Telur ásakanir um meint brot Samherja ekki hafa skaðað orðspor íslenskra fyrirtækja

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra seg­ist aldrei hafa fengið sím­tal, ábend­ingu eða umkvörtun frá nokkrum ein­asta aðila sem heldur því fram að ásak­anir um lög­brot Samherja séu að valda ein­hverjum veru­legum vand­ræðum fyrir íslenskan útflutn­ing.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ist aldrei hafa fengið sím­tal, ábend­ingu eða umkvörtun frá nokkrum ein­asta aðila sem heldur því fram að ásak­anir um lög­brot Samherja séu að valda ein­hverjum veru­legum vand­ræðum fyrir íslenskan útflutn­ing eða á mark­aði ann­ars staðar. Hann segir að það sem eigi að gera er að taka ábend­ingum um þessa hluti alvar­lega – rann­saka þá og kom­ast til botns í þeim.

Þetta kom fram í máli hans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Oddný G. Harð­ar­dóttir, spurði hann meðal ann­ars hvort hann gæti tekið undir það að yfir­ráð fárra aðila yfir fisk­veiði­auð­lind­inni færði útgerð­ar­risum meiri auð og völd en heil­brigt gæti talist og of sterka stöðu gagn­vart stjórn­völdum.

Oddný hóf fyr­ir­spurn sína með því að segja að öll vildum við hafa hér góð og stöndug fyr­ir­tæki sem greiða góð laun og stuðla að heil­brigðum vinnu­mark­aði. Sem greiða skatta og gjöld og sinn sann­gjarna hlut til sam­fé­lags­ins.

„Sem betur fer eigum við mörg slík hér á landi og meðal þeirra eru útgerð­ar­fyr­ir­tæki. En deilur hafa staðið um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið í langan tíma og um hvernig auð­lind­arent­unni af auð­lind þjóð­ar­innar er skipt. Auð­lind­arentan af fisk­veiði­auð­lind­inni hefur runnið nær óskipt í vasa útgerð­ar­manna og fært þeim auð og völd,“ sagði hún.

Þá benti þing­mað­ur­inn á að mikil sam­þjöppun hefði átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á und­an­förnum ára­tugum. „Tíu stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin fara með meira en helm­ing kvót­ans og 20 stærstu með meira en 70 pró­sent kvót­ans. Ofan á þetta bæt­ist svo eign­ar­hald þess­ara útgerð­ar­risa í öðrum útgerðum. Eitt þess­ara fyr­ir­tækja er Samherji sem hefur verið í umræð­unni hér heima og erlendis vegna meintra skattsvika, pen­inga­þvættis og mútu­greiðslna. Eva Joly heldur því fram í við­tali við þýskan rann­sókn­ar­blaða­mann að það sé ekki mik­ill vilji til að rann­saka þessi mál Samherja á Íslandi vegna þeirra valda sem Samherji hefur. Samherji sé valda­mik­ill á Íslandi, þeir eigi valda­mikla vini og það vilji eng­inn fá stóra rann­sókn á mál­inu.“

Spurði hún ráð­herr­ann um við­brögð hans við þessum orðum Evu Joly og hvort hann gæti tekið undir það að yfir­ráð fárra yfir fisk­veiði­auð­lind­inni, líkt og raunin væri hér á landi, færði útgerð­ar­risum meiri auð og völd en heil­brigð gæti talist og of sterka stöðu gagn­vart stjórn­völdum.

Gömul umræða og ný

Bjarni svar­aði og sagði að þetta væri gömul umræða og ný. „Hvernig eigum við að skipta ávinn­ingnum af sam­eig­in­legri auð­lind? Hátt­virtur þing­maður minn­ist á sam­þjöppun. Hvernig byrj­aði sam­þjöpp­unin? Af hverju var frjálsa fram­salið sam­þykkt? Hvers vegna barð­ist fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrir því hér í þessum sal og greiddi með því atkvæði að fram­salið yrði frjálst? Hvers vegna? Það var vegna þess að afkasta­geta flot­ans okkar, fyr­ir­tækin í land­inu, gátu sótt miklu meira magn af afla, sem sagt miklu meiri afla, heldur en afrakst­urs­geta mið­anna bauð upp á. Við þurftum að aðlaga þetta tvennt. Þess vegna náðum við einmitt þeim árangri sem að var stefnt með sam­þjöppun heim­ilda. Að þessu var stefnt með opin augun vegna þess að útgerð­inni gekk illa. Bæj­ar­út­gerð­inni gekk víða illa.

Að þessu leyt­inu til get ég ekki tekið undir að það hafi verið mis­tök að auka fram­leiðn­ina í grein­inni. Sumir þeir sem tala fyrir hærra veiði­gjaldi segja einmitt: „Hækkum veiði­gjaldið enn meira til þess að fá enn meiri sam­þjöppun. Látum þá sem eru með minnstu skil af veið­unum, minntan afrakstur hafa af veið­unum, látum þá helt­ast úr lest­inni. Hækkum veiði­gjaldið til þess að tryggja að veið­arnar eigi sér bara stað hjá þeim sem geta gert það með sem hag­kvæmustum hætti“.“

„Enginn fótur“ fyrir því að það skorti vilja á Íslandi til að rannsaka þessi mál

Sagði Bjarni að þarna lægi mót­sögnin hjá þeim sem töl­uðu í senn gegn því að til staðar væru stór fyr­ir­tæki og vildu hækka gjaldið sem mest. „Af því að það eru bara hag­kvæm stór fyr­ir­tæki sem geta risið undir miklu hærra gjaldi. En gjaldið leggst ekki með ólíkum hætti á litlar og stórar útgerðir heldur notum við í raun og veru með­al­tal allra veiði­ferða sem grunn að gjald­inu í dag.“

Hann telur að eng­inn fótur sé fyrir því að það skorti vilja á Íslandi til að rann­saka þessi mál en kall­aði hann eftir sönnun um það. „Ég vísa til orða þeirra sem fara með þessar rann­sóknir um að þeir séu á fullu við að sinna þeim og að þeir hafi fengið fjár­magn til þess. Þannig að það er eng­inn fótur fyrir því.“

Orðspor Íslendinga ítrekað skaðast

Oddný sagði í fram­hald­inu að ráð­herr­ann hefði ekki svarað spurn­ingu hennar um það hvort að hann teldi stóru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin vera orðin það stór að völd þeirra væru of mikil í sam­fé­lag­inu og þau væru þannig að þessi fyr­ir­tæki gætu ráðið því hvernig stjórn­völd stigju til jarðar í ýmsum málum.

„Orðspor Íslands og Íslend­inga skað­að­ist við banka­hrunið. Það gerði það líka þegar fjöldi Íslend­inga, þar á meðal ráð­herrar, birt­ust í Panama-skjöl­unum,“ sagði hún og spurði hvort ráð­herr­ann teldi að nei­kvæð umfjöllun um sam­skipti Samherja, meðal ann­ars meint skatt­svik í Færeyjun, pen­inga­þvætti í gegnum banka í Noregi og mútu­greiðslur í Namibíu gæti skaðað traust á íslensku atvinnu­lífi. „Að nei­kvæð umræða um við­skipti eig­enda Samherja fylgi orð­spors­á­hætta? Hafi nei­kvæð áhrif sem teygir sig yfir í við­skipti ann­arra íslenskra fyr­ir­tækja og við­skipta­samn­inga þeirra? Hvað er hæst­virt rík­is­stjórn að gera til þess að verja orð­spor Íslands að þessu leyti?“ spurði hún.

„Ég ætla ekki að láta draga minn inn í umræðu um meint brot“

Bjarni steig aftur í pontu og sagði að það sem gert væri þegar ásak­anir um lög­brot kæmu upp væri að rann­saka. „Ég ætla ekki að láta draga minn inn í umræðu um meint brot, ein­hverjar vanga­veltur um það hvort að ásak­anir um brot sem kannski var framið muni mögu­lega skaða orð­spor ann­arra fyr­ir­tækja. Ég held ekki.

Getur hátt­virtur þing­maður séð fyrir sér að þetta fyr­ir­tæki sem er með starf­semi í Frakk­landi, Þýska­landi og um allan heim sé að valda því að þýsk fyr­ir­tæki séu almennt bara að lenda í orð­spor­s­vanda. Ég held ekki. Það eru þýsk og frönsk fyr­ir­tæki sem eru í eigu þessa sama félags og hátt­virtur þing­maður setur hér á dag­skrá sem varla eru að valda veru­legri orð­spors­á­hættu.“

Hann sag­ist aldrei hafa fengið sím­tal, ábend­ingu eða umkvörtun frá nokkrum ein­asta aðila sem heldur því fram að ásak­anir um lög­brot Samherja væru að valda ein­hverjum veru­legum vand­ræðum fyrir íslenskan útflutn­ing eða á mark­aði ann­ars staðar.

„Það sem við eigum að gera er að taka ábend­ingum um þessa hluti alvar­lega. Við eigum að rann­saka þá og kom­ast til botns í þeim og við höfum ágætis sögu að segja í því efni eftir hrunið sem hátt­virtur þing­maður er dálítið fastur í og minnt­ist á hér í sinni ræðu; með þeim skýrslum sem gefnar voru út, með því upp­gjöri sem þar fór fram, með þeim rann­sóknum sem farið var í og dómum sem síðan féllu,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár