Regnskógar minnkuðu um einn fótboltavöll á sex sekúndna fresti

Um tólf millj­ónir hekt­ara af skóg­lendi töp­uð­ust í hita­belt­inu í fyrra. Skóg­ar­eldar af nátt­úr­unnar og manna­völdum áttu þar sinn þátt en einnig skóg­areyð­ing vegna land­bún­aðar.

Slökkviliðsmaður berst við skógarelda í Brasilíu á síðasta ári.
Slökkvi­liðs­maður berst við skóg­ar­elda í Brasilíu á síð­asta ári. Mynd: EPA

Á sex sek­úndna fresti að með­al­tali tap­að­ist svæði á stærð við fót­bolta­völl í regn­skógum heims­ins í fyrra. Í heild minnk­uðu skógar hita­belt­is­ins um tæp­lega tólf millj­ónir hekt­ara á síð­asta ári, þar af fjórar millj­ónir hekt­ara af þéttum, gömlum skógum.

Þetta er nið­ur­staða rann­sóknar Háskól­ans í Maryland á skóg­areyð­ingu árs­ins 2019 sem byggð er á gervi­tungla­myndum. Skóg­areyð­ing utan regn­skóg­anna var einnig meiri í fyrra en árið á undan. Mestu munar um afleið­ingar gríð­ar­legra skóg­ar­elda í Ástralíu í lok árs­ins í fyrra og árs­byrjun 2020. Á síð­asta ári tap­að­ist sex sinnum meira skóg­lendi í Ástralíu en árið 2018.

Skógar Ástralíu hafa aðlag­ast árlegum skóg­ar­eldum lík­lega í þús­undir ára. Þeir hafa því oft­ast verið fljótir að ná bata, m.a. skógar tröllatrjánna. En það sem var óvenju­legt við skóg­ar­eldana nú er að þeir voru mun umfangs­meiri og kröft­ugri en oft­ast áður og því brann skóg­lendi sem hefur hingað til sloppið við eld­tung­urnar. Í frétt Guardian segir að 33 mann­eskjur hafi lát­ist í eld­unum en að um 445 dauðs­föll til við­bótar megi rekja til þeirra, m.a. reyk­eitr­unar sem fólk varð fyrir. Hundruð millj­óna dýra drápust.

„Þegar venju­bundnir skóg­ar­eldar geisa þá brenna þeir börk trjánna en eld­arnir þetta sum­arið breyttu mörgum trjám í kola­mola,“ hefur Guardian eftir Rod Taylor sem starfar með Global Forest Watch, sam­tökum sem greindu gögn Háskól­ans í Maryland. Hann segir að Ástralar verði að búa sig undir að skóg­ar­eldar fram­tíð­ar­innar verði meiri og skæð­ari en áður vegna lofts­lags­breyt­inga.

Gögnum um stærð regn­skóg­anna hefur verið aflað með sama hætti frá árinu 2002. Mest voru þeir skertir árin 2016 og 2017 en í fyrra var skerð­ingin sú þriðja mesta frá upp­hafi sam­felldrar gagna­öfl­unar með gervi­tungla­myndum.

[links]Enn er eyð­ing regn­skóg­anna mest í Brasilíu þar sem stór svæði Amazon voru rudd fyrir land­búnað. Mest jókst skóg­areyð­ing milli ára hins vegar í Bólivíu. Í fyrra var hún 80 pró­sent meiri en árið 2018. Þar í landi eru skóg­ar­eldar kveiktir vilj­andi til að brjóta land undir land­búnað en einnig er talið að lofts­lags­breyt­ingar hafi átt þátt í eld­unum.

Ekki var gengið jafn mikið á skóga Austur-Kongó í mið­hluta Afríku í fyrra og tvö árin þar á undan en þar tap­að­ist þó mikið skóg­lendi vegna námu­vinnslu, skóg­ar­höggs og land­bún­aðar.

Frum­skógar í Gana og á Fíla­beins­strönd­inni fengu meiri frið í fyrra en oft áður og sömu sögu er að segja frá Indónesíu. Í báðum til­vikum skýrist þetta af ákvörð­unum stjórn­valda sem vilja tryggja að skóg­arnir séu sjálf­bærir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár