Hvað er sjálfkeyrandi bíll?

Hversu sjálf­stæður þarf bíll að vera til þess að vera sjálf­keyr­andi bíll? Fjallað er um sjálfa­kandi bíla og umferð­ar­tækni fram­tíð­ar­innar á nýjum vef, Fram­göngur.is.

Hugmyndin um sjálfkeyrandi bíla er fjarri því að vera ný.
Hug­myndin um sjálf­keyr­andi bíla er fjarri því að vera ný.

Framgöngur.is er nýr vefur þar sem fjallað er um framtíð samgöngumála og reynt að dýpka og auðga umræðuna um framtíðarhorfur í samgöngumálum og ferðamátum. Greinin birtist fyrst á vef Framgangna.

Sjálf­keyr­andi bílar hafa verið mikið til umræðu und­an­farin miss­eri og ekki af ástæðu­lausu. Á síð­ustu árum hafa svo til allir stærstu bíla­fram­leið­endur heims unnið að þróun sjálf­keyr­andi tækni og sömu sögu er að segja af mörgum stærri tækni­fyr­ir­tækjum á borð við Alphabet og Apple. En hvað er sjálf­keyr­andi bíll og hvað skil­greinir hann? Alþjóð­leg sam­tök verk­fræð­inga í sam­göngu­iðn­aði, SAE, hafa þróað flokk­un­ar­kerfi sem skil­greinir sjálf­keyr­andi tækni á mis­mun­andi stigum.

Flokk­un­ar­kerfið, sem má sjá hér að neðan ásamt skýr­ingum, leit­ast við að svara því „hver gerir hvað hvenær“ við stjórnun öku­tæk­is­ins og lýsir kerf­inu en ekki öku­tæk­inu. Skalinn nær frá núll upp í fimm, þar sem öll verk­efni við akst­ur­inn eru í höndum öku­manns í stigi núll en alfarið tölvu­stýrt á stigi fimm.

[adspot]

Taflan hér að neðan er þýdd yfir á íslensku. Upp­runa­lega töflu SAE má finna hér.

Stig 0 – Engin sjálfstýring

Bíllinn er að öllu leyti og undir öllum kring­um­stæðum undir stjórn öku­manns­ins.

Dæmi: Kerfið er í besta falli „aðvör­un­ar­kerfi“ og aðstoðar t.a.m. öku­mann við að bakka inn í þröng stæði með því að gefa frá sér hljóð ef eitt­hvað verður í vegi bíls­ins en öll stjórnun (stýra, bremsa, inn­spýt­ing og svo fram­vegis) er í höndum öku­manns.

Stig 1 – Aðstoð við ökumann

Sjálf­virka tölvu­kerfið getur stundum aðstoðað öku­mann­inn við afmark­aða hluta keyrsl­unnar, t.d. getur kerfið aðstoðað við að stýra öku­tæk­inu og hraða þess (cruise control).

Dæmi: Kerfið stýrir bílnum inn í bæði venju­leg og sam­síða bíla­stæði, og einnig út úr sam­síða bíla­stæðum. Kerfið sér hér um að stýra bílnum á sem bestan hátt við þessar ákveðnu aðstæður en bremsa og bens­ín­gjöf er áfram undir stjórn öku­manns­ins.

Stig 2 – Sjálfstýring að hluta

Sjálf­virka tölvu­kerfið getur stýrt öku­tæk­inu við ákveðnar aðstæður en eft­ir­lit með aðstæðum er enn í höndum öku­manns­ins, sem einnig sinnir þeim hluta akst­urs­ins sem tölvu­kerfið ræður ekki við. Þetta þýðir að tölvu­kerfið getur leyst öku­mann­inn af hólmi við akst­ur­inn, og öku­mað­ur­inn þarf því ekki að stíga á bens­ín­gjöf eða halda um stýrið. Hann þarf aftur á móti að vera við­bú­inn og til­bú­inn að taka yfir stjórn­ina ef þörf krefur.

Dæmi: Kerfið getur stýrt hraða bíls­ins í hægri umferð (umferð­ar­teppu), og hægir á bílnum eða gefur í eftir því sem umferðin leyfir. Líta má á þetta stig sem upp­færslu af „cruise control“, þar sem kerfið getur nú einnig hægt á sér eða aukið hrað­ann, og stöðvað bíl­inn eða tekið af stað (en ekki skipt um akrein). Tesla Autopilot má flokka sem stig 2 í dag.

Stig 3 – Skilyrt sjálfstýring

Sjálf­virka tölvu­kerfið getur bæði stýrt öku­tæk­inu við ákveðnar aðstæður og fylgst með umhverf­inu við ákveðnar aðstæður, en bíl­stjór­inn verður að vera reiðu­bú­inn að taka við stjórn­inni þegar tölvu­kerfið kallar eftir því. Helsta breyt­ingin á milli stiga 0-2 og 3-5 er sá að á efri stigum getur tölvu­kerfið fyglst með og metið umhverfið.

Dæmi: Á hrað­braut getur kerfið stýrt hraða og einnig tekið framúr og skipt um akrein. Ef aðstæður verða kerf­inu ofviða þá getur það kallað eftir því að öku­maður taki við stjórn­inni.

Stig 4 – Mikil sjálfstýring

Sjálf­virka tölvu­kerfið getur stýrt öku­tæk­inu og fylgst með umhverf­inu, og öku­mað­ur­inn getur aðeins stýrt við ákveðnar aðstæður í ákveðnu umhverfi.

Dæmi: Á hrað­braut getur kerfið stýrt hraða og einnig tekið framúr og skipt um akrein. Ökumaður getur slökkt á kerf­inu, en tölvu­kerfið mun ekki þurfa að kalla eftir því að öku­maður taki við stjórn.

Stig 5 – Algjör sjálfstýring

Sjálf­virka tölvu­kerfið getur stýrt öku­tæk­inu að öllu leyti við allar þær aðstæður sem öku­mað­ur­inn gæti. Ökutæki á þessu stigi þarf ekki stýri.

Dæmi: Tölvu­kerfið stjórnar bílnum að öllu leyti, við allar aðstæður, frá upp­haf­s­punkti A til enda­stöðvar B.

Fjölmörg hug­tök og orða­sam­bönd eru þýdd eftir bestu getu yfir á íslensku. Fram­göngur hyggj­ast þróa og bæta íslensku heitin og orða­sam­böndin sem eiga við sjálf­keyr­andi tækni, og fagna öllum ábend­ingum er það varðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framgöngur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár