Engar líkur á að loftslagsmarkmið náist með sama áframhaldi

Árið 2021 hægði á eyð­ingu skóga í heim­inum en ef ná á mik­il­vægum lofts­lags­mark­miðum 145 ríkja heims, og binda endi á eyð­ingu skóga fyrir árið 2030, þarf að grípa til stór­tækra aðgerða, segir hópur vís­inda­manna.

Skógar gegna svo margvíslegu hlutverki. Hér má sjá molduga á vinstra megin við veg í Indónesíu. Moldin fer út í vatnið því enginn skógur er lengur til að binda jarðveginn.
Skógar gegna svo marg­vís­legu hlut­verki. Hér má sjá mold­uga á vinstra megin við veg í Indónesíu. Moldin fer út í vatnið því eng­inn skógur er lengur til að binda jarð­veg­inn. Mynd: EPA

Skóg­areyð­ing minnk­aði milli áranna 2020 og 2021. Það eru vissu­lega góðar fréttir en eyð­ing­ar­mátt­ur­inn er enn það mik­ill að 6,3 pró­sent sam­dráttur milli ára er aðeins dropi í hafið eigi lofts­lags­mark­mið sem 145 ríki hafa skuld­bundið sig til að ná með öllum ráðum, að stand­ast. Sam­komu­lagið gengur út á að skóg­areyð­ing verði úr sög­unni árið 2030. Það er að segja: Að skóg­lendi verði meira það ár en árið á undan. Og að það fari svo að stækka en ekki minnka líkt og það hefur gert síð­ustu ár og ára­tugi.

Í nýrri mats­gerð vís­inda­manna á stöðu skóga heims­ins segir að nokkur ríki standi framar öðrum þegar komi að því að draga úr skóg­areyð­ingu en hún var þó alls staðar mikil. Aðeins 3 pró­sent sam­dráttur var milli áranna 2020 og 2021 er kom að eyð­ingu frum­skóga heims­ins – skóga hita­belt­is­ins – svo dæmi sé tekið. Frum­skógar eru sér­stak­lega mik­il­vægir er kemur að heil­brigði vist­kerfa jarðar, bæði fyrir líf­fræði­lega fjöl­breytni sem og bind­ingu kolefnis.

Ef trjá­gróður sem var felldur er met­inn til los­unar kolefnis jafn­ast það á við losun allra ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins – og Japans að auki.

Ef fram heldur sem horfir mun ekki nást að tak­marka hlýnun lofts­lags við 1,5 gráður, segja vís­inda­menn­irnir. Þeir minna á að á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Glasgow á síð­asta ári hafi 145 ríki skuld­bundið sig til að hætta skóg­areyð­ingu fyrir lok þessa ára­tugar.

En miðað við árang­ur­inn sem hefur hingað til náðst þá er ljóst að yfir­lýs­ingin var „inn­an­tóm“ segja vís­inda­menn­irnir í skýrslu sinni um stöðu skóg­anna.

Þeir benda enda á að lengin aðgerð­ar­á­ætlun hafi fylgt heitum þjóð­anna 145 og að aðeins 1 pró­sent þess fjár­magns sem talið er þurfa til verks­ins hafi verið ráð­stafað til verk­efna gegn skóg­areyð­ingu. Þá segja vís­inda­menn­irnir að það sem helst skorti sé póli­tískur vilji.

Mesta skóg­areyð­ingin átti sér stað í Brasilíu. Eyðing skóga hefur reyndar auk­ist þar síðan að Jair Bol­son­aro varð for­seti. Í nokkur ár á undan hafði smám saman verið dregið úr henni.

Mest skóg­areyð­ing und­an­farin ár hefur átt sér stað í Brasilíu, Bólivíu, Paragvæ og Austur-Kongó. Og í þessum löndum jókst hún milli áranna 2020-2021.

Aðeins eitt land hefur í fimm ár sam­fleytt náð að minnka eyð­ingu skóga: Indónesía. Árangur nágranna­rík­is­ins Malasíu er enn áhuga­verð­ari en þar tóku yfir­völd fast á málum og drógu úr skóg­areyð­ingu um fjórð­ung á aðeins einu ári. Vegna árang­urs þess­ara tveggja ríkja eru hita­belt­is­svæði Asíu þau einu í heim­inum sem gætu náð mark­miðum um að hætta skóg­areyð­ingu árið 2030.

Vert er einnig að nefna árangur Gana og Fíla­beins­strand­ar­innar. Þar hafa skógar lengi verið ruddir til að rækta kakó sem Vest­ur­landa­búa þyrstir svo mjög í. Í fyrra var gripið til aðgerða sem urðu til þess að 47 pró­sent minni skóg­areyð­ing var árið 2021 en árið 2020. Í Gabon hefur bar­átta gegn ólög­legu skóg­ar­höggi einnig skilað góðum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár