Eignir lífeyrissjóða jukust í mars þrátt fyrir veirufaraldur

Íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið á 4.950 millj­arða króna. Eignir þess juk­ust í mars þrátt fyrir að í þeim mán­uði hafi mark­aðir víða um heim upp­lifað mik­inn óstöð­ug­leika og mörg fyr­ir­tæki á Íslandi sem þeir eiga hluti í lent í vand­ræðum vegna veirunnar.

Eigendur íslenskra lífeyrissjóða er fólkið sem borgar í þá, almenningur í landinu.
Eigendur íslenskra líf­eyr­is­sjóða er fólkið sem borgar í þá, almenn­ingur í land­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða voru metnar á 4.950 millj­arða króna í lok mars síð­ast­lið­ins. Þær hækk­uðu um 30,7 millj­arða króna milli mán­aða. Sú hækkun er að öllu leyti vegna þess að erlendar eignir sjóð­anna, sem voru 1.485 millj­arðar króna í lok mars, juk­ust um 33,3 millj­arða króna í mán­uð­inum. Þá hækkun má að minnsta kosti að hluta rekja til þess að krónan veikt­ist gegn helstu við­skipta­gjald­miðlum Íslands í mars­mán­uði. Alls dróg­ust inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins saman um 2,6 millj­arða króna í mars.

Þetta kemur fram í nýjum tölum um eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem Seðla­banki Íslands birti í dag.

Vert er að benda á að á annan tug millj­arða króna er greitt inn í líf­eyr­is­sjóða­kerfið í formi iðgjalda í hverjum mán­uði. Því er tapið milli mán­aða, að þeim með­töldum, meira en greint er frá í tölum Seðla­bank­ans. Búast má við því að inn­greiðslur muni drag­ast umtals­vert saman í nán­ustu fram­tíð í ljósi þess að 55 þús­und manns eru nú atvinnu­lausir að öllu leyti eða að hluta á Íslandi. Það þýðir að launa­greiðslur til þess hóps munu drag­ast veru­lega saman og sam­hliða því iðgjöld sem skila sér í líf­eyr­is­sjóð­ina.

[adspot]Ljóst er að hluti þess höggs sem líf­eyr­is­sjóð­irnir munu þurfa að taka á eigna­safn sitt vegna áhrifa af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum á eftir að koma fram en töl­urnar fyrir mars­mánuð eru þó jákvæðar.

Fóru yfir fimm þúsund milljarða í janúar

Eignir kerf­is­ins fóru yfir fimm þús­und millj­arða króna í jan­úar 2020, en lækk­uðu um 88 millj­arða króna í febr­úar. Það var í fyrsta sinn síðan í des­em­ber 2018 sem að eignir kerf­is­ins dróg­ust saman milli mán­aða. Þá lækk­uðu eign­irnar um 100 millj­arða króna en juk­ust svo aftur um 145 millj­arða króna í næsta mán­uði á eftir. Þar var því um mjög tíma­bundna nið­ur­sveiflu að ræða.

Eina skiptið fyrir utan það sem eign­irnar hafa lækkað meira í krónum talið en þær gerðu í febr­úar 2020 var í októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi. Þá töp­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 209 millj­örðum króna á einum mán­uði.

Það verður þó að taka inn í dæmið að heild­ar­eignir þeirra fyrir hrunið voru 1.868 millj­arðar króna og því var hlut­falls­lega áfallið þá mun meira en það er nú. Í febr­úar 2020 lækk­uðu eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna um 1,7 pró­sent en í hrun­mán­uð­inum 2008 lækk­uðu þær um rúm­lega ell­efu pró­sent.

Í nóv­em­ber 2008 hækk­uðu eign­irnar svo aftur um 73 millj­arða króna og hluti af tap­inu náð­ist því til baka, aðal­lega með geng­is­falli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár