„Mikilvægt að hér á landi sé starfandi flugfélag með höfuðstöðvar á Íslandi“

Þing­maður Pírata spurði for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í dag hvort það væri ásætt­an­legt að verð­launa Icelandair með rík­is­stuðn­ingi án þess að hluta­fjár­út­boð hefði farið fram – og þrátt fyrir fram­komu félags­ins í kjara­bar­áttu flug­freyja.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Mér finnst mik­il­vægt að hér á landi sé starf­andi flug­fé­lag með höf­uð­stöðvar á Íslandi sem sé starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. Mér finnst það mik­il­vægt. Mér finnst það mik­il­vægt að hér sé til staðar flug­fé­lag sem getur gegnt lyk­il­hlut­verki í að end­ur­ræsa ferða­þjón­ustu. Mér finnst það mik­il­vægt leið­ar­ljós.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata telur að afstaða ráð­herra hafi breyst varð­andi rík­is­á­byrgð síðan í vor og spurði hún hvers vegna svo væri.

„Í upp­hafi þeirra efna­hags­þreng­inga sem nú blasa við virt­ist rík­is­stjórnin ekki æst í að koma Icelandair til hjálpar og má þar meðal ann­ars vísa í orð hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra, Katrínar Jak­obs­dóttur, í við­tali á Bylgj­unni í maí þar sem hún sagði: „Icelandair hefur farið í það verk­efni að safna nýju hlutafé og við höfum sagt að við styðjum þá veg­ferð. Ef hún gengur upp er ríkið reiðu­búið að koma með lána­línu eða ein­hvers konar rík­is­á­byrgð.“ Af þessu mátti ráða, í maí að minnsta kosti, að ráð­herr­ann setti það skil­yrði fyrir rík­is­á­byrgð að félag­inu hefði tek­ist það ætl­un­ar­verk sitt að auka hlutafé sitt. En nú er staðan önnur og lána­lína er í boði þrátt fyrir að hluta­bréfa­út­boð hafi einu sinni átt sér stað,“ sagði Þór­hildur Sunna.

Tók ekki eftir neinum andmælum frá ráðherra þegar Icelandair sagði upp flugfreyjum

Þór­hildur Sunna spurði því hvað hefði breyst í afstöðu for­sæt­is­ráð­herra á þessum tíma. „Hvers vegna er núna ásætt­an­legt að veita rík­is­á­byrgð þessa lána­línu án þess að hluta­fjár­út­boð hafi farið fram? Ég sé ekki að nokkuð hafi breyst í stöðu félags­ins nema reyndar að það hefur notið ríku­legs rík­is­stuðn­ings í formi upp­sagn­ar­leið­ar­innar og hluta­bóta­leið­ar­innar. Og jú, reyndar hefur það breyst að félag­inu tókst að semja um ríf­lega kjara­skerð­ingu flug­freyja og flug­liða með mjög óvönd­uðum og jafn­vel ólög­legum hætti.“

Hún sagði að hún hefði ekki tekið eftir neinum and­mælum frá for­sæt­is­ráð­herra þegar Icelandair sagði upp öllum sínum flug­freyjum á einu bretti og hót­aði að semja við annað stétt­ar­fé­lag. Hún hefði aftur á móti tekið eftir við­brögðum ráð­herr­ans „þegar kúg­un­ar­verkn­að­ur­inn var inn­sigl­aður með samn­ingum við flug­freyjur“. Þór­hildur Sunna spurði því for­sæt­is­ráð­herr­ann hvort það hefði verið fulln­að­ar­sigur Icelandair yfir kjara­bar­áttu flug­freyja sem breytti afstöð­unni gagn­vart rík­is­á­byrgð.

Skilyrðin alveg ljós frá upphafi

Katrín svar­aði og byrj­aði að nefna frum­varp sem lægi fyrir í þing­inu og yrði til umræðu seinna í dag um rík­is­á­byrgð á lána­línu til Icelandair sem háð væri ákveðnum skil­yrðum. „Þau skil­yrði hafa verið alveg ljós frá því í vor og ekk­ert hefur breyst í því verk­efni. Það er að segja ríkið hefur allan tím­ann lagt áherslu á það að félagið ráð­ist sjálft í fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu, að félagið ljúki sjálft sínum kjara­samn­ingum, samn­ingum við hlut­hafa, lán­ar­drottna og ljúki við hluta­fjár­út­boð eigi að koma til slíkrar rík­is­á­byrgðar á lána­línu – að af henni verði. Og það frum­varp sem hér liggur fyrir snýst fyrst og fremst um heim­ild til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til þess að veita slíka ábyrgð svo fremi sem þetta gangi eftir.“

Hún sagði að þetta verk­efni hefði frá upp­hafi byggt á ákveðnum leið­ar­ljósum um að það væri mik­il­vægt að hér á landi væri íslenskt flug­fé­lag með höf­uð­stöðvar á Íslandi og sem væri starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. „Að flug­fé­lag sé hér starf­andi sem geti verið mik­il­vægur aðili í efna­hags­legri við­spyrnu, ekki síst ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi. Þannig að þessi leið­ar­ljós hafa legið fyrir frá upp­hafi og það frum­varp sem hér liggur fyrir í þing­inu er mjög eðli­legt fram­hald af þeirri yfir­lýs­ingu sem gefin var í vor.“

Varðandi kjara­samn­inga flug­freyja við Icelandair sagði Katrín að hún væri þeirrar skoð­unar að slíkar deilur ætti að leysa við samn­inga­borðið og að henni hefði fund­ist mjög jákvætt að deilan hefði verið leyst þar.

„En já, mér finnst eðli­legt að vinnu­deilur leys­ist við samn­inga­borðið og að báðir aðilar eigi að leggja sitt að mörkum til þess að svo verði,“ sagði hún.

Skiptir það máli hvernig samningum er náð?

Þór­hildur Sunna tók aftur til máls og spurði hvort það skipti máli hvernig deilur væru leystar við samn­inga­borðið. „Skiptir það engu máli hvernig þessum samn­ingum var náð? Hvaða aðferðum var beitt?“ spurði hún.

Hún sagði að verk rík­is­stjórn­ar­innar birt­ust henni þannig að Icelandair hefði tek­ist að spara sér fjár­muni með „bola­brögðum og árás á grunn­stoðir vinnu­réttar á Íslandi. Og þau eru verð­launuð með rík­is­á­byrgð. Þannig horfir þetta við mér.“

Hún spurði hvernig for­sæt­is­ráð­herr­ann túlk­aði þær gjörðir Icelandair að segja upp öllum flug­freyjum og hóta því að semja við ótil­greint stétt­ar­fé­lag í stað­inn. Láta flug­menn jafn­vel ganga í þeirra störf til að ná árangri í stétta­bar­áttu. Fyndist ráð­herra það ásætt­an­leg aðferða­fræði við samn­inga­borðið. „Er það eitt­hvað sem á að verð­launa með rík­is­stuðn­ingi?“ spurði hún að lokum.

Mikilvægt að flugfélag sé til staðar sem getur gegnt lykilhlutverki í að endurræsa ferðaþjónustu

Katrín kom aftur í pontu og sagði að hún greindi það á orðum Þór­hildar Sunnu að hún og hennar flokkur hefði vænt­an­lega efa­semdir um frum­varpið sem lægi fyrir um veit­ingu rík­is­á­byrgðar.

„Ég vil bara minna hátt­virtan þing­mann á að þarna hefur rík­is­stjórnin frá upp­hafi lagt fram þessi skýru leið­ar­ljós sem ég fór yfir hér áðan. Og við getum verið sam­mála eða ósam­mála um þau leið­ar­ljós. Mér finnst mik­il­vægt að hér á landi sé starf­andi flug­fé­lag með höf­uð­stöðvar á Íslandi sem sé starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. Mér finnst það mik­il­vægt. Mér finnst það mik­il­vægt að hér sé til staðar flug­fé­lag sem getur gegnt lyk­il­hlut­verki í að end­ur­ræsa ferða­þjón­ustu. Mér finnst það mik­il­vægt leið­ar­ljós. Ég veit ekki hvað hátt­virtum þing­manni finnst. Mér finnst það vera mik­il­vægt leið­ar­ljós eins og komið hefur fram í kynn­ingu á þessu máli að við hins vegar gætum að almanna­hag og almannafé með því að hafa þessar skýru girð­ingar sem lagt er hér til. Það er að segja að félagið ljúki sjálft sinni fjár­hags­legu end­ur­skipu­lagn­ingu, safni sjálft hlutafé og ríkið sé þar fyrst og fremst í stuðn­ings­hlut­verki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár