Kvika kaupir GAMMA - Kaupverðið lækkað umtalsvert frá því í júní

Kaupverð Kviku á GAMMA hefur lækkað mikið frá því að vilja­yf­ir­lýs­ing um kaupin var und­ir­rituð í júní. Hluti kaup­verðs­ins er greiddur með hlut­deild­ar­skír­teinum í sjóðum GAMMA.

Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA.
Valdimar Ármann, for­stjóri GAMMA. Mynd: GAMMA

Kvika banki hefur keypt allt hlutafé í GAMMA Capital Mana­gement á tæp­lega 2,9 millj­arða króna. GAMMA verður eftir kaupin dótt­ur­fé­lag Kviku.

[links]Miðað við bók­fært virði árang­urstengdra þókn­ana hjá GAMMA í lok júní 2018 nemur kaup­verðið þó 2,4 millj­örðum króna. Kaup­verðið er greitt með 839 millj­ónum króna í reiðufé, með hlut­deild­ar­skír­teinum í sjóðum GAMMA upp á 535 millj­ónir króna auk þess sem árang­urstengdar greiðslur sem metnar eru á 1.032 millj­ónir króna verða greiddar þegar lang­tíma­kröfur á sjóði GAMMA inn­heimt­ast. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands.

Verðið er umtals­vert lægra en til stóð að greiða fyrir GAMMA þegar til­kynnt var um vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaupin í júní síð­ast­liðnum. Þá kom fram að kaup­verðið ætti að vera 3.750 millj­ónir króna.

Endanlegt kaupverð liggur ekki fyrir

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að hlut­hafar GAMMA muni einnig eiga „rétt til auk­inna greiðslna vegna árang­urstengdra þókn­ana fast­eigna­sjóða félags­ins. Kaup­verðið á GAMMA getur jafn­framt tekið breyt­ingum til hækk­unar eða lækk­unar eftir því hvernig rekstur og verð­mæti eigna GAMMA þró­ast á næstu miss­erum.“

GAMMA er tíu ára gam­alt sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki sem rekur nokkra af stærstu fyr­ir­tækja­skulda­bréfa­sjóðum lands­ins. Sjóðir þess eru líka á meðal stærstu fjár­festum á íslenskum fast­eigna­mark­aði og alls er stærð þeirra um 140 millj­arðar króna. Sam­an­lagðar eignir í stýr­ingu hjá Kviku og rekstr­ar­fé­lögum í eigu bank­ans verða um 400 millj­arðar króna gangi kaupin á GAMMA eftir.

[adspot]Kvika hefur verið að vaxa hratt á síð­ustu árum með yfir­tökum á öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Stjórn bank­ans sam­þykkti í júlí að stefna að skrán­ingu hluta­bréfa Kviku á aðal­markað Kaup­hallar Íslands innan árs.

Stærstu eig­endur GAMMA voru Gísli Hauks­­son og Agnar Tómas Möller, fram­­kvæmda­­stjóri sjóða GAMMA, en báðir eiga þeir 31 pró­­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Gísli er hættur störfum hjá fyr­ir­tæk­inu og sinnir nú eigin fjár­­­fest­ing­­um. Þar að auki áttu Guð­mundur Björns­son, fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs fyr­ir­tæk­is­ins og eign­ar­halds­fé­lagið Straum­nes, sem er í eigu Fen­ger-­barna, hvor sinn tíu pró­senta hlut. Valdi­mar Ármann, for­stjóri GAMMA, átti einnig 5 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­in­u.

Stefnt að því að sameina starfsemi í London

Valdimar Ármann, for­stjóri GAMMA, segir að salan styrki GAMMA. „Árangur GAMMA und­an­far­inn ára­tug er mik­ils­verður fyrir við­skipta­vini, starfs­menn sem og hlut­hafa. Félagið er eitt öfl­ug­asta sjóða­stýr­ing­ar­fé­lag lands­ins og rekur fjöl­breytt sjóða­úr­val sem er um 140 millj­arðar króna að stærð. Við hjá GAMMA lítum stolt um öxl á þessum tíma­mótum og björtum augum til fram­tíðar.“

Gísli Hauksson, stærsti eig­andi GAMMA sem hætti störfum hjá fyr­ir­tæk­inu fyrr á þessu ári, segir í til­kynn­ingu að það felist mikil tæki­færi fyrir hlut­hafa GAMMA að hluti kaup­verðs­ins sé greiddur í hlut­deild­ar­skír­teinum sjóða félags­ins.

Ármann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku, segir að kaupin á GAMMA efli veru­lega eigna- og sjóða­stýr­ingu Kviku og auki umtals­vert vænta arð­semi bank­ans. „Stefnt er að því að sam­eina starf­semi félag­anna í London, sem mun skjóta styrk­ari stoðum undir erlenda starf­semi bank­ans. Starfs­fólk GAMMA hefur náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri í sjóða­stýr­ingu á und­an­förnum árum og það er mik­ill fengur fyrir Kviku að fá góðan hóp til liðs við sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár