítur algjör­lega fram­hjá vanda­mál­inu með því að skella skuld­inni að hluta á mig. Nær hefði verið að nefndin þakk­aði mér, þótt ég ætlist ekki til þess, fyrir að hafa vakið máls á því að brýnt sé að taka á fram­komu sumra áhorf­enda.“

UEFA hrósar Victor Fischer og ítrekar reglurnar

Aleksander Ceferin for­seti Knatt­spyrnu­sam­bands Evrópu hrós­aði Victor Fischer og sagð­ist fagna hverjum þeim sem mót­mæli hvers kyns for­dómum sem því miður fari vax­andi innan knatt­spyrn­unnar. Jafn­framt hefur UEFA ítrekað reglur sam­bands­ins. Ef áhorf­endur hrópa niðr­andi, eða for­dóma­full, orð að leik­mönnum skal dóm­ari stöðva leik­inn og til­kynnt verði gegnum hátal­ara­kerfi að slík hróp skuli hætta. Dugi það ekki stöðvar dóm­ari leik­inn aftur og leik­menn yfir­gefa völl­inn og til­kynn­ing end­ur­tekin. Dugi það ekki verður leik­ur­inn stöðv­aður í þriðja sinn og svo er það hlut­verk dóm­ara að meta hvort haldið skuli áfram eða leik­ur­inn ein­fald­lega blás­inn af.

Dómarar segjast tilbúnir

Danskir dóm­arar hafa und­an­farna daga ráðið ráðum sínum varð­andi homma­hrópin. Í dag, 14. apríl mæt­ast Brøndby og FCK (lið Victors Fischer) í deilda­keppn­inni. Dómari leiks­ins Jørgen Daug­bjerg Burchardt seg­ist vel und­ir­bú­inn, hann kunni regl­urnar og hann muni umsvifa­laust bregð­ast við ef hrópuð verði for­dóma­full orð að leik­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár