Audi tekur forystu með tækni sem margir keppinautar vilja komast hjá

Nýr Audi verður sjálf­stýrður upp að vissu marki og reiðir sig á inn­grip mann­legs öku­manns við sér­stakar aðstæður. Slík sjálf­stýr­ing er umdeild og eitt­hvað sem keppi­nautar Audi hafa reynda að koma sér undan að reyna.

Fram­göng­ur.is er nýr vefur þar sem fjallað er um fram­tíð sam­göngu­mála og reynt að dýpka og auðga umræð­una um fram­tíð­ar­horfur í sam­göngu­málum og ferða­mát­um. Greinin birt­ist fyrst á vef Fram­gangna.

Þýski bíla­fram­leið­and­inn Audi vakti athygli á dög­unum þegar 2018 útgáfan af Audi A8 var kynnt í Barcelona. Bíllinn verður sá fyrsti í almennri sölu útbú­inn bún­aði sem telst til 3. stigs sjálf­keyr­andi tækni. Það þýðir að undir ákveðnum kring­um­stæður þegar sjálf­stýr­ingar nýtur við þarf öku­mað­ur­inn ekki að fylgj­ast með umferð­inni eða umhverfi sínu. Í til­viki Audi A8 eru þessar ákveðnu kring­um­stæður til staðar þegar keyrt er undir 60 km/klst hraða, og ætti því t.d. að nýt­ast öku­mönnum þegar þeir eru í umferð­ar­öng­þveiti. Ökumenn geta þá lesið blöðin eða gert hvað sem þeir vilja, á meðan hin svo­kall­aða tækni AI Traffic Jam Pilot sér um að stjórna bílnum að öllu leyti: taka af stað, stoppa, stýra og bremsa.

Audi A8 mun kosta rúmar 90 þús­und evrur í Evrópu án auka­bún­aðar, sem gera um 11 millj­ónir króna á núver­andi gengi. Ekki er víst að allir kaup­endur geti nýtt sjálf­stýr­ing­ar­hæfi­leika bíls­ins til fulls, því það fer eftir lagaum­hverfi í hverju landi eða ríki fyrir sig. T.d. getur verið að lögum sam­kvæmt skuli öku­maður ávallt fylgj­ast með veg­inum og umhverfi sínu. Audi mun not­ast við stað­setn­ingar-girð­ingar (e. geofencing) til að virkja eða slökkva á sjálf­stýr­ingu bíls­ins, eftir því hvort lög leyfa.

Ökumaður fjórðu kyn­slóðar Audi A8 getur, undir ákveðnum kring­um­stæðum, leikið við krakk­ann í aft­ur­sæt­inu. Fleira tengt sjálf­stýr­ingu er einnig að finna í bílnum, m.a. Remote Park Pilot sem gerir öku­manni kleift að leggja bílnum í gegnum sím­ann. Þá má benda á, þótt það teng­ist sjálf­stýr­ingu ekki neitt, að fóta­nudd­tækið fyrir far­þega í aft­ur­sæti er vafa­laust nota­legt.

Keppi­nautar Audi, m.a. Tesla, Cadillac og Mercedes-Benz, selja í dag bíla útbúna sjálf­stýr­ingu sem telst til stigs 2. Þá þarf öku­maður að fylgj­ast með umhverf­inu þegar kveikt er á sjálf­stýr­ing­unni, vera til­bú­inn að taka yfir akst­ur­inn ef þörf krefur og láta bíl­inn vita á öllum tímum að hann er með augun við akst­ur­inn. Í umfjöllun IEEE Spectrum um Audi A8 segir að tölvu­kerfi bíls­ins muni fylgj­ast með öku­mann­inum og að hann sé vak­andi, rétt eins og fyrr­nefndir bílar keppi­naut­anna, þrátt fyrir að krafa um að bíl­stjóri láti vita af sér (t.d. með að halda um stýrið) sé ekki jafn rík.

[adspot]

Er 3. stigið hættulegt?

Eins og fyrr greinir verður Audi A8 með bún­aði sem gerir 3. stig sjálf­stýr­ingu mögu­lega. Mis­mun­andi mögu­leikum tækn­innar, eins og AI Traffic Jam Pilot og Remote Park Pilot, verður síðan hægt og bít­andi komið í gagnið, sam­kvæmt til­kynn­ingu Audi.

Eitt sem ræður nokkru um tíma­setn­ingar á aðgengi tækn­innar eru próf­anir og leyfi frá eft­ir­lits­að­ilum. Í umfjöllun vef­síð­unnar Automotive News er bent á að nýjasta kyn­slóð A8 eigi enn eftir að stand­ast ýmis próf. „Við erum í ókört­lögðu umhverfi og yfir­völd einnig,“ er haft eftir yfir­manni Audi á sviði rann­sókna og þró­unar. Þar vísar hann til að sjálf­keyr­andi tækni á jafn háu stigi hefur ekki verið aðgengi­leg áður í almennri sölu.

Laga­legar spurn­ingar um ábyrgð gera 3. stig sjálf­keyr­andi tækni að stóru álita­efni. Margir fram­leið­endur, m.a. Volvo, Toyota, Ford og Google, hafa valið að stökkva yfir þetta stig og ein­beita sér heldur að þróun tækni sem telst vera 4. og að lokum 5. stig. Á þeim stigum er hlut­verk öku­manns ýmist afar tak­markað eða ekki til staðar. En á 3. stigi nýtur sjálf­stýr­ingar aðeins við undir ákveðnum og afmörk­uðum aðstæðum. Hætta á að ábyrgð verði álita­mál ef óhapp verður, þ.e. hvort tölvu­kerfið eða bíl­stjór­inn hafi verið ábyrg og hvenær bíl­stjóri skuli taka yfir, er því meiri á þessu stigi tækn­innar en öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framgöngur

Mest lesið undanfarið ár