Fjallað um rannsókn á Samherja í skráningarlýsingu Síldarvinnslunnar

Hluta­fjár­út­boð Síld­ar­vinnsl­unnar hefst á mánu­dag. Á meðal þeirra sem ætla að selja hlut í útgerð­inni í því er Samherji, sem verður þó áfram stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar. Fjallað er um rann­sókn yfir­valda á Samherja í skrán­ing­ar­lýs­ingu.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er einn þeirra sex sem eru með stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara á viðskiptaháttum fyrirtækisins.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er einn þeirra sex sem eru með stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á við­skipta­háttum fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Samherji

Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar, sem til stendur að skrá á markað í maí­mán­uði, er kafli um hæfi stjórnar og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Þar er til­greint að stjórn­ar­menn og þeir sem sitja í yfir­stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar hafi ekki á síð­ast­liðnum fimm árum verið sak­felldir vegna svika­mála og ekki verið dæmdir van­hæfir til að starfa, né heldur sætt opin­berri ákæru eða við­ur­lögum lög­boð­inna yfir­valda eða eft­ir­lits­að­ila á tíma­bil­inu.

Þar er hins vegar bent á að mál­efni sam­stæðu­fé­laga Samherja hf., stærsta eig­anda Síld­ar­vinnsl­unnar, séu „til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra og eðli máls sam­kvæmt hefur Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem for­stjóri Samherja hf., rétt­ar­stöðu sak­born­ings við þá rann­sókn.“ Þor­steinn Már er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar og Samherji, sam­stæðan sem hann stýrir, er að selja hluti í Síld­ar­vinnsl­unni fyrir allt að 11,8 millj­arða króna í hluta­fjár­út­boð­inu sem fram fer í næstu viku.

Þá er bent á í lýs­ing­unni að Björk Þór­ar­ins­dóttir, sem situr í stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar, hafi hlotið dóm þann 6. októ­ber 2016 í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings, en hún starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Kaup­þings fyrir banka­hrun. Í mál­inu var Björk sak­felld fyrir ónot­hæfa til­raun til umboðs­svika vegna einnar lán­veit­ingar sem átti sér stað 19. sept­em­ber 2008 en sýknuð af ákæru um umboðs­svik. Björk var ekki gerð refs­ing í mál­inu. Þá er einnig bent á að Björk hafi tekið sæti í stjórn TravelCo Nordic A/S að beiðni Arion banka hf. auk tengdra félaga þegar Arion banki hf. gekk að veðum sínum og eign­að­ist allt hlutafé félags­ins í júní 2019.

TravelCo var stofnað í kjöl­far falls Primera Air ehf. og Primera Travel Group hf. Björk til­kynnti úrsögn sína úr stjórnum félag­anna 1. októ­ber 2020, eftir það hafa flest þess­ara félaga verið tekin til skipta­með­ferðar eða fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar vegna áhrifa COVID-19-far­ald­urs­ins á ferða­þjón­ustu í við­kom­andi löndum.

Orðsporsáhætta til umfjöllunar

Í lýs­ing­unni er líka sér­stakur kafli um orð­spors­á­hættu. Hún er skil­greind þar sem „áhætta vegna þess skaða sem laskað orð­spor útgef­anda hjá neyt­endum, mót­að­ilum, starfs­mönnum, hlut­höfum og stjórn­völdum getur valdið félag­inu“.

[links]Hættan á slíkri er sú að félagið verði fyrir tekju­missi vegna nei­kvæðrar umfjöll­unar um við­skipta­hætti þess eða aðila sem tengdir eru félag­inu.

Sem dæmi um orð­spors­á­hættu er nefnt að Síld­ar­vinnslan hafi til dæmis keypt útgerðir og vinnslu stað­settar í öðrum sveit­ar­fé­lögum. „Flutn­ingur á starf­semi eftir slík við­skipti getur skaðað orð­spor félags­ins. Jafn­framt geta flutn­ingar á starf­semi innan sam­stæð­unnar haft nei­kvæð áhrif á orð­spor félags­ins.“

Þá er einnig til­greint að nei­kvæð umfjöllun geti komið upp ef félag­inu verða á mis­tök í rekstri eða ef félagið eða aðili tengdur félag­inu er sak­aður um eða dæmdur fyrir athæfi sem sam­rým­ist ekki lögum.

Samherji, stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar, og ýmis félög sem tengj­ast sam­stæð­unni eru til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Þá eru alls sex ein­stak­lingar sem tengj­ast Samherja með stöðu sak­born­ings í þeirri rann­sókn.

Í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni segir að ef orð­spor eða trú­verð­ug­leiki félags­ins bíður tjón vegna opin­berrar eða almennrar umræðu geti það „skert mögu­leika þess til tekju­öfl­unar og haft nei­kvæð áhrif á fjár­hags­lega afkomu þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár