Lars Løkke barst bréf

Danski for­sæt­is­ráð­herr­ann fær mörg bréf. Meðal þeirra sem hann fékk í síð­ustu viku var harð­ort bréf frá Sam­ein­uðu þjóð­unum. Í því er danska stjórnin sökuð um brot á mann­rétt­indum.

Bréfið barst Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur sl. mánu­dag, 25. mars. Það var und­ir­ritað af Leilani Farha, hún er sér­legur skýrslu­gjafi Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna, varð­andi rétt­inn til íbúð­ar­hús­næðis (special rappor­teur on the right to housing). Leilani Farha og starfs­fólk hennar hefur í mörg horn að líta og þótt iðu­lega sé þess getið á hátíða­stundum að ástandið í heim­inum fari skán­andi getur Leilani Farha ekki að öllu leyti tekið undir það. Í blaða­við­tali fyrir skömmu sagði hún að ekki fari fram­hjá þeim sem fylgj­ast með fréttum að mikið skorti á að allir íbúar heims­ins hafi þak yfir höf­uðið og því miður sé það fjar­lægur draumur að svo verði. En bréf hennar til dönsku rík­is­stjórn­ar­innar fjallar ekki um fólk sem hrakið hefur verið frá heim­ilum sínum vegna stríðs­á­taka.

Dönsk lög heimila brot á mannréttindum

Í áður­nefndu bréfi gagn­rýnir Leilani Farha dönsku rík­is­stjórn­ina fyrir að hafa sett lög ,,sem gera það mögu­legt að nota ótak­markað erlent fjár­magn til kaupa á dönsku íbúðar- og atvinnu­hús­næði, í þeim til­gangi einum að auka ríki­dæmi kaup­and­ans.“Í bréf­inu segir að ,,þetta stríði gegn alþjóð­legu sam­komu­lagi, nánar til­tekið Mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna sem Danir hafa und­ir­ritað.“ Í Mann­rétt­inda­sátt­mál­anum er kveðið á um rétt­inn til þess að hafa þak yfir höf­uðið, en lögin sem gilda í Danmörku hafa í raun ógilt þessar alþjóð­legu skuld­bind­ingar. ,,Og afleið­ing­arnar blasa við“ segir í bréf­inu, ,,árið 2017 keyptu erlend fjár­fest­inga­fyr­ir­tæki 71% alls hús­næðis sem skipti um eig­endur í Kaup­manna­höfn.“

Blackstone

Banda­ríska fyr­ir­tækið Blackstone er lang umsvifa­mest þess­ara erlendu fyr­ir­tækja og hefur á síð­ast­liðnum tveimur árum keypt um það bil 140 hús­eignir í Kaup­manna­höfn, sam­tals um tvö þús­und íbúðir. Þessar hús­eignir hefur Blackstone keypt í gegnum danskan sam­starfs­að­ila, North 360.

Blackstone, sem var stofnað árið 1985 í Banda­ríkj­unum, er í hópi stærstu fjár­fest­inga­fyr­ir­tækja heims. Það er umdeilt, eins og títt er um slík fyr­ir­tæki og umtalað fyrir harð­drægni í við­skiptum. Á allra síð­ustu árum hefur fyr­ir­tækið í auknum mæli horft til fjár­fest­inga í Evrópu, ekki síst á Norð­ur­löndum. Nefna má að árið 2017 bauð Blackstone 11 millj­arða króna í 30% eign­ar­hlut í Bláa Lóninu. Ekki varð af þeim við­skiptum því full­trúar líf­eyr­is­sjóða í eig­enda­hópi Bláa Lónsins beittu neit­un­ar­valdi. Blackstone hefur reyndar víðar komið við sögu á Íslandi en það verður ekki rakið hér.

Af hverju Kaupmannahöfn?

Ástæður þess að Blackstone hefur látið jafn mikið til sín taka í Kaup­manna­höfn og raun ber vitni eru tvær. Önnur ástæðan er áður­nefnd lög. Hin er sú stað­reynd að í Kaup­manna­höfn er mikið um gam­alt íbúð­ar­hús­næði þar sem leigan er lág. Í slíkum íbúðum býr í mörgum til­vikum fólk sem ekki hefur mikið handa á milli en er sátt við sitt. Sátt við öryggið sem fylgir því að eiga sama­stað og þurfa ekki að ótt­ast að missa hús­næðið. Minna máli skiptir þótt bað­her­bergið sé ekki sam­kvæmt nýj­ustu tísku og eld­húsinn­rétt­ingin komin til ára sinna. Allstór hluti íbúða­hús­næðis í Kaup­manna­höfn er í eigu sjálfs­eign­ar­stofn­ana, sem ráða yfir tak­mörk­uðu fjár­magni til end­ur­bóta og við­halds, sem skýrist meðal ann­ars af lágri leigu.

Það er hús­næði eins og það sem hér hefur verið lýst sem Blackstone beinir sjónum sínum að. Fyr­ir­tækið kallar slíkt hús­næði ,,van­metið“ og gerir til­boð, sem eig­endum þykir freist­andi. Ef samn­ingar takast er ráð­ist í end­ur­bætur (iðu­lega sýnd­ar­end­ur­bætur að mati Leilani Farha), leigj­and­anum býðst að vera áfram í íbúð­inni en leigan hefur hækkað, í mörgum til­vikum tvö­fald­ast eða jafn­vel meira. Þetta ræður fólkið sem áður bjó í íbúð­inni ekki við og hrökkl­ast burt. Í sumum til­vikum borgar Blackstone þeim sem áður bjuggu í hús­inu fyrir að flytja. ,,Allt til að geta svo hækkað leig­una. Þetta er fyr­ir­lit­legt“ segir í bréf­inu til dönsku rík­is­stjórn­ar­innar.

Frumkvæði Sameinuðu þjóðanna

Það að fjár­festar og bygg­inga­spek­úlantar beini sjónum sínum að til­teknum hverfum, oft­ast gam­al­grónum í borgum og bæjum í því skyni að ,,end­ur­nýja“ í hagn­að­ar­skyni er ekki ný bóla. Sam­ein­uðu þjóð­irnar höfðu fyrir nokkru frum­kvæði að óform­legum sam­tökum, sem hafa að mark­miði að við­ur­kennt sé að íbúð­ar­hús­næði sé félags­legur réttur en ekki versl­un­ar­vara pen­inga­manna. Borg­ar­stjór­inn í Malmö stað­festi fyrir tveim vikum þátt­töku borg­ar­innar í þess­ari hreyf­ingu en meðal þeirra borga sem stað­fest hafa þátt­töku eru Amster­dam, Montreal, Barcelona og Berlín. Aðspurður sagði borg­ar­stjór­inn í Malmö ástæð­una fyrir þátt­töku borg­ar­innar væri sú sama og víða ann­ars­staðar: til­koma fjár­festa leiðir til hærra leigu- og kaup­verðs, borg­ar­myndin breyt­ist, verður eins­leitn­ari þar sem fjöl­skyldu­fólk og þeir efna­minni, ásamt smá­fyr­ir­tækjum, hrekj­ast á brott.

PUSH

Í síð­ustu viku var kvik­myndin PUSH frum­sýndi í Kaup­manna­höfn. Fram­leið­andi og leik­stjóri mynd­ar­innar er Svíinn Frederik Gertten. PUSH fjallar um hvernig hús­næð­is­verð rýkur upp í stór­borgum, fjöl­skyldu­fólk er neytt til að flytja og and­lits­lausir eig­endur (orða­lag úr kvik­mynd­inni) taka yfir hús­eign­irnar. Myndin vakti mikið umtal meðal Dana, fjöl­miðlar fjöll­uðu um mynd­ina, sem hefur beina skírskotun til þess sem er að ger­ast í Kaup­mann­höfn. Nýlegt dæmi um kaup and­lits­lausu eig­end­anna þar í borg er þekkt bygg­ing við mið­borg­ina.

Holckenhus

Í júní í fyrra greindu margir danskir fjöl­miðlar frá því að Blackstone hefði fest kaup á stórri bygg­ingu skammt frá mið­borg­inni. Hús þetta nefn­ist Holckenhus og stendur við H.C And­er­sens Boulevard, Vester Voldgade, Storm­gade og Dantes Plads, en þar var íslenska sendi­ráðið lengi til húsa.

Holckenhus var byggt á árunum 1891 -93. Á jarð­hæð­inni eru fyr­ir­tæki, á fjórum hæðum þar fyrir ofan eru íbúðir en á efstu hæð­inni 11 vinnu­stofur þar sem 13 lista­menn starfa. Þar hafa margir af þekkt­ustu mynd­list­ar­mönnum Dana haft vinnu­að­stöðu og hinn virti mynd­list­ar­skóli Kristian Zahrtmann (1843 – 1917) var í hús­inu um ára­bil. Vinnu­stof­urnar eru óbreyttar frá upp­hafi og sama gildir um margar íbúðir, burt­séð frá hita, vatns - og raf­magns­lögnum.

Þegar frétt­ist af kaupum Blackstone á Holckenhus fóru lista­menn­irnir, sem hafa aðstöðu í gömlu vinnu­stof­unum að spyrj­ast fyrir. ,,Þegar við fréttum hver kaup­and­inn væri fórum við að skjálfa á bein­unum“ (beg­yndte vi at ryste i bukserne) sagði Maria Wandel tals­maður lista­mann­anna. Svörin sem feng­ust voru að North 360 hafði sótt um leyfi til að breyta vinnu­stof­unum í íbúðir. Þegar íbú­arnir og lista­menn­irnir sneru sér til borg­ar­innar voru svörin þau að þar eð húsið væri ekki friðað (nema að utan) væri erfitt að bregð­ast við. Eftir mikla og harða gagn­rýni lýsti tals­maður North 360 því yfir að fyr­ir­tækið vildi finna lausn í sam­starfi við lista­menn­ina. Maria Wendel sagð­ist í við­tali, í dag­blað­inu Politi­ken fyrir nokkrum dögum,ekki gefa mikið fyrir slíka yfir­lýs­ingu. ,,Þetta er eins­konar haltu kjafti brjóst­sykur (hold kæft-bolsje) til að þagga niður í okkur“.

Íbúarnir í Holckenhus eru sömu­leiðis áhyggju­fullir. Meðal þeirra sem í hús­inu búa er hinn þekkti leik­ari Jesper Langberg. Þegar hann var spurður álits á hinum nýju eig­endum sagði hann ekk­ert en gaf putt­ann (löngu­töng).

Á þess­ari stundu er óljóst hvert fram­haldið verður, bæði varð­andi íbúð­irnar og vinnu­stof­urnar í Holckenhus.

Sameinuðu þjóðirnar orðnar pólitískar

Leilani Farha hefur ekki fengið svar frá dönsku rík­is­stjórn­inni, en sagði í við­tali við danska fjöl­miðla að hún myndi innan tíðar ýta á eftir við­brögðum. Danski for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur ekki tjáð sig um bréfið, né inni­hald þess. Ole Birk Olesen ráð­herra hús­næð­is­mála sagð­ist í blaða­við­tali vera undr­andi á því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar telji það mann­rétt­inda­brot að erlend fyr­ir­tæki, í þessu til­viki, Blackstone fái að kaupa hús­eignir í stórum stíl í þeim til­gangi að þrýsta upp leigu­verði. Ráð­herr­ann sagði það athygl­is­vert að Sam­ein­uðu þjóð­irnar skuli með þessum hætti blanda sér í málin, og horfa á það með póli­tískum gler­augum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár