Verksmiðjum lokað og mikill uppskerubrestur blasir við

Hita­bylgja sum­ars­ins hefur haft gríð­ar­leg áhrif á stórum land­svæðum í Kína. Rafmagn er skammtað og algjörum upp­skeru­bresti hefur þegar verið lýst yfir á nokkrum svæðum.

Í sumar hafa tugir borga í Kína lýst yfir hættuástandi vegna hita.
Í sumar hafa tugir borga í Kína lýst yfir hættu­á­standi vegna hita. Mynd: EPA

Verk­smiðjum í suð­vest­ur­hluta Kína hefur verið lokað vegna þurrka. Miðl­un­ar­lón vatns­afls­virkj­ana á svæð­inu eru hálf­tóm og orku­vinnsla því í lág­marki.

Verk­smiðjum sem fram­leiða sól­ar­raf­hlöður, sem­ent og fleira sem mik­il­vægt þykir að nota í nútíma­sam­fé­lagi, hefur verið lokað eða veru­lega dregið úr fram­leiðslu þeirra. Skammta þarf raf­magn í Sichuan-hér­aði vegna þurrkanna. Gríð­ar­leg hita­bylgja hefur geisað í Kína síð­ustu vikur og vegna hennar hefur raf­orku­notkun auk­ist, m.a. vegna þess að bún­aður til loft­kæl­ingar er keyrður af krafti alla daga. Þess er kraf­ist að heim­ili fari fremst í for­gangs­röð­un­ina þegar kemur að því að skammta raf­magn á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.

Heims­far­ald­ur­inn og aðgerðir sem gripið var til vegna hans hafði mikil áhrif á efna­hag Kína líkt og fleiri landa. Verk­smiðjur lands­ins fram­leiða marg­vís­legar afurðir sem seldar eru um allan heim. Fram­leiðsla dróst saman í far­aldr­inum af ýmsum ástæðum. Eft­ir­spurn minnk­aði og sam­komu­tak­mark­anir höfðu einnig áhrif. Á heims­vísu fóru líka flutn­ingar á sjó og í lofti úr skorðum og enn hafa þær ekki kom­ist að fullu í samt horf eftir að far­ald­ur­inn fór undan að láta.

[links]Kín­verjar hafa svo farið nokkuð aðra leið en flestar þjóðir síð­ustu mán­uði vegna nýrra smit­bylgja af COVID-19. Stjórn­völd hafa tekið mun harðar á útbreiðsl­unni en þekk­ist á Vest­ur­löndum. Sett hafa verið á útgöngu­bönn og fleira í kunn­ug­legum dúr. Útlit var fyrir að efna­hags­lífið væri að fær­ast í samt horf en COVID-aðgerðir nú í sumar hafa sett strik í þann reikn­ing svo um munar.

Hag­vöxtur var 2,5 pró­sent í Kína á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sem er innan við helm­ingur af því sem áætlað var.

Þurrk­arnir í Kína hafa ekki aðeins haft áhrif á raf­orku­vinnslu og þar af leið­andi fjöl­margar verk­smiðjur sem stóla á raf­magn í stórum stíl til sinnar fram­leiðslu. Neyslu­vatn er líka af skornum skammti svo grípa hefur þurft til neyð­ar­að­gerða til að reyna að tryggja vatns­birgðir á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.

Hundruð þús­unda hekt­ara af marg­vís­legri upp­skeru hefur skrælnað í hit­unum og þurrk­unum í mið- og norð­ur­hluta Kína, segir í frétt Al Jazeera. Svo alvar­legt er ástandið að á sumum stöðum hefur verið lýst yfir algjörum upp­skeru­bresti.

Ekkert lát er á hit­unum. Áfram er spáð um 40 stiga hita á nokkrum svæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár