Jennifer Lopez, Jenny úr blokkinni, fimmtug

Hún fædd­ist ekki með silf­ur­skeið í munni og þegar for­eldr­arnir sendu hana, fimm ára gamla, í dans­skóla grun­aði þá ekki að dóttirin yrði mold­rík, og fyr­ir­mynd millj­óna inn­flytj­enda í Banda­ríkj­unum.

jennifer lopez
jenni­fer lopez Mynd: EPA

Jennifer Lynn Lopez fædd­ist í Bronx í New York þann 24. júlí 1969. For­eldrar hennar höfðu, líkt og hund­ruð þús­unda íbúa Púertó Ríkó flutt til Banda­ríkj­anna í von um betra líf. For­eldr­arnir, Guadalupe Rodriguez og David Lopez vissu að í Banda­ríkj­unum yxu pen­ing­arnir ekki á trjánum en voru stað­ráðin í að skapa sér fram­tíð í nýja land­inu. Hjónin eign­uð­ust þrjár dætur og fyrstu árin í Banda­ríkj­unum vann David sem næt­ur­vörður en Guadalupe sá um heim­ilið. Hún varð síðar leik­skóla­kenn­ari en David fékk starf í tölvu­deild­inni hjá fyr­ir­tæk­inu sem hann hafði unnið hjá sem næt­ur­vörður.

Þegar fjöl­skyldan hafði búið í New York í nokkur ár flutti hún úr litlu blokkar­í­búð­inni í tveggja hæða hús, sem mikil vinna og ráð­deild gerði hjón­unum kleift að eign­ast. Dóttirin Jennifer sagði síðar að for­eldr­arnir hefðu verið sín fyr­ir­mynd. Þeir hefðu inn­prentað dætr­unum að leggja sig fram við það sem þær tækju sér fyrir hendur „því hef ég aldrei gleymt.“

[adspot]

Fimm ára í dans- og söngskóla

Þegar Jennifer var fimm ára ákváðu for­eldr­arnir að senda hana í dans- og söng­skóla. Þar kom í ljós að sú stutta hafði mjög gaman af því að syngja og dansa fyrir áhorf­endur. Sjö ára gömul var hún valin í söng-og dans­hóp skól­ans sem skemmti í öðrum skólum borg­ar­innar.

Jennifer sagði síðar frá því að syst­urnar hefðu sett upp sýn­ingar „heima í stofu“ þar sem þær sungu og döns­uðu hver fyrir aðra og þrjár saman. For­eldr­arnir lögðu mikla áherslu á að dæt­urnar gætu talað lýta­lausa ensku, þær gengu allar í kaþ­ólska skóla. Jennifer gekk ágæt­lega í skól­anum og lauk mennta­skóla­prófi (High School) en hafði þó meiri áhuga fyrir íþróttum, söng og dansi en bók­nám­inu.

Fyrsta kvikmyndahlutverkið 17 ára

Á loka­ári Jennifer í mennta­skól­anum frétti hún að kvik­mynda­fyr­ir­tæki væri að leita að nokkrum stúlkum í auka­hlut­verk í kvik­mynd. Jennifer skráði sig og fékk hlut­verk í mynd­inni. Þessi kvik­mynd „My Little Girl“ var frum­sýnd í árs­byrjun 1987 og fékk ágæta dóma. Jennifer var, eftir þessa reynslu, ákveðin í að verða leik­kona en það þótti for­eldr­unum ekki góð hug­mynd „fólk eins og við fer ekki þessa leið“.

Jennifer skráði sig, vegna þrýst­ings frá for­eldr­unum, í háskóla­nám en hætti eftir eina önn. For­eldr­arnir voru ósáttir við þá ákvörðun, en Jennifer sat við sinn keip og flutti að heiman, niður á Man­hattan. Næstu árin fékk hún nokkur tíma­bundin smá­hlut­verk í söng­leikjum, t.d. Jesus Christ Superstar og Oklahoma. Enn­fremur tók Jennifer þátt í fimm mán­aða ferða­lagi banda­rísks leik­flokks um Evrópu, flokk­ur­inn sýndi brot úr þekktum Broadway söng­leikjum. Þegar því lauk var henni boð­inn samn­ingur í Japan, í söng­leiknum Syncronicity. Þar söng hún og dans­aði og samdi jafn­framt dansana í sýn­ing­unni.

New Kids On The Block og In Living Color

Nú fóru hjólin fyrir alvöru að snú­ast. Árið 1991 tók Jennifer þátt í flutn­ingi hljóm­sveit­ar­innar New Kids On The Block á lag­inu Games við afhend­ingu Banda­rísku tón­list­ar­verð­laun­anna og sama ár var hún, úr hópi tvö þús­und umsækj­enda, ráðin sem dans­ari í sjón­varps­þátt­unum „In Living Color“. Þætt­irnir, sem voru sýndir á Fox sjón­varps­stöð­inni, nutu mik­illa vin­sælda. Árið 1993 sagði Jennifer upp sem dans­ari í „In Living Color“ og flutti til Los Angeles.

Um líkt leyti tók hún þátt, sem dans­ari, í nokkrum tón­leikum Janet Jackson en afþakk­aði boð hennar um samn­ing í þátt­töku í tæp­lega tveggja ára söng­ferða­lagi. „Það var komið að mér að standa á eigin fótum og gera það sem ég vildi,“ sagði Jennifer síðar. Hún hafði á sínum tíma sagt for­eldrum sínum að hún vildi verða leik­kona og það var næsta skref hennar á frægð­ar­braut­inni.

Sama árið og Jennifer flutti til Los Angeles fékk hún fyrsta hlut­verk sitt sem leik­kona, það var í sjón­varps­kvik­mynd­inni „Lost in the Wild“.

Í kjöl­farið fylgdu hlut­verk í fleiri sjón­varps­kvik­myndum og þátta­röðum og nú fóru til­boð um stærri kvik­mynda­hlut­verk að ber­ast. Leik­stjórar og fram­leið­endur, sem sífellt leita að nýju hæfi­leika­fólki voru farnir að veita Jennifer Lopez athygli.

[adspot]

Selena

Á árunum 1995 og 1996 lék Jennifer í þremur kvik­myndum. Þar var hún í hópi þekktra leik­ara, þar á meðal Jack Nicholson og Robin Willams. Þessar þrjár myndir fengu mis­jafna dóma en gagn­rýnendur sögðu að komin væri fram á sjón­ar­sviðið leik­kona sem vænta mætti mik­ils af. Sú héti Jennifer Lopez. Þegar henni byð­ist hlut­verk sem nýtti hæfi­leika hennar yrði hún stór­stjarna.

Þetta tæki­færi kom árið 1997. Þá var Jennifer valin til að leika tit­il­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Selena. Myndin byggir á ævi­sögu söng­kon­unnar Selenu Quintanilla-Pérez sem skotin var til bana aðeins 23 ára að aldri. Myndin fékk góða dóma og gagn­rýnendur sögðu að þar færi saman áhuga­verð, en jafn­framt sorg­leg, saga efni­legrar söng­konu. Jennifer Lopez fékk mikið lof fyrir frammi­stöðu sína og gagn­rý­endur sögðu að komin væri fram á sjón­ar­sviðið ný stór­stjarna, sem væri jafn­víg á söng, dans og leik. Þetta reynd­ust orð að sönnu.

Síðan 1997 hefur Jennifer Lopez leikið í á fjórða tug kvik­mynda og fram­leitt sex þeirra sjálf. Hún hefur sagt að Selena hafi rutt kvik­mynda­braut­ina, sú mynd hafi komið henni „á kortið“. Auk kvik­mynd­anna hefur Jennifer leikið í mörgum sjón­varps­þáttum og þátta­röðum.

Jennifer sagði fyrir nokkru frá því í blaða­við­tali að þekktur kvik­mynda­fram­leið­andi hefði sagt við sig í „atvinnu­við­tali“ að hann þyrfti að sjá á henni brjóstin til að vita hvort hún pass­aði í hlut­verkið. Jennifer neit­aði og svar­aði því til að brjóstin væru tvö og ósköp venju­leg.

Hljómplötur í tugmilljónatali

Eins og minnst var á fyrr í þessum pistli sagði Jennifer, ung að árum, for­eldrum sínum að sig lang­aði til að verða leik­kona. For­eldr­unum leist ekki vel á það en faðir hennar nefndi að „kannski ætti hún að reyna fyrir sér sem söng­kona.“ Þessum orðum gleymdi Jennifer ekki og árið 1999 ákvað hún að nú væri rétt að slá til og gefa út plötu.

„Ég vissi að ástæða þess að ég fékk útgáfu­samn­ing væri sú að ég væri orðin þekkt leik­kona. Mér var líka ljóst að ég væri að taka ákveðna áhættu með að gefa út plötu, þess vegna vand­aði ég vel til verka,“ sagði hún. Platan „On the 6“ kom út 1. júní 1999 og hafi Jennifer ótt­ast að valda von­brigðum reynd­ist sá ótti ástæðu­laus. Platan fékk góða dóma og til að gera langa sögu stutta hefur Jennifer nú sent frá sér átta plötur og 63 smá­skífur, sem sam­tals hafa selst í um 80 millj­ónum ein­taka.

World of Dance

Árið 2017 hóf sjón­varps­stöðin NBC sýn­ingar á þátta­röð­inni World of Dance. Eins og nafnið gefur til kynna snú­ast þætt­irnir um dans, þar sem þátt­tak­endur frá fjöl­mörgum löndum sýna færni sína á dans­gólf­inu, og keppa um verð­laun. Samtals hafa verið sýndir 37 þættir og ný syrpa er nú í und­ir­bún­ingi, hún kemur á skjá­inn á næsta ári. Hugmynd, og upp­bygg­ing þess­ara þátta er komin frá Jennifer Lopez sem er jafn­framt fram­leið­andi og einn þriggja dóm­ara. Þætt­irnir hafa verið sýndir víða um lönd og áhorf­endur sam­tals á annan millj­arð.

Fjögur hjónabönd og tvíburar

Jennifer Lopez hefur reglu­lega verið umfjöll­un­ar­efni banda­rískra fjöl­miðla, þeirra sem fjalla um ríka fólkið. Jennifer er fjór­gift og á tvö börn, tví­bura fædda 2008. Faðir þeirra er leik­ar­inn Marc Antony en þau Jennifer voru gift frá 2004 til 2011.

Hefur rutt brautina

Í til­efni fimm­tugs­af­mælis Jennifer Lopez hafa margir fjöl­miðlar fjallað ítar­lega um ævi hennar og störf. Allir virð­ast sam­mála um fjöl­hæfni hennar og dugnað. Þetta getur átt við marga fleiri. En það sem aðskilur Jennifer Lopez frá öllum öðrum er að hún ruddi braut­ina fyrir konur frá rómönsku Ameríku.

Það hefur lengst af verið hlut­verk rómansk amer­ískra kvenna að gæta barna hvítra Amer­ík­ana, vinna við hrein­gern­ingar og fleira í þeim dúr. Leikarar, einkum konur, frá rómönsku Ameríku sáust vart í sjón­varpi og kvik­myndum þangað til Jennifer Lopez kom fram á sjón­ar­sviðið. Henni hefur tek­ist það sem svo marga frá rómönsku Ameríku hefur dreymt um. Og hún hefur aldrei gleymt upp­runanum.

[adspot]

Blaða­maður The Guardian í Bret­landi skrif­aði í umfjöllun sinni um Jennifer að fólk í okkar heims­hluta eigi kannski erfitt með að átta sig á hve mik­il­vægt braut­ryðj­enda­starf hennar í þágu kvenna frá rómönsku Ameríku hafi verið. Danskur sér­fræð­ingur í mál­efnum rómönsku Ameríku tók í sama streng.

Í hópi þeirra ríku

Jennifer Loopez hefur sann­ar­lega kunnað að ávaxta sitt pund. Auk þess sem að framan er talið hefur hún hagn­ast vel á „tísku­brans­anum“. Fatnaður, snyrti­vörur, gler­augu og margt fleira sem ber nafn hennar hefur fært henni miklar tekjur. Tug­millj­arða. Jennifer hefur þó ekki varð­veitt það allt á banka­bók­inni því hún hefur varið hund­ruðum millj­óna til margs konar mál­efna, meðal ann­ars rann­sókna á HIV veirunni. Gald­ur­inn á bak við vel­gengn­ina segir Jennifer Lopez í raun engan galdur. „Ég hef alltaf unnið mikið og aldrei hallað mér aftur á bak í sóf­anum. Vinna og aftur vinna, ásamt heppni, hefur skilað mér þangað sem ég er.“

Þess má að lokum geta að Jennifer Lopez er nú á tón­leika­ferða­lagi, að hennar eigin sögn, í til­efni fimm­tugs­af­mæl­is­ins. Tón­leik­arnir, sem nefn­ast „It´s My Party“ verða sam­tals 38, þeir fyrstu voru í Inglewod í Kali­forníu 7. júní og þeir síð­ustu verða í Sankti Pét­urs­borg í Rúss­landi 11. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár