Löggjafar beggja vegna Atlantshafsins fókusa á sjálfkeyrandi bíla

Stjórn­völd í Bret­landi og Banda­ríkj­unum íhuga laga­breyt­ingar til þess að liðka fyrir komu sjálf­keyr­andi bíla í fram­tíð­inni. Hall­grímur Oddsson fjallar um fram­tíð sam­gangna á vef sínum, Fram­göngur.

Aukinn áhugi á rafbílum hefur skilað sér til löggjafa í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Aukinn áhugi á raf­bílum hefur skilað sér til lög­gjafa í Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Mynd: Pexels.

Fram­göng­ur.is er nýr vefur þar sem fjallað er um fram­tíð sam­göngu­mála og reynt að dýpka og auðga umræð­una um fram­tíð­ar­horfur í sam­göngu­málum og ferða­mát­um. Greinin birt­ist fyrst á vef Fram­gangna.

Samhliða örri þróun sjálf­keyr­andi tækni hefur þrýst­ingur á lög­gjafa auk­ist um heim allan. Mik­il­vægum spurn­ingum varð­andi leyf­is­út­gáfu, ábyrgð, staðla og umferð­ar­reglur er víða ósvarað þegar kemur að próf­unum og þróun sjálf­stýr­ingar sem og fram­tíð­ar­reglu­verki. Þrýst­ingur á að lög­gjaf­inn haldi í við þró­un­ina kemur einkum úr tveimur áttum, ann­ars vegar frá fram­leið­endum sjálf­keyr­andi bíla og hins vegar frá sam­tökum og lobbý­istum sem berj­ast fyrir auknu umferð­ar­ör­yggi.

Áskor­anir sem stjórn­völd standa frammi fyrir vegna sjálf­stýr­ingar í umferð­inni eru í dag einkum tvær. Í fyrsta lagi þarf reglu­verkið að vera þannig úr garði gert að leysa megi úr læð­ingi þann ábata sem sjálf­stýr­ing getur haft í för með sér. Sá ábati er m.a. aukið öryggi í umferð­inni, en ályktun um aukið öryggi er helst dregin af þeirri stað­reynd að yfir­gnæf­andi hlut­fall umferð­ar­slysa má í dag rekja til mann­legra mis­taka. Í öðru lagi er það hlut­verk stjórn­valda að gæta öryggis borg­ar­anna, í þessu til­viki umferð­ar­ör­yggi. Þessi tvö mark­mið geta skar­ast á, einkum við þróun og prófun á bíl­unum.

Stjórn­völd víða um heim hafa um all­langt skeið veitt þróun sjálf­keyr­andi bíla athygli og litið á tækn­ina jákvæðum augum, á sama tíma og þau hafa leit­ast við að bera kennsl á mögu­legar áskor­anir. Sem dæmi telja umferð­ar­yf­ir­völd í Banda­ríkj­unum að þróun í sam­göngu­málum verði hrað­ari á allra næstu ára­tugum en á síð­ustu 100 árum, í Bret­landi kom fyrst út skýrsla um fram­tíð­ar­mögu­leika sjálf­stýr­ingar árið 2015, og sér­fræð­ingar rann­sókn­ar­set­urs Evr­ópu­þings­ins telja sjálf­keyr­andi bíla vera meðal mik­il­væg­ustu tækninýj­unga. Svona mætti lengi telja áfram.

En þrátt fyrir skýrslu­gerð og auk­inn fókus þá hefur, þar til nú, lítið borið á laga­setn­ingum um sjálf­keyr­andi bíla. Nú er útlit er fyrir að málum þoki hraðar, en búist er við að báðar deildir Banda­ríkja­þings muni sam­þykkja laga­frum­varp er varðar sjálf­keyr­andi tækni þegar þing­deildir koma saman á ný í sept­em­ber. Og í Bret­landi gaf sam­göngu­ráð­herra út í þess­ari viku við­mið­un­ar­reglur fyrir net­ör­yggi tengdra og sjálf­stýrðra öku­tækja.

Bandaríkin vilja bæði liðka fyrir og hamla ofvöxt

Fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum hafa verið leið­andi í þróun sjálf­keyr­andi tækni. Þar hafa bíla­fram­leið­endur og tækni­fyr­ir­tæki haft nokkrar áhyggjur af núgild­andi reglu­verki um öku­tæki, sem m.a. kveður á um að öll öku­tæki séu búin stýri og fót­stigum. Til að prófa öku­tæki sem ekki falla undir núgild­andi reglu­verk þarf sér­stakt leyfi sem eru útgefin að hámarki 2.500 á ári hverju.

Þessu vilja fyr­ir­tækin breyta, svo hægt sé að þróa sjálf­keyr­andi bíla áfram. Búist er við að lög­gjaf­inn verði við þess­ari ósk með því að fjölga leyfum í allt að 25.000 frá og með gild­is­töku lag­anna, en mun síðan fara vax­andi ár frá ári og verða leyfin 100 þús­und árlega eftir þrjú ár. Þannig vilja yfir­völd koma í veg fyrir of hraða fjölgun sjálf­keyr­andi öku­tækja á þró­un­ar­stigi í umferð­inni.

Þá er búist við að þing­menn Banda­ríkja­þings muni banna ein­stökum ríkjum að setja eigin lög um sjálf­keyr­andi bíla og hönnun þeirra, útbúnað og virkni. Þannig á að reyna að sam­ræma reglur frá einu ríkis til ann­ars. Einstök ríki myndu þó áfram geta ákveðið reglu­verk er varða ábyrgð í umferð­inni, skrán­ingu öku­tækja og trygg­inga­mál.

Einnig er talið að Stofnun umferð­ar­ör­ygg­is­mála í Banda­ríkj­unum (NHTSA) verði falið að semja reglur um þróun og próf­anir sjálf­keyr­andi bíla, en áður hefur stofn­unin gefið út nokkurn fjölda skýrsla um þró­un­ina og lagt til breyt­ingar á núgild­andi lögum.

Að lokum munu nýju lögin að lík­indum taka á gagna­ör­yggi og per­sónu­vernd. Eitt áhættu­at­riða sjálf­keyr­andi og/eða tengdra öku­tækja er einmitt gagna- og per­sónu­vernd. Frum­varpið tekur á þessu m.a. með því að skylda fyr­ir­tæki til að upp­lýsa um hvernig og hvaða gögnum er safnað, hvernig þau eru geymd og þeim deilt.

Bretar fókusa á netöryggi

Banda­ríkja­menn eru ekki einir um að hafa áhyggjur af net­ör­yggi. Fyrr í vik­unni gaf sam­göngu­ráð­herra Bret­lands út átta við­mið­un­ar­reglur er varða net­ör­yggi tengdra og sjálf­keyr­andi öku­tækja. Regl­urnar eru nokkuð almenns eðlis og er ætlað að tryggja það að fyr­ir­tækin setji sér­stakan fókus á net­ör­ygg­is­hlið þró­un­ar­innar, einkum örygg­is­mál vegna mögu­legra tölvu­árása.

Búist er við að laga­frum­varp sem tekur á sjálf­keyr­andi tækni og raf­magns­bílum á breið­ari grunni komi innan tíðar á borð breska þings­ins, en sjálf drottn­ingin boð­aði slíkt frum­varp við setn­ingu þings­ins í júní síð­ast­liðnum. Þá sagði hún að frum­varpið myndi „leyfa nýsköpun að blómstra og tryggja það að næsta alda sjálf­keyr­andi tækni verði þróuð, hönnuð og virkjuð í Bret­landi”.

Þessar nýlegu aðgerðir lög­gjafa beggja vegna Atl­ants­hafs­ins benda til að yfir­völd ætli sér að halda í við öra tækni­þró­un­ina, bæði til að tryggja öryggi og svo sækja megi þann ábata sem tæknin hefur í för með sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framgöngur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár