Blóðslóðin í sandinum

Það er skortur á sandi í heim­inum. Það er að segja sandi til að seðja hina óþrjót­andi eft­ir­spurn mann­anna eftir þessu ein­staka bygg­ing­ar­efni. Þetta hefur orðið til þess að ólög­leg námu­vinnsla er ástunduð af kappi í fátæk­ustu ríkjum heims.

Sandvinnsla úr árfarvegi í Búrma.
Sand­vinnsla úr árfar­vegi í Búrma. Mynd: WWF

Hann er not­aður til að byggja húsin okkar, í veg­ina og brýrnar sem við ökum, glugg­ana sem við horfum út um og í snjall­sím­ana sem við störum á dag­inn út og inn. Sandur er eft­ir­sóttasta auð­lind jarðar á eftir vatni. Eft­ir­spurnin er umfram fram­boðið sem orðið hefur til þess að ólög­leg vinnsla hans, með til­heyr­andi eyði­legg­ingu vist­kerfa og þján­ingum fólks – jafn­vel morðum – hefur komið til sög­unnar á síð­ustu árum.

Það kann að hljóma und­ar­lega að skortur sé á sandi í heim­inum. Hann virð­ist alls staðar. Í fjöll­unum, á strönd­unum, í eyði­mörk­unum. Hann er undir hverju okkar fótspori.

Stað­reyndin er hins vegar sú að þegar kemur að því að nýta þessa auð­lind er sandur ekki bara sandur. Hann þarf að hafa ákveðna eig­in­leika til að bera til að henta til ákveð­innar fram­leiðslu. Það er dýrt að hreinsa sand og það er líka dýrt að mylja grjót til sand­fram­leiðslu.

[links]Það er ómögu­legt að vita hversu mik­ill sandur er not­aður í heim­inum á hverju ári. Að því komst umhverf­is­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna sem skoð­aði málið árið 2019. Til að reyna að átta sig á umfang­inu skaut hún á að 50 millj­arðar tonna af sandi væru not­aðir til sem­ents­fram­leiðslu árlega. Óljóst er hversu mikið af af honum er svo notað til ann­arrar fram­leiðslu. Slíkar tölur liggja almennt ekki fyrir.

„Vanda­málið er að við skiljum þetta efni ekki nógu vel,“ segir Louise Gallag­her sem starfar hjá rann­sókn­ar­setri í Sviss sem sér­hæfir sig í að kort­leggja vinnslu á sandi og notkun. „Við áttum okkur ekki nægi­lega á áhrif­unum á þau svæði þar sem við tökum sand­inn. Stundum vitum við ekki einu sinni hvaðan hann kemur, hversu mikið kemur til dæmis úr árfar­vegum. Við vitum það ekki. Við ein­fald­lega vitum það ekki.“

Margvísleg áhrif

En eitt er víst, að fjar­lægja sand úr sínu nátt­úru­lega umhverfi, hefur áhrif. Áhrif á vist­gerð þess ákveðna svæðis en jafn­vel einnig á heilu vist­kerfin. Þá hefur vinnslan einnig áhrif á sam­fé­lög fólks, bæði stað­bundið og til lengri tíma litið á alþjóða­vísu. Sandur sem er unn­inn úr árfar­vegum mengar árnar sem aftur hefur áhrif á líf­ríki þeirra og afkomu fólks sem treystir á veiðar úr þeim. Þá eru ár heims­ins mik­il­vægt vatns­ból fyrir millj­ónir manna. Sandur er einnig unn­inn á strand­svæðum, á svæðum sem oft eru þegar í vanda vegna hækk­unar sjáv­ar­borðs sem er vanda­mál sem skap­ast hefur vegna lofts­lags­breyt­inga. „Vinnsla sands hefur svo einnig marg­vís­leg önnur áhrif sem eru aldrei tekin með í reikn­ing­inn,“ segir Kiran Pereira, óháður rann­sak­andi, sem skrifað hefur bók um sand­fram­leiðslu í heim­inum. „Og þessi áhrif koma alls ekki fram í verði á sandi.“

Fágæt krókó­díla­teg­und við Ganges-fljót á Indlandi er við það að deyja út vegna sand­vinnslu á búsvæðum hennar. Talið er að aðeins 250 full­orðin dýr sé nú þar að finna. Svo mikil vinnsla er víða við Mekong-fljótið í Suð­austur-Asíu að árbakk­arnir eru orðnir óstöðugir sem ógnar bæjum og þorpum sem standa við þá og lífs­við­ur­væri margra. Fleira spilar þar inn í eins og virkj­anir og aðrar fram­kvæmdir.

Í Marokkó er sand­vinnsla á strand­svæðum farin að ógna ferða­þjón­ustu. Fallegu sand­strend­urnar sem draga millj­ónir ferða­manna til lands­ins á hverju ári eru sumar hverjar farnar að láta á sjá. Auk þess hefur hún áhrif á líf­ríkið og eykur álagið á inn­viði við strend­urnar þar sem sjór­inn á greið­ari leið að þeim.

Ekki óþrjótandi auðlind

Sandur er svo hvers­dags­legt fyr­ir­bæri að fæstir gefa honum nokkru sinni gaum. Hann er þó, líkt og allt annað sem á jörðu finnst, ekki óþrjót­andi auð­lind. En sú stað­reynd að hann er allt í kringum okkur hefur lík­lega orðið til þess að nei­kvæð áhrif umfangs­mik­illar vinnslu hans hefur hingað til ekki fengið mikla athygli. Vanda­málið er falið þótt sand­ur­inn sé „fyrir allra augum,“ segir Chris Hacnkey, land­fræð­ingur við háskól­ann í Newcastle sem skrif­aði grein um nei­kvæð áhrif vinnsl­unnar í vís­inda­tíma­ritið Nature. „Spyrðu fólk hvert það telji mik­il­væg­asta hrá­efni jarðar. Sandur verður lík­lega ekki nefndur.“

Mette Bendixen, aðstoð­ar­pró­fessor við McGill-háskóla í Montreal, er einnig meðal þeirra sem rann­sakað hafa við­skipti með sand. „Í fleiri ár höfum við unnið meiri sand en nátt­úran skapar,“ segir hún. Sand­notkun fari stöðugt vax­andi þar sem spreng­ing hafi orðið í bygg­ing­ar­iðn­aði. „Nú þegar er þetta farið að eyði­leggja vist­kerfi ánna þaðan sem sand­ur­inn er unn­inn. Einnig hefur fjöldi fólks misst heim­ili sín,“ segir hún í við­tali við danska rík­is­út­varpið.

Þriðj­ungur lands á jörð­inni er skil­greindur sem eyði­mörk. Sandur eyði­markanna er þó ekki hent­ugt bygg­ing­ar­efni eins og hann kemur af kúnni. Þegar hinn 830 metra hái skýja­kljúfur Burj Khalifa var til að mynda byggður í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum, sem eru í Mið-Aust­ur­löndum þar sem eyði­merkur eru víð­feðmar, var sand­ur­inn til verks­ins fluttur inn frá Kanada og Ástralíu. Sand­kornin í eyði­mörk­inni eru svo veðruð, yfir­borð þeirra svo slétt að sand­ur­inn er ekki með það grip sem til þarf til að búa til steypu. Sandur í far­vegum áa, á ströndum og á hafs­botni, er ákjós­an­legri til slíks brúks.

Og hann er brúk­aður af miklum móð. Síðustu ár hefur eft­ir­spurnin í Asíu og Kína marg­fald­ast með miklum búferla­flutn­ingum fólks úr sveitum í borgir. Borgir sem breiða orðið úr sér yfir gríð­ar­leg land­flæmi og eiga aðeins eftir að stækka á næstu árum og ára­tugum. Kín­verjar eru taldir hafa notað meiri sand árin 2011 til 2014 en not­aður var í Banda­ríkj­unum alla tutt­ug­ustu öld­ina, tekur Mette Bendixen sem dæmi.

Jarð­ar­búar eru meira en tvisvar sinnum fleiri nú en í byrjun átt­unda ára­tug­ar­ins. Því er spáð að um miðja öld­ina verði þeir orðnir tíu millj­arðar. Þetta er ein helsta ástæða þess að mann­kynið hefur vax­andi þörf til að nota „litlu sand­kornin,“ segir Bendixen. Þótt vöxt­ur­inn sé ekki sam­bæri­legur í hinum vest­ræna heimi og í Asíu og Afríku er notk­unin þar gríð­ar­leg og með auknum efna­hags­um­svifum í rík­ari löndum heims er sífellt verið að byggja nýtt – og stærra.

En sandur er not­aður í fleira en steypu. Hann er t.d. not­aður í land­fyll­ingar. Mann­gerðar eyjur í Singapúr, þess land­litla og þétt­býla ríkis, voru búnar til úr sandi sem var fluttur inn frá Kambódíu, Víetnam og Indónesíu. Mann­gerðu eyj­urnar í Dubaí, Pálma-eyjar, sem eru svo stórar að þær sjást utan úr geimnum, voru búnar til úr sandi sem dælt var upp af botni Persafló­ans.

Verð á sandi hefur því farið hækk­andi á mark­aðs­torgi hins alþjóð­lega hag­kerfis. Og þegar skortur er á ein­hverju segir reynslan okkur að ein­hverjir muni nýta sér hann og níð­ast á öðrum í leið­inni.

Þær eru kall­aðar sand-mafí­urnar, glæpa­gengin sem hafa brennt blaða­menn lif­andi, brytjað aðgerða­sinna í spað og ekið yfir lög­reglu­menn. Sand-mafíur er að finna víða um heim, m.a. í Mexíkó og Suður-Afríku en ástandið er þó talið einna verst á Indlandi þar sem ólög­leg sand­vinnsla er mjög umfangs­mikil. Í Suð­aust­ur­hluta Asíu er talið að í það minnsta 193 hafi dáið í tengslum við slíka vinnslu, aðal­lega vegna hræði­legra aðstæðna í hinum ólög­legu námum, en margir hafa líka verið drepnir. Í Marokkó er talið að um helm­ingur alls sands sem not­aður er í land­inu á hverju ári sé unn­inn með ólög­mætum hætti.

Barna­þrælkun tíðk­að­ist einnig í þessum námum á Indlandi og í ára­fjöld litu yfir­völd ein­fald­lega fram hjá því sem og annarri ólög­legri starf­semi námu­fyr­ir­tækj­anna. Í febr­úar á þessu ári breytt­ist það er yfir­maður stærsta námu­fyr­ir­tækis Indlands, V.V. Minerals, var dæmdur í fang­elsi í Delí fyrir mútur er hann greiddi skóla­gjöld fyrir son emb­ætt­is­manns sem hafði með leyf­is­veit­ingar fyrir sand­vinnsl­una að gera. Fyr­ir­tækið er sagt hafa stundað ólög­lega námu­vinnslu í ára­tugi.

Til að koma böndum á sand­vinnslu heims­ins þurfa leið­togar að koma á betra eft­ir­liti með þessum iðn­aði og hafa mun meira aðhald í leyf­is­veit­ingum til námu­vinnslu. Nýsköpun í bygg­ing­ar­iðn­aði er enn­fremur nauð­syn­leg svo draga megi úr eft­ir­spurn eftir sandi. Þá eru einnig van­nýtt tæki­færi í end­ur­vinnslu bygg­ing­ar­efnis, s.s. til land­fyll­inga og vega­gerðar. Pereira segir að geta manna til bygg­ingar húsa þurfi ekki að standa og falla með sandi. Hægt sé að fara leiðir sem hafi minni áhrif á vist­kerfi jarðar. Þeirra verði að leita og þróa áfram.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár