Björt framtíð slítur sig frá ríkisstjórnarsamstarfinu vegna trúnaðarbrests

Björt fram­tíð ákvað að segja sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Allt er á suðu­punkti innan Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Benedikt Jóhannesson, Bjarni Benediktsson og Óttarr Proppé.
Benedikt Jóhann­es­son, Bjarni Bene­dikts­son og Óttarr Proppé. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Bjartrar fram­tíðar hefur ákveðið að slíta sam­starfi við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, vegna alvar­legs trún­að­ar­brests, að því er fram kemur í til­kynn­ingu. Ráð­herrar Bjartrar fram­tíðar, Óttarr Proppé og Björt Ólafs­dóttir, greindu for­ystu­mönnum sam­starfs­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn, frá þessu seint í kvöld.

Stjórn Bjartrar fram­tíðar kom saman í kvöld til að ræða stöð­una sem komin er upp eftir að í ljós kom að faðir for­sæt­is­ráð­herra, Benedikt Sveins­son, skrif­aði undir með­mæla­bréf með beiðni Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar um að hann fengi upp­reist æru. Frá því var fyrst greint á vef Vísis.

Samtals voru 87 pró­sent stjórn­ar­manna hjá Bjartri fram­tíð hlynntir því að slíta sam­starf­inu.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra sagði í kvöld, í við­tali við Stöð 2, að hún hefði upp­lýst Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra um þetta í júlí.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var strax ljóst, í upp­hafi fundar, að kraum­andi óánægja var með stöðu mála innan rík­is­stjórn­ar­innar, og að Björt fram­tíð gæti ekki haldið áfram rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu undir for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í við­tal­inu við Stöð 2 í kvöld sagði Sigríður að emb­ætt­is­menn hefðu greint henni frá því í lok júlí að faðir Bjarna væri á meðal umsagn­ar­að­ila Hjalta. Hún hefði talið rétt að láta for­sæt­is­ráð­herra vita af því.

„Hann kom algjör­lega af fjöll­u­m,“ sagði Sig­ríður í við­tali við Stöð 2 og Vísi.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur enn ekki birt gögnin um votta þeirra sem hafa fengið upp­reist æru, líkt og úrskurður úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál segir til um. Ein­ungis hafa verið birt gögnin í máli Roberts Dow­ney, sem var til umfjöll­unar í fyrr­nefndu máli. En upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins, Jóhannes Tóm­as­son, hefur upp­lýst um að unnið sé að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár