Svíi í skrýtinni vinnu dáist að hugarfari Íslendinga og gæti hugsað sér að fjárfesta hérna

Kjarninn hitti Linus Dahg, sem starfar fyrir alþjóð­legan nýsköp­un­ar­fjár­festi, þegar hann var staddur hér á landi nýverið.

Linus Dahg er Svíi sem starfar hjá fjár­fest­inga­fyr­ir­tæk­inu Wellington Partners, sem sér­hæfir sig í nýsköp­un­ar­fjár­fest­ingum. Hann var staddur hér­lendis í lok ágúst­mán­aðar til að taka þátt í fjár­festa­degi Startup Reykja­vík, sem hald­inn var í fjórða sinn í Arion banka. Þar hélt Linus meðal ann­ars stutta tölu um af hverju alþjóð­legir fjár­festar séu að horfa til Norð­ur­land­anna eftir fjár­fest­inga­tæki­færum í nýsköpun.

Fyr­ir­tækið sem Linus starfar hjá er með yfir 800 millj­ónir evra, tæp­lega 114 millj­arða króna. Sjóðir þess eru því engin smá­smíði. Hver fjár­fest­ing sem sjóð­ur­inn ræðst í er á bil­inu 200 þús­und til fimm millj­ónir evra, eða allt að 710 millj­ónum króna.

Linus segir að fyr­ir­tækið hafi verið að frá ofan­verðum tíunda ára­tugnum. Það sé því einn af gömlu nýsköp­un­ar­sjóð­unum í Evrópu. Fyr­ir­tækið var stofnað í Þýska­landi en er nú með höf­uð­stöðvar í London. Linus sér um fjár­fest­ingar á Norð­ur­löndum hjá Wellington Partners. „Áherslan hjá okkur er á þrjá kjarna­mark­aði: Bretland, Norð­ur­lönd og þýsku­mæl­andi lönd. Við fjár­festum að mestu í hug­bún­að­ar­lausnum og starfrænni miðlun. Við fjár­festum ekki í neinum vél­bún­aði. Wellington hefur verið nokkuð dug­legt við að fjár­festa á Norð­ur­lönd­unum. Frægasta fjár­fest­ingin okkar í dag er lík­lega Spotify. Við tóku þátt í annarri fjár­mögn­un­ar­lotu þeirra árið 2008.“

Skrýtin vinna

Þetta var fyrsta heim­sókn Linusar til Íslands. Hann seg­ist hafa viljað sjá hvað væri að ger­ast í nýsköp­unar- og frum­kvöðla­sen­unni á Íslandi. Hann segir það vel koma til greina að Wellington Partners fjár­festi á Íslandi. „Við erum að horfa nokkuð mikið til Norð­ur­landa vegna þess að okkur líkar við hug­ar­farið hjá frum­kvöðlum á þessu svæði. Við höfum þegar litið á nokkur íslensk fyr­ir­tæki en höfum enn sem komið er ekki fjár­fest í þeim. Það er ekk­ert óvenju­legt. Alls skoðum við um tvö þús­und fyr­ir­tæki á ári en fjár­festum í átta til tíu.“

Hann segir vinn­una sína að mörgu leyti vera skrýtna. „Helm­ingur hennar felst í því að hitta fólk. Ræða við­skipta­á­ætl­anir, meta frum­kvöðla og tala við aðra fjár­festa. Byggja upp sam­bönd og von­andi finna stór­kost­lega frum­kvöðla til að styðja við bakið á. Það skiptir máli að kom­ast að því hvaða við­skipti skipta máli og hvaða fyr­ir­tæki eiga mesta mögu­leika á að ná árangri. Að átta sig á mörk­uðum sem eru ekki til staðar en verða það kannski eftir tvö til fjögur ár. Við erum fá í teym­inu okkar. Fjögur og hálft stöðu­gildi. Þannig að þegar ég segi að við eigum að gera díl þá gerum við vana­lega díl.“

Aðspurður sagð­ist Linus hafa ætlað sér að nota Íslands­heim­sókn­ina til að hitta for­svars­menn eins íslensks fyr­ir­tækis sem hafði fengið mjög góð með­mæli frá traustu fag­fólki, með það fyrir augum að kanna mögu­leika á fjár­fest­ingu. Sá sem hann átti að hitta hafi hins vegar veikst. Fengið hita. Því varð ekk­ert af fund­inum í þetta skiptið.

Linus seg­ist almennt ekki vita mikið um íslenskt nýsköp­un­ar­um­hverfi. „Það er ein af ástæð­unum fyrir því að ég kom hingað. Ég vil læra meira. Ég vildi bæði fræð­ast og mynda tengsl. Ísland er mjög áhuga­verður staður fyrir okkur. Þið hafið tek­ist á við efna­hags­hrunið á hátt sem flestar aðrar þjóðir dirfð­ust ekki að gera. Þið gerðuð ykkur grein fyrir því að þið væruð í djúpum skít, tókuð í hornið á naut­inu og snéruð það niður. Mér finnst það segja ýmis­legt um menn­ing­una hérna og hug­ar­farið sem er ríkj­andi. Þið þraukið.“

Nokkur íslensk fyrirtæki náð eftirtektarverðum árangri

Hann segir nokkra þætti gera Reykja­vík að aðlandi stað til að setja á fót nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki. „Í fyrsta lagi er það land­fræði­legi þátt­ur­inn. Reykja­vík er mun nær Banda­ríkj­unum en aðrar borgir á Norð­ur­löndum. Það skiptir máli. Í öðru lagi er aðgengi að fjár­magni ágætt. Það virð­ist vera nokkuð frum­kvæði í bönkum gagn­vart því að taka þátt í nýsköpun. Í þriðja lagi þá hafa nokkur íslensk startup-fyr­ir­tæki náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri. Ef frum­kvöðlar eru að gera svip­aða hluti og þau, en kannski ekki beint í beinni sam­keppni, þá eru tæki­færi til að nýta sér mannauð­inn sem hefur skap­ast. Það er alltaf slatti af hæfi­leika­fólki sem verður til í þessum fyr­ir­tækjum sem ganga vel sem vilja færa sig á milli.“

Aðspurður um hvaða fyr­ir­tæki það séu sem hafi náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri þá nefnir hann til að mynda Unity Technologies, sem fram­leiðir verk­færi fyrir tölvu­leikja­fram­leið­endur, ekki síst leiki fyrir snjall­síma. Fyr­ir­tækið er ekki beint íslenskt, höf­uð­stöðvar þess eru í San Francisco, en stofn­andi þess og for­stjóri er Íslend­ing­ur­inn Davíð Helgason. „Auk þess hefur QuizUp vakið mikla athygli og Meninga eru komnir vel af stað.“

Ein af íslensku kynningunum á heimsmælikvarða

Líkt og áður sagði var Linus staddur hér­lendis til að halda stutta tölu á fjár­festa­degi hjá Startup Reykja­vík, við­skipta­hrað­als sem er sam­starfs­verk­efni Klak Innovit og Arion banka. Hrað­all­inn fjár­festir á hverju ári í tíu hug­myndum og hefur frum­kvöðl­unum á bak­við þær tæki­færi til að þróa þær áfram. Á fja­festa­deg­inum héldu allir verk­efna­hóp­arnir kynn­ingu á hug­myndum sínum.

Linus segir að kynn­ing­arnar hafi verið mis­jafnar. „Sumar voru slakar. En nokkrar voru góðar og ein kynn­ingin, sem 18 ára strákur hélt, var stór­kost­leg. Þú munt ekki heyra betri kynn­ingu í San Francisco. Hún var á heims­mæli­kvarða. Áherslur, brand­arar og bara allt var full­komið. Ég er nokkuð viss um að allir sem yfir­gáfu fund­ar­sal­inn muna eftir þess­ari kynn­ingu.“

Sú kynn­ing sem stóð svona uppúr að mati Linus var á vör­unni Study Cake, sem er vett­vangur fyrir nem­endur og kenn­ara þar sem heima­vinna er gerð skemmti­legri og árangur mæl­an­legri.

Linus segir þó of snemmt fyrir fjár­fest­inga­sjóð eins og hans að koma að nokkru þeirra verk­efna sem kynnt voru á fjár­festa­deg­inum. Þau eigi öll nokkuð langt ferða­lag eftir áður en fjár­fest­ing frá slíkum sjóði er orðin raun­hæf hug­mynd. Ein­hverjar þeirra gætu þó hentar svoköll­uðum engla­fjár­festum, einka­fjár­festum sem til­búnir eru að taka mikla áhættu, gegn því að hagn­ast mjög vel ef dæmið gengur upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár