Gömlu bílarisarnir í kröppum dansi með nýju, flottu krökkunum

Hvað eiga rót­grónu bílarisarnir að gera í nýjum og kúl bíla­fram­leið­endum? Hall­grímur Oddsson fjallar um fram­tíð sam­gangna á vefnum Fram­göngur.

Tesla er eitt þeirra nýju fyrirtækja sem framleiða eingöngu rafbíla.
Tesla er eitt þeirra nýju fyr­ir­tækja sem fram­leiða ein­göngu raf­bíla. Mynd: Tesla.

Fram­göng­ur.is er nýr vefur þar sem fjallað er um fram­tíð sam­göngu­mála og reynt að dýpka og auðga umræð­una um fram­tíð­ar­horfur í sam­göngu­málum og ferða­mát­um. Greinin birt­ist fyrst á vef Fram­gangna.

Schumpeter, einn nafn­lausra skoð­ana­dálka í the Economist tíma­rit­inu, fjall­aði nýlega um bar­áttu rót­grónu bíla­fram­leið­end­anna í Detroit-borg í Banda­ríkj­unum við að halda í við tækni­fyr­ir­tækin í Sílíkon­dal. Umfjöll­un­ar­efni Schumpeter var sögu­lega lágt hluta­bréfa­gengi gömlu risanna í Ford og General Motors, á sama tíma og fjár­festar á Wall Street sýna nýjum fyr­ir­tækjum sem starfa í sam­göngu­geir­anum mik­inn áhuga: fyr­ir­tækj­unum sem nú leiða þróun raf­magn­s­væð­ingar bíla­flot­ans, deili­bíla og sjálf­keyr­andi bíla.

Schumpeter segir bílaris­ana í Detroit standa frammi fyrir klass­ískri klemmu þeirra sem fyrir eru á mark­aði. „Und­ir­liggj­andi breyt­ingar í bíla­iðn­að­inum eru raun­veru­legar: það hvernig bílar eru búnir til og þeir not­aðir er að breyt­ast. En þró­unin er umlukin öfgum. Félögin í Detroit standa frammi fyrir klass­ískri klemmu þeirra sem fyrir eru á mark­aði (e. classic incumbent’s dilemma). Þau verða að sýna að þau geti dansað með flottu krökk­unum, án þess að tapa vesk­inu eða virð­ingu sinni.“

[adspot]

Brekka hjá GM og Ford

Þrátt fyrir að Detroit borg, sem stundum er kölluð Motor City vegna umfangs­mik­ils bíla­iðn­aðar á svæð­inu, rétti þessi miss­erin úr kútnum eftir erf­iðan ára­tug í kjöl­far efna­hags­hruns­ins, þá hefur tveimur stærstu bíla­fram­leið­end­unum GM og Ford gengið illa að heilla fjár­festa á nýjan leik. Hlutfall mark­aðsvirðis félag­anna af hagn­aði (Price-Earning hlut­fall) er í lægstu lægðum, og meðal þess lægsta sem sést hjá skráðum félögum í S&P 500 vísi­töl­unni.

Þetta telur Schumpeter óheilla­merki. „Lágt P/E hlut­fall er leið mark­að­ar­ins til að segja þér að rekst­ur­inn eins og þú þekkir hann er búinn að vera.“ Þrátt fyrir að félögin tvö hafi sam­an­lagt hagn­ast um 18 millj­arða doll­ara á síð­asta ári, þá er mark­aðsvirði þeirra aðeins 98 millj­arðar doll­ara. „Þetta hlut­fall bendir til að hagn­aður félag­anna muni helm­ing­ast eða þaðan af verra, og hratt,“ segir í Schumpeter-dálk­inum, sem nefndur er í höf­uðið á hag­fræð­ingnum þekkta.

Er verðlagningin sanngjörn?

Virði Uber, Tesla og Waymo (dótt­ur­fé­lags Alphabet, sem áður hét Google), er í öllum til­vikum hærra en mark­aðsvirði gömlu bílarisanna. Þrátt fyrir tap­rekstur þeirra í dag og mun minni sölu en hjá GM og Ford, þá eru vænt­ingar til fram­tíðar miklar sem end­ur­spegl­ast í fjár­hags­mati á félög­unum. Til dæmis telja grein­endur Morgan Stanley bank­ans að Waymo, sem nú vinnur að þróun sjálf­keyr­andi tækni, muni selja fyrir meira en 200 millj­arða doll­ara fyrir árið 2030. Það myndi gera Waymo eitt og sér að fimmta stærsta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna. „Ekki slæmt, að því gefnu að fyr­ir­tækið hefur engar vörur til sölu,“ segir Schumpeter háðs­lega.

Stjórn­endur Ford og GM telja verð­lagn­ingu á sínum félögum ósann­gjarna og ekki end­ur­spegla raun­veru­leik­ann. Þeir telja fjár­festa í dag gera tvenn mis­tök. Í fyrsta lagi van­meti fjár­festar hversu erfitt það er að fjölda­fram­leiða bíla. Stjórn­end­urnir benda á að Tesla fram­leiðir í dag 1% af þeim fjölda sem GM fram­leiðir á ári. Í öðru lagi van­meti fjár­festar lík­urnar á að innan bílarisanna séu fyr­ir­tæki eða rekstr­ar­ein­ingar jafn­góðar og Tesla, Uber eða Waymo. Bíla­fram­leið­end­urnir vinni nefni­lega sjálfir að nýrri tækni auk þess sem þeir eiga hlut­deild í „fram­tíð­ar­fé­lög­unum“. Þannig á GM 9% hlut í Lyft, helsta keppi­naut Uber, í fyrra keypti GM fyr­ir­tækið Cruise sem þróar sjálf­keyr­andi tækni, og fram­leiðir auk þess raf­magns­bíl­inn Chevrolet Bolt. Ford áætlar að 20 mis­mun­andi raf­magns­öku­tæki frá félag­inu verði á götum úti fyrir árið 2020, nýlega var skipt um for­stjóra og sá leiddi áður tækni­þróun Ford, og ákveðið hefur verið að fjár­festa fyrir einn millj­arð doll­ara á næstu fimm árum í gervi­greindar-fyr­ir­tæk­inu Argo, fyr­ir­tæki sem þróar hug­búnað fyrir sjálf­keyr­andi öku­tæki.

En fjár­festum virð­ist nokk sama. Þeir meta áhættu rekst­urs­ins í dag ofar mögu­leikum til fram­tíðar, og ótt­ast t.a.m. að bíla­sala í Banda­ríkj­unum standi nú í hæstu hæðum.

Svarið að búa til sérstök félög?

Í her­búðum Ford og GM er það til skoð­unar að búa til sér­stök dótt­ur­fé­lög utan um tækni- og fram­tíð­ar­rekstur, og búa þannig til félög sem hægt væri að aug­lýsa sem „hið nýja Ford“ og „hið nýja GM“. Þannig væri hægt að keppa við Tesla, Uber og Waymo um hylli fjár­festa, og mögu­lega rífa upp mark­aðsvirði móð­ur­fé­lag­anna Ford og GM.

Schumpeter telur þetta þó áhættu­samt. „Bíla­fram­leið­end­urnir gætu hafið ferli sem ekki er hægt að stjórna. Wall Street gæti orðið spennt og kraf­ist þess að nýju dótt­ur­fé­lögin verði seld, og þannig rænt bestu eign­unum af Detroit,“ segir í grein­inni. Risar á fjar­skipta­mark­aði hafi reynt svip­aða stra­tegíu með far­síma­þjón­ustu á 10. ára­tug­inum og eftir alda­mót, en sam­einað félögin að nýju nokkrum árum síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framgöngur

Mest lesið undanfarið ár