Kostnaður vegna stöðu útvarpsstjóra RÚV jókst um tíu milljónir í fyrra

Fyrr­ver­andi útvarps­stjóri samdi um starfs­lok í fyrra og lét af störfum 15. nóv­em­ber. Hann fékk greidd laun út jan­úar 2020 auk þess sem sem hann fékk greitt orlofs­upp­gjör. Stað­geng­ill hans kost­aði 2,7 millj­ónir króna í laun í 2019.

Magnús Geir Þórðarson lét af störfum sem útvarpsstjóri 15. nóvember í fyrra. Tveimur vikum áður hafði verið greint frá því að hann yrði næsti Þjóðleikhússtjóri. Hann tók við því starfi í byrjun árs 2020.
Magnús Geir Þórð­ar­son lét af störfum sem útvarps­stjóri 15. nóv­em­ber í fyrra. Tveimur vikum áður hafði verið greint frá því að hann yrði næsti Þjóð­leik­hús­stjóri. Hann tók við því starfi í byrjun árs 2020. Mynd: RÚV

Fyrr­ver­andi útvarps­stjóri samdi um starfs­lok í fyrra og lét af störfum 15. nóv­em­ber. Hann fékk greidd laun út jan­úar 2020 auk þess sem sem hann fékk greitt orlofs­upp­gjör. Stað­geng­ill hans kost­aði 2,7 millj­ónir króna í laun í 2019.

Kostn­aður vegna heild­ar­launa og þókn­ana til útvarps­stjóra RÚV jókst um 9,9 millj­ónir króna milli 2018 og 2019. Í árs­reikn­ingi RÚV, sem birtur var í síð­ustu viku, stendur: „Heild­ar­laun og þókn­anir útvarps­stjóra námu 35,8 millj­ónum króna á reikn­ings­ár­inu (2018: 25,9 millj­ónir króna), en á árinu 2019 lét útvarps­stjóri af störfum og stað­geng­ill hans tók við. Laun útvarps­stjóra hækka á milli ára vegna upp­gjörs við starfs­lok og launa stað­geng­ils.“

Kjarninn óskaði eftir sund­ur­liðun á þessum kostn­aði. Í svari fram­kvæmda­stjóra fjár­mála, tækni og mannauðs hjá RÚV við fyr­ir­spurn­inni kemur fram að útvarps­stjóri fékk sam­tals 33.056.293 krónur í laun vegna síð­asta árs. „Útvarps­stjóri fékk greidd laun út jan­úar 2020 auk þess fékk hann greidd upp­gjör vegna orlofs fyrir tvo mán­uði frá fyrri árum. Öll laun voru gjald­færð á árinu 2019, þó svo að hluti hafi komið til greiðslu á árinu 2020. Rétt er að geta þess að hluti launa­tengdra gjalda (mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð) er hér með­talið.“

Stað­geng­ill útvarps­stjóra fékk 2.718.100 krónur í laun í fyrra.

Lét af störfum 15. nóvember

Greint var frá því 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefði ákveðið að skipa Magnús Geir Þórð­ar­son í starf þjóð­leik­hús­stjóra. Skip­anin gildir í fimm ár, frá og með 1. jan­úar 2020.

[adspot]Hann hafði verið útvarps­stjóri frá því í mars 2014. Fimm ára ráðn­ing­ar­tíma­bili hans í það starf lauk því snemma árs í fyrra en Kári Jón­as­son, stjórn­ar­for­maður RÚV, sagði í jan­úar 2019 við Kjarn­ann að engin áform væru um að aug­lýsa starf­ið, heldur stæði til að end­ur­nýja ráðn­ingu Magn­úsar Geirs til ann­arra fimm ára. Á þeim tíma var gengið út frá því að Magnús Geir sæti í Efsta­leiti til árs­ins 2024.

Hann lét af störfum 15. nóv­em­ber í fyrra eftir að sam­komu­lag náð­ist um hvernig starfs­lokum hans yrði háttað og Margrét Magn­ús­dóttir, skrif­stofu­stjóri RÚV, var starf­andi útvarps­stjóri frá þeim tíma þangað til að Stefán Eiríks­son var skip­aður í starfið eftir umsókn­ar­ferli. Stefán tók við 1. mars síð­ast­lið­inn.

Fyrr­ver­andi útvarps­stjóri fékk því laun greidd í tvo og hálfan mánuð eftir að hann lét af störfum eftir að hafa ráðið sig í nýtt starf.

Samkeppnisreksturinn kostaði 248 milljónir

RÚV hagn­að­ist um 6,6 millj­ónir króna á árinu 2019. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 6,9 millj­arðar króna. Þar af komu 4,7 millj­arðar króna úr rík­is­sjóði í formi þjón­ustu­tekjna af útvarps­gjaldi, en 2,2 millj­arðar króna voru tekjur úr sam­keppn­is­rekstri. Kostn­aður við rekstur sam­keppn­is­hluta, sem er að uppi­stöðu aug­lýs­inga­sölu­deild, var 248 millj­ónir króna í fyrra og stóð í stað milli ára.

Tekjur RÚV af aug­lýs­ingum og kostun voru sam­tals 1.837 millj­ónir króna í fyrra og lækk­uðu um 199 millj­ónir milli ára, eða um tíu pró­sent. Aðrar tekjur af sam­keppn­is­rekstri, sem felur meðal ann­ars í sér útleigu á mynd­veri RÚV, juk­ust hins vegar í fyrra úr 315 millj­ónum króna í 366 millj­ónir króna, eða um 51 milljón króna. Það er aukn­ing upp á 16 pró­sent milli ára.

[adspot]Í árs­lok í fyrra var stofnað dótt­ur­fé­lagið RÚV Sala ehf., sem mun sjá um starf­semi sam­keppn­is­rekstr­ar­hluta RÚV frá og með árinu 2020. Þetta var gert í kjöl­farð stjórn­­­sýslu­út­­­tektar Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar á RÚV sem birt var nóv­em­ber í fyrra. Þar benti rík­­is­end­­ur­­skoð­andi á að RÚV hefði ekki upp­­­fyllt laga­­legar skyldur um stofnun dótt­­ur­­fé­laga fyir aðra starf­­semi en fjöl­miðlun í almanna­þágu.

Hefði verið ógjald­fært án lóða­sölu

Afkoma RÚV á árunum 2013 til 2018 var jákvæð um 1,5 millj­­arða króna, en sú afkoma skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­­ins við Efsta­­leiti. Ef litið er á afkomu félags­­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­­ar­af­koma félags­­ins á þessu tíma­bili var hún nei­­kvæð um 61 milljón króna. Án lóða­­söl­unnar hefði RÚV ohf. orðið ógjald­­fært.

[links]Þetta er kom fram í stjórn­­­sýslu­út­­­tektar Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar á RÚV sem birt var nóv­em­ber í fyrra.

Auk þess samdi RÚV í maí 2018 við Líf­eyr­is­­­­sjóð starfs­­­­manna rík­­­­is­ins (LSR) um að breyta skil­­­­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­­­­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­­­lega var lengt í greiðslu­­­­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða er höf­uð­­­­stóll hækk­­­­aður og vextir lækk­­­­aðir úr fimm pró­­­­sentum í 3,5 pró­­­­sent. Þetta gerir það að verkum að greiðsla skuld­­­ar­innar teygir sig til fram­tíð­ar­kyn­slóða en fjár­­­­­magns­­­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru 282,4 millj­­­ónir króna í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár