Meðalfjöldi auglýstra íbúða á vef mbl.is hefur aukist nokkuð á síðustu mánuðum eftir að hafa minnkað nær stöðugt í þrjú ár. Samhliða því hefur meðaltími íbúðarhúsnæðis á sölu lengst lítillega í apríl og maí síðastliðnum.
Í nýbirtum hagvísum Seðlabanka Íslands er mánaðarlegt meðaltal auglýsinga á fasteignavef mbl.is tekið saman. Samkvæmt þeim tölum hefur fjöldi fasteigna á sölu lækkað nær jafnt og þétt í takti við aukna spennu á húsnæðismarkaði auk þess sem meðalsölutími íbúðarhúsnæðis hefur lækkað verulega frá 2010.
Hins vegar hefur magn íbúðarhúsnæðis hækkað frá apríl síðastliðnum og er sú hækkun sú mesta sem átt hefur sér stað á þremur árum á markaðnum. Mest fjölgaði íbúðum í fjölbýli, en fjöldi einbýla, raðhúsa og parhúsa jókst einnig lítillega.
Svo virðist vera sem einhver árstíðabundin sveifla sé í fasteignaauglýsingum þar sem þeim fjölgar oft á vormánuðum. Hins vegar er umrædd fjölgun nokkuð meiri en hefur verið síðustu ár, sem gæti bent til breytinga á aðstæðum á fasteignamarkaði.

Sömu þróun má ekki greina á atvinnuhúsnæði, en fjöldi auglýstra atvinnufasteigna hefur minnkað umtalsvert undanfarin misseri og virðist ekki þróast í takt við íbúðarhúsnæði.
Kjarninn fjallaði nýlega um raunverð fasteigna, en það hafi náð sögulegum hæðum í apríl síðastliðnum samkvæmt hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Í lok hagsjárinnar var því velt fyrir sér hversu lengi kaupendur sætti sig við þá þróun sem er í gangi, en nýleg aukning fasteignaauglýsinga gæti einmitt bent til breyttra aðstæðna á fasteignamarkaði.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir