VR: „Aldrei verið erfiðara að kaupa íbúð“

Erf­ið­leikar við að kaupa fyrstu íbúð hafa ekki mælst meiri í a.m.k. 20 ár sam­kvæmt nýju efna­hags­yf­ir­liti VR.

Frá kröfugöngu VR 1. maí 2018
Frá kröfu­göngu VR 1. maí 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Á und­an­gengnum 20 árum hefur aldrei verið erf­ið­ara erf­ið­ara að eign­ast fyrstu íbúð eins og í fyrra, miðað við íbúð­ar­hús­næði, ráð­stöf­un­ar­tekjur og aðgangi að lánsfé. Þetta kemur fram í nýju efna­hags­yf­ir­liti VR sem birt­ist í dag.

Samkvæmt VR hefur staðan á fast­eigna­mark­aði versnað á síð­ustu tveimur árum, en í mæl­ingum stétt­ar­fé­lags­ins fyrir árið 2015 voru fyrstu íbúð­ar­kaup einnig sögu­lega erfið.

Árið 2015 var það helst hátt verð á fjöl­býli sem hlut­fall af launum sem tor­veldi kaup á fast­eignum, en aðgengi að lánsfé var þá orðið betra en á tíunda ára­tugnum, þótt það hafi ekki verið jafn­gott og á árunum fyrir hrunið 2008.

Á síð­ustu tveimur árum hefur svo verð á fjöl­býli hækkað enn frekar í hlut­falli við útborguð laun 25-34 ára, en aðgengi að lánsfé hefur staðið í stað. Sé litið til lengri tíma sést einnig að leiga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem hlut­fall af launum þess ald­urs­hóps hefur hækkað um 80% á síð­ustu tveimur ára­tugum.

Í frétta­til­kynn­ingu VR sam­hliða birt­ingu yfir­lits­ins segir að ljóst sé að aldrei hafi verið erf­ið­ara að kaupa fyrstu íbúð. Útborguð laun ungs fólks hafi ekki haldið í við verð­hækkun á fjöl­býli og það verði æ erf­ið­ara fyrir ungt fólk sem sé á leigu­mark­aði að leggja til hliðar fyrir íbúð.

Í yfir­lit­inu er einnig vikið að stöðu launa á vinnu­mark­aði, en þrátt fyrir háar tekjur séu þær lægri en að með­al­tali í Evr­ópu­sam­band­inu þegar tekið er til­lit til verð­lags á vörum og þjón­ustu. Á þeim mæli­kvarða eru launin hærri í Noregi, Danmörk og Finn­landi, en verri í Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár