Landsbankinn hættir við 9,5 milljarða króna arðgreiðslu

Á aðal­fundi Lands­bank­ans í dag var ekki lögð fram til­laga banka­ráðs um að greiða út arð vegna síð­asta árs, líkt og stefnt hafði verið að.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Á aðal­fundi Lands­bank­ans sem hald­inn var í dag var tók banka­ráð hans þá ákvörðun að leggja ekki fram til­lögu um 9,5 millj­arða króna arð­greiðslu vegna síð­asta árs, líkt og stefnt hafði verið að. Þetta var gert í ljós þeirrar efna­hags­legu óvissu sem nú ríkir og í sam­ræmi við til­mæli Seðla­banka Íslands til kerf­is­lega mik­il­vægra banka um að greiða ekki út arð vegna árs­ins 2019. Auk þess hætti banka­ráðið við að heim­ila end­ur­kaup á hluta­bréfum líkt og stefnt hafði verið að. Lands­bank­inn er í eigu íslenska rík­is­ins.

Þetta kemur fram í skýrslu banka­ráðs Lands­bank­ans sem Helga Björk Eiríks­dóttir, for­maður þess, flutti á aðal­fund­inum í dag.

Á nokkrum vikum hefur bindi­skylda verið lækkun niður í núll og sveiflu­jöfn­un­ar­auki sem lagð­ist á eigið fé bank­anna afnumin. Aflétt­ing kröfu um ­sveiflu­jöfn­un­ar­auka á að auð­velda banka­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­örðum króna, eða um 12,5 pró­sent af núver­andi útlána­safni.

[adspot]Í yfir­lýs­ingu frá fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands, sem tók ákvörðun um að auka svig­rúmið með því að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann, sem birt var 18. mars brýndi nefndin fyrir fjár­mála­fyr­ir­tækjum að þau taki til­lit til þeirrar miklu óvissu sem uppi er í þjóð­ar­bú­skapnum við á­kvörðun um útgreiðslu arðs og end­ur­kaup á eigin hluta­bréfum á kom­andi miss­er­um.

Í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar, af fundi sem fór fram dag­inn áður eða 17. mars, kemur fram að nefnd­ar­menn hennar hefðu verið „sam­mála um að afar mik­il­vægt væri að fjár­mála­fyr­ir­tækin nýttu ekki svig­rúmið sem við þetta skap­að­ist til arð­greiðslna.”

Þremur dögum síðar, 20. mars, var sent bréf til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í Íslands­banka og Lands­bank­anum, fyrir hönd Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Þar var farið fram á að hún myndi horfa fram hjá kröfum um ávöxtun og arð­greiðslur á árinu 2020 og að þeim skila­boðum yrði komið áfram til stjórna fjár­mála­fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins.

Bjarni var að segja rík­is­bönk­unum tveimur að í ljósi þeirra aðstæðna sem komnar eru upp vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins þá ættu þeir ekki að greiða út arð.

Arion banki ætlar að hætta við

Arion banki, eini kerf­is­lega mik­il­vægi bank­inn sem er ekki í eigu rík­is­ins, ætl­aði að greiða út umtals­verðan arð til eig­enda sinna í ár. Bankinn hagn­að­ist um 1,1 millj­­arð króna í fyrra og arð­­semi eigin fjár bank­ans var 0,6 pró­­sent. Til stóð að greiða tíu millj­­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa vegna síð­­asta árs. Það stóð því til að greiða út nífaldan hagnað í arð. Þau áform eru í takti við yfir­­lýsta stefnu bank­ans, sem er að öllu leyti í einka­eigu og skráður á hluta­bréfa­­mark­að, að greiða út tugi millj­­arða króna eigin fé hans til eig­enda hans.

Eftir að sveiflu­jöfn­un­ar­auk­inn var afnum­inn skap­að­ist mik­ill þrýst­ingur á bank­ann að hætta við þau áform en til að byrja með ákvað hann að fresta þeim um tvo mán­uði á aðal­fundi sínum 17. mars síð­ast­lið­inn.

Í síð­ustu viku var svo boðað til fram­halds­að­al­fundar í Arion banka þann 14. maí næst­kom­andi þar sem ein­ungis eitt mál er á dag­skrá: að hætta við greiðslu arðs vegna síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár