Aðgerðir 2.0: Fjárstuðningur veittur til rekstraraðila sem hafa orðið fyrir höggi

Frumvarp sem á að heim­ila beinan fjár­stuðn­ing til rekstr­ar­að­ila sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna aðgerða stjórn­valda til að bregð­ast við útbreiðslu kór­ónu­veirunnar var kynnt í rík­is­stjórn í morgun. Aðgerða­pakki tvö lítur dags­ins ljós í dag.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun voru kynnt fjöl­mörg mál sem snerta annan aðgerða­pakka stjórn­valda vegna efna­hags­legra áhrifa af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fór yfir það sem var kallað „Aðgerðir 2.0“ á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­fund­ar­ins. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti þrjú ný frum­vörp auk upp­færðra sviðs­mynda um efna­hags­horfur. Fyrstu tvö frum­vörpin voru ann­ars vegar band­ormur til að lög­festa þær aðgerðir sem kynntar verða síðar í dag og hins vegar nýtt fjár­auka­laga­frum­varp svo hægt verði að fjár­magna þær. Þriðja frum­varpið kall­ast svo „frum­varp til laga um fjár­stuðn­ing til rekstr­ar­að­ila vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru“. Búast má við því að þar sé verið að fjalla um beinar greiðslur til þeirra fyr­ir­tækja sem hafa þurft að loka vegna ákvarð­ana sem stjórn­völd hafa tekið til að berj­ast við útbreiðslu veirunnar.

[adspot]Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, kynnti aukna fjár­þörf Vinnu­mála­stofn­unar vegna COVID-19. Spár stofn­un­ar­innar gera ráð fyrir að hlut­fall atvinnu­lausra muni fara upp í 17 pró­sent í apr­íl­mán­uði og að fjöldi þeirra sem munu vera á hluta­bótum á meðan að það úrræði stendur til bóta, sem er út næsta mánuð, verði nálægt 35 þús­und. Þeir laun­þegar muni koma frá allt að 6.500 fyr­ir­tækjum. Heild­ar­fjöldi þeirra sem verða annað hvort á atvinnu­leysis- eða hluta­bótum mun þá lík­ast til fara yfir 50 þús­und.

Þetta er langt umfram það sem stjórn­völd reikn­uðu með þegar hluta­bóta­leiðin var sam­þykkt á Alþingi fyrir rúmum mán­uði.

Kynnt fyrir stjórnarflokkum og formönnum andstöðunnar

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra fjöll­uðu í sam­ein­ingu um ferða­tak­mark­anir til lands­ins á rík­is­stjórn­ar­fund­inum en fyrir liggur að sótt­varn­ar­læknir hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað þar sem lagt er til að allir sem komi til lands­ins fari í tveggja vikna sótt­kví, með örfáum og til­greindum und­an­þágum.

Þá voru afgreidd frum­vörp Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um Mat­væla­sjóð og Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um skipt­ingu fjár­veit­inga til lista, menn­ing­ar­starfs og íþrótta á fund­inum í morgun.

Eftir rík­is­stjórn­ar­fund­inn var aðgerða­pakk­inn kynntur fyrir þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna og klukkan 13 átti að hefj­ast fjar­fundur með for­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna þar sem farið yrði yfir pakk­ann.

Klukkan 16 í dag munu Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi svo kynna aðgerða­pakk­ann fyrir fjöl­miðlum og almenn­ingi á blaða­manna­fundi sem verður í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu.

Einn mán­uður frá aðgerða­pakka eitt

Nákvæm­lega mán­uður er í dag frá því að rík­is­stjórnin kynnt fyrsta aðgerða­pakk­ann í Hörpu. Heild­ar­á­hrif þeirra voru sögð vera 230 millj­arðar króna, en beinu nýju fram­lögin vegna hans voru lík­ast til um þriðj­ungur þeirrar upp­hæð­ar. Sumt þar voru verk­efni sem þegar lágu fyr­ir, til dæmis í fjár­fest­ingu, önnur mið­uðu að því að fella niður gjöld sem væru hvort eð er ekki að fara að skila sér nema að litlu leyti, eins og afnám gistin­átt­ar­skatts, og sum voru ein­fald­lega tekju­öfl­un­ar­leiðir fyrir rík­is­sjóð, eins og það að heim­ila úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði sem yrði þá skatt­lagður sam­hliða.

[adspot]Stóru beinu aðgerð­irnar sner­ust um hina svoköll­uðu hluta­bóta­leið, frestun opin­berra gjald­daga, auk­innar fyr­ir­greiðslu fyrir fyr­ir­tæki hjá banka við­kom­andi og því að ráð­ast í fjár­fest­ing­ar­átak, aðal­lega í hefð­bundnum innviðum sem útheima margar vinnu­manna­hend­ur.

Aðgerðir fjár­mála­stofn­ana hingað hafa því, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans, fyrst og síð­ast snú­ist um að frysta afborg­anir af lánum við­skipta­vina. Stærri fyr­ir­tæki, sem eiga í nánu og miklu sam­starfi við bank­ann sinn eru þar betur sett en lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki sem eru með litla eða jafn­vel enga fyr­ir­greiðslu að jafn­aði, en þurfa á henni að halda nú um stundir til að kom­ast í gegnum það ástand sem skap­ast hefur vegna kór­ónu­veirunn­ar.

Hin svoköll­uðu brú­ar­lán, sem veitt verða með rík­is­á­byrgð til fyr­ir­tækja sem hafa upp­lifað að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall, eru enn ekki komin til fram­kvæmda.

Þegar byrjað að und­ir­búa frekari aðgerðir

Við­mæl­endur Kjarn­ans sem þekkja til vinn­unnar við aðgerðir stjórn­valda hafa flestir verið sam­mála um að í næstu aðgerða­pökkum – sumir ráð­herrar þegar byrj­aðir að und­ir­búa þann þriðja – muni meðal ann­ars fel­ast að gripið verði til umfangs­meiri aðgerða til að styðja við ýmis­konar nýsköp­un. Í pakk­anum sem kynntur verður í dag verða þó aðgerðir sem eiga að örva slíka.

[links]Á meðal til­lagna sem rætt hafi verið um við stjórn­völd séu að fyr­ir­liggj­andi úrræði á borð við hluta­bóta­leið­ina og frestun á skatt­greiðslum verði látin ná yfir sprota­fyr­ir­tæki og að end­ur­greiðsl­ur, til dæmis vegna rann­sóknar og þró­un­ar, verði hækk­aðar veru­lega.

Til­gang­ur­inn verður að styðja við starf­semi sem getur verið arð­bær til fram­búð­ar, þótt hún sé það ekki endi­lega í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár