Alls ekki stefnan að nota börn til að ná hjarðónæmi

Á Land­spít­al­anum liggja nú fimmtán manns með COVID-19, sjúk­dóm­inn sem nýja kór­ónu­veiran veldur. Tveir eru á gjör­gæslu og annar þeirra er í önd­un­ar­vél. 2000 þús­und sýna­tökupinnar eru komnir til lands­ins.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: EPA

17% sýna sem tekin voru á veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans vegna kór­ónu­veirunnar síð­asta sól­ar­hring­inn voru jákvæð. Aðeins 0,2% sýna Íslenskrar erfða­grein­ingar reynd­ust jákvæð.

Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Sagði hann lágt hlut­fall hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sé speg­ill á sam­fé­lags­smit að ein­hverju leyti.

Hann greindi einnig frá því að nú liggja fimmtán manns á sjúkra­húsi vegna COVID-19. Tveir eru á gjör­gæslu Land­spít­al­ans og annar þeirra er í önd­un­ar­vél.

[adspot]

Síðasta sól­ar­hring­inn hafa 89 ein­stak­lingar greinst með veiruna. Staðfest smit í land­inu eru því orðin 737. Af nýju smit­unum voru 57% greind hjá fólki sem var þegar í sótt­kví. Þetta sagði Þórólfur und­ir­strika mik­il­vægi þess úrræðis sem beitt hefur verið hér á landi allt frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Margir nýir pinnar

Tvö þús­und nýir sýna­tökupinnar komu til lands­ins í dag og von er á fleiri pinnum í vik­unni. Þórólfur sagði að enn væri ekki útséð með að pinnar sem stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur er með á lager geti nýst við rann­sókn­irnar. Nið­ur­stöður úr öryggis­prófum á þeim eru vænt­an­legar innan skamms. „Þannig að við erum ekki að horfa upp á skort á pinnum og von­andi verður það ekki í fram­tíð­inni.“

Veiru­fræði­deildin fær alla pinn­ana til notk­unar.

Smitrakningarappið á lokametrunum

Smitrakn­ing­arapp er í und­ir­bún­ingi á vegum land­læknis. Hönnun þess er á loka­stigi og í kjöl­farið fer fram prófun í litlum hópum. Sam­bæri­leg öpp hafa verið nýtt hjá Suður-Kóreu­mönnum og í Singapúr. Allt er málið unnið í góðri sam­vinnu við Per­sónu­vernd. Fólk getur skráð sig í appið og er hug­myndin að rekja ferðir fólks ef á þarf að halda.

[links]Sótt­varna­læknir ítrek­aði að smit meðal barna yngri en tíu ára er enn mjög lítið og sömu sögu er að segja frá öðrum Norð­ur­löndum. Í bréfi sem sent var í dag hvöttu hann og land­læknir for­eldra heil­brigðra barna til að senda þau í skól­ann.

Ekki markmiðið að búa til sýkingar hjá ákveðnum hópum

Á fund­inum var hann spurður hvort að með því að hvetja til þess að börn færu í skól­ann væri verið að reyna að ná hjarð­ó­næmi með þeim hætti. „Smit sem verður í sam­fé­lag­inu mun skapa hjarð­ó­næmi,“ sagði Þórólfur. „Við getum ekki [full­kom­lega] komið í veg fyrir smit. Það er kannski hægt með mjög hörðum aðgerðum, það myndi kosta mjög mikið, og myndi þýða það að við myndum fá far­ald­ur­inn aftur til okkar. Það er engin sér­stök stefna hjá okkur að búa til sýk­ingar úti í sam­fé­lag­inu hjá ákveðnum hópum. Alls ekki. Við erum að reyna að hægja á og minnka far­ald­ur­inn eins og mögu­legt er og við erum að vernda þá sem eru við­kvæmir fyrir, loka þá sem mest af. Það er aðal­mark­miðið. Á sama tíma vitum við að við fáum hjarð­ó­næmi sem mun hjálpa okkur síðar meir. En það er ekki mark­miðið í sjálfu sér.“

Bætti hann við að Sótt­varna­stofnun Evrópu væri ekki að mæla sér­stak­lega með skóla­lok­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár